Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 64
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR52 HANDBOLTI Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknatt- leikssambands Íslands, segir rass- skellingar hafa tíðkast sem busun hjá karlalandsliði Íslands í langan tíma. „Þetta er bara hefð og menn hafa ekki slasast að því ég best veit,“ segir Einar, sem var lands- liðsmarkvörður Íslands um ára- bil. Var meðal annars markvörð- ur liðsins sem sigraði í B-keppni heimsmeistaramótsins árið 1989. Einar segir að hefðin hafi orðið til fyrir hans kynslóð og eigi upp- tök sín hjá leikmönnum. Sam- bandið hafi til þessa ekki haft neitt um málið að segja. „Þetta er þó aðeins við lýði hjá karlalandsliðinu að því er ég best veit,“ segir Einar sem man eftir sinni rassskellingu þegar hann þreytti frumraun sína með lands- liðinu. Hann segist ekki hafa kippt sér upp við hana. „Það er meiri áskorun að mæta inn á völlinn og spila fyrir íslenska landsliðið,“ segir Einar. Menn eru ekkert píndir „Menn geta komið sér undan þessu ef þeir vilja, ef þeir eru sérstak- lega viðkvæmir fyrir þessu. Ef þeir vilja ekki taka þátt í þessu eru þeir ekkert teknir fyrir. Menn eru ekkert píndir,“ segir Freyr Brynj- arsson, fyrirliði karlaliðs Hauka í handbolta. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins tíðkast rassskellingar hjá fleiri liðum en Haukum. Freyr segist ekki átta sig á því hvaðan þessi flengingarhefð í íslenskum handbolta sé komin. „Einhvers staðar byrjaði þessi hefð. Þegar ég var í Val datt hún upp fyrir í nokkur ár. Svo tekur einhver vitleysingur þetta upp aftur,“ segir Freyr léttur. Í viðtali við Bjarka Má Elís- son, nýliða í íslenska landsliðinu, á Mbl.is að loknum leiknum gegn Hollandi síðastliðinn sunnudag þakkaði hann guði fyrir að Sigfús Sigurðsson, varnartröll íslenska liðsins til margra ára, væri hætt- ur í landsliðinu. Þó sagði hann nóg af „hörðum“ körlum í liðinu til að sjá um busavígsluna. „Þegar menn eins og Fúsi og Petr Baumruk (fyrrverandi leik- maður Hauka) eru í liðinu eru menn skiljanlega hræddir við að fá þessar lúkur á sig,“ sagði Freyr í gamansömum tón. Tíðkast ekki í U20 landsliðinu Eins og fjallað var um í Frétta- blaðinu í gær fór Ómar Ragn- arsson mikinn í gagnrýni sinni á busavígslur innan íþróttahreyf- ingarinnar. „Mér finnst að minnsta kosti vera takmörk fyrir því hve langt er hægt að ganga í því að pynta börn undir lögaldri, en verstu dæmin um þessa kaghýðingarbus- un eru ekkert annað en pyntingar og ofbeldi,“ skrifaði Ómar meðal annars á síðu sína. Eftir því sem undirritaður kemst næst tíðkast busavígslurnar ekki hjá yngri flokkum í íslenskum handbolta. Tveir efnilegir hand- knattleiksmenn í undir 16 ára landsliði karla könnuðust hvorki við flengingar hjá landsliðinu né félagsliði sínu. Þá töldu þeir slíkt ekki tíðkast hjá öðrum félögum í þeirra aldursflokki. Árni Benedikt Árnason, leik- maður Gróttu sem spilað hefur með 20 ára landsliði Íslands í síð- ustu verkefnum liðsins, segir rass- skellingar ekki tíðkast hjá lands- liðinu. Þar komi flestir leikmenn inn í liðið á sama tíma og ekki sanngjarnt að einstaka leikmenn sem bætist við síðar séu rassskellt- ir. kolbeinntumi@365.is RASSSKELLINGAR HAFA TÍÐKAST LENGI Nýliðar í íslenska karlalandsliðinu í handknattleik hafa um árabil verið boðnir velkomnir með flengingu að loknum þeirra fyrsta leik með liðinu. Hefðin er einnig fyrir hendi í meistaraflokkum íslenskra félaga en virðist hvorki hafa fest sig í sessi hjá yngri landsliðum Íslands eða yngri flokkum íslensku félaganna. STEMNING HJÁ STRÁKUNUM Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hefur löngum verið þekkt fyrir mikla stemningu. Hér gætir skælbrosandi Róbert Gunnarsson félaga síns, Arons Pálmarssonar, í knattspyrnuleik í upphafi æfingar. Alexander Petersson stendur vaktina í markinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒ ƒƒƒƒƒ ƒƒƒƒƒƒƒ ƒ ƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒƒ ƒ ƒ ƒ ƒ „Gyrtu niður um mig og flengdu allhressilega sælla minninga” „... þær tóku mig bara á miðjupunktinum beint eftir leik, gyrtu niður um mig og flengdu allhressilega, sælla minninga,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir landsliðskona Íslands í knattspyrnu í viðtali við Monitor á síðasta ári. Þar rifjaði Margrét Lára upp vígsluathöfn að loknum fyrsta leik sínum með meistaraflokki ÍBV en þá var hún á fjórtánda aldursári. Þórhildur Ólafsdóttir, sem spilaði með ÍBV þar til hún skipti yfir í Þór/KA fyrir yfirstandandi leiktíð, man vel eftir nýliðavígslunum sem tíðkuðust í Eyjum. „Ég var fjórtán eða fimmtán ára þegar ég spilaði fyrsta leikinn minn með meistaraflokki. Þá vorum við tvær að gægjast upp í meistaraflokk. Hin var tekin rækilega á einni æfingunni, gyrt niður um hana og rass- skellt en ég slapp við þetta,“ segir Þórhildur og hlær en hún telur að minna fari fyrir slíku í dag. Þórhildur segir norðanstelpur hafa tekið vel á móti sér, enginn hafi komið nálægt afturenda hennar og segir hún yngri leikmenn liðsins fá blíðar móttökur. Engar nýliðavígslur. Þórhildur viðurkennir að hún hafi kviðið fyrir nýliðavígslu sinni. „Mér leið allavega ekkert svakalega vel því ég fékk að heyra það að ég ætti eftir að fá að kenna á því. Maður var ekkert að væla yfir þessu en kveið pínulítið,“ segir Þórhildur. Meistaraflokkur kvenna hjá ÍBV var lagður niður tímabundið um miðjan síðasta áratug. Kristín Erna Sigurlásdóttir, núverandi leikmaður ÍBV, var líkt og Þórhildur einn af eldri leikmönnum liðsins þegar meistaraflokkurinn var endurvakinn haustið 2007. Þrátt fyrir það voru þær stöllur rétt byrjaðar í framhalds- skóla og hefðin lagðist af. Kristín Erna segir ekki útilokað að hefðin verði tekin upp að nýju í Eyjum. „Mér finnst gaman að þessu og maður ætti kannski að koma þessu í kring á nýjan leik. „Kjúllarnir“ hafa aldrei fundið fyrir því að vera nýliðar. Þær eru bara hluti af eldri hópnum og kannski ágætt að þær finni fyrir því að þær séu yngri og að spila fyrstu leikina í meistaraflokki,“ segir Kristín Erna í gamansömum tón.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.