Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 64
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR52
HANDBOLTI Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri Handknatt-
leikssambands Íslands, segir rass-
skellingar hafa tíðkast sem busun
hjá karlalandsliði Íslands í langan
tíma.
„Þetta er bara hefð og menn
hafa ekki slasast að því ég best
veit,“ segir Einar, sem var lands-
liðsmarkvörður Íslands um ára-
bil. Var meðal annars markvörð-
ur liðsins sem sigraði í B-keppni
heimsmeistaramótsins árið 1989.
Einar segir að hefðin hafi orðið
til fyrir hans kynslóð og eigi upp-
tök sín hjá leikmönnum. Sam-
bandið hafi til þessa ekki haft neitt
um málið að segja.
„Þetta er þó aðeins við lýði hjá
karlalandsliðinu að því er ég best
veit,“ segir Einar sem man eftir
sinni rassskellingu þegar hann
þreytti frumraun sína með lands-
liðinu. Hann segist ekki hafa kippt
sér upp við hana.
„Það er meiri áskorun að mæta
inn á völlinn og spila fyrir íslenska
landsliðið,“ segir Einar.
Menn eru ekkert píndir
„Menn geta komið sér undan þessu
ef þeir vilja, ef þeir eru sérstak-
lega viðkvæmir fyrir þessu. Ef
þeir vilja ekki taka þátt í þessu eru
þeir ekkert teknir fyrir. Menn eru
ekkert píndir,“ segir Freyr Brynj-
arsson, fyrirliði karlaliðs Hauka í
handbolta.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins tíðkast rassskellingar
hjá fleiri liðum en Haukum. Freyr
segist ekki átta sig á því hvaðan
þessi flengingarhefð í íslenskum
handbolta sé komin.
„Einhvers staðar byrjaði þessi
hefð. Þegar ég var í Val datt hún
upp fyrir í nokkur ár. Svo tekur
einhver vitleysingur þetta upp
aftur,“ segir Freyr léttur.
Í viðtali við Bjarka Má Elís-
son, nýliða í íslenska landsliðinu,
á Mbl.is að loknum leiknum gegn
Hollandi síðastliðinn sunnudag
þakkaði hann guði fyrir að Sigfús
Sigurðsson, varnartröll íslenska
liðsins til margra ára, væri hætt-
ur í landsliðinu. Þó sagði hann nóg
af „hörðum“ körlum í liðinu til að
sjá um busavígsluna.
„Þegar menn eins og Fúsi og
Petr Baumruk (fyrrverandi leik-
maður Hauka) eru í liðinu eru
menn skiljanlega hræddir við að
fá þessar lúkur á sig,“ sagði Freyr
í gamansömum tón.
Tíðkast ekki í U20 landsliðinu
Eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu í gær fór Ómar Ragn-
arsson mikinn í gagnrýni sinni á
busavígslur innan íþróttahreyf-
ingarinnar.
„Mér finnst að minnsta kosti
vera takmörk fyrir því hve langt
er hægt að ganga í því að pynta
börn undir lögaldri, en verstu
dæmin um þessa kaghýðingarbus-
un eru ekkert annað en pyntingar
og ofbeldi,“ skrifaði Ómar meðal
annars á síðu sína.
Eftir því sem undirritaður
kemst næst tíðkast busavígslurnar
ekki hjá yngri flokkum í íslenskum
handbolta. Tveir efnilegir hand-
knattleiksmenn í undir 16 ára
landsliði karla könnuðust hvorki
við flengingar hjá landsliðinu né
félagsliði sínu. Þá töldu þeir slíkt
ekki tíðkast hjá öðrum félögum í
þeirra aldursflokki.
Árni Benedikt Árnason, leik-
maður Gróttu sem spilað hefur
með 20 ára landsliði Íslands í síð-
ustu verkefnum liðsins, segir rass-
skellingar ekki tíðkast hjá lands-
liðinu. Þar komi flestir leikmenn
inn í liðið á sama tíma og ekki
sanngjarnt að einstaka leikmenn
sem bætist við síðar séu rassskellt-
ir. kolbeinntumi@365.is
RASSSKELLINGAR HAFA TÍÐKAST LENGI
Nýliðar í íslenska karlalandsliðinu í handknattleik hafa um árabil verið boðnir velkomnir með flengingu að loknum þeirra fyrsta leik
með liðinu. Hefðin er einnig fyrir hendi í meistaraflokkum íslenskra félaga en virðist hvorki hafa fest sig í sessi hjá yngri landsliðum
Íslands eða yngri flokkum íslensku félaganna.
STEMNING HJÁ STRÁKUNUM Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hefur löngum verið þekkt fyrir mikla stemningu. Hér gætir skælbrosandi Róbert Gunnarsson félaga síns,
Arons Pálmarssonar, í knattspyrnuleik í upphafi æfingar. Alexander Petersson stendur vaktina í markinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
„Gyrtu niður um mig og flengdu allhressilega sælla minninga”
„... þær tóku mig bara á miðjupunktinum beint eftir leik, gyrtu niður um mig og flengdu allhressilega,
sælla
minninga,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir landsliðskona Íslands í knattspyrnu í viðtali við Monitor á
síðasta ári. Þar rifjaði Margrét Lára upp vígsluathöfn að loknum fyrsta leik sínum með meistaraflokki ÍBV
en þá var hún á fjórtánda aldursári.
Þórhildur Ólafsdóttir, sem spilaði með ÍBV þar til hún skipti yfir í Þór/KA fyrir yfirstandandi leiktíð, man
vel eftir nýliðavígslunum sem tíðkuðust í Eyjum.
„Ég var fjórtán eða fimmtán ára þegar ég spilaði fyrsta leikinn minn með meistaraflokki. Þá vorum við
tvær að gægjast upp í meistaraflokk. Hin var tekin rækilega á einni æfingunni, gyrt niður um hana og rass-
skellt en ég slapp við þetta,“ segir Þórhildur og hlær en hún telur að minna fari fyrir slíku í dag.
Þórhildur segir norðanstelpur hafa tekið vel á móti sér, enginn hafi komið nálægt afturenda hennar og
segir hún yngri leikmenn liðsins fá blíðar móttökur. Engar nýliðavígslur. Þórhildur viðurkennir að hún hafi
kviðið fyrir nýliðavígslu sinni.
„Mér leið allavega ekkert svakalega vel því ég fékk að heyra það að ég ætti eftir að fá að kenna á því.
Maður var ekkert að væla yfir þessu en kveið pínulítið,“ segir Þórhildur.
Meistaraflokkur kvenna hjá ÍBV var lagður niður tímabundið um miðjan síðasta áratug. Kristín Erna
Sigurlásdóttir, núverandi leikmaður ÍBV, var líkt og Þórhildur einn af eldri leikmönnum liðsins þegar
meistaraflokkurinn var endurvakinn haustið 2007. Þrátt fyrir það voru þær stöllur rétt byrjaðar í framhalds-
skóla og hefðin lagðist af.
Kristín Erna segir ekki útilokað að hefðin verði tekin upp að nýju í Eyjum.
„Mér finnst gaman að þessu og maður ætti kannski að koma þessu í kring á nýjan leik. „Kjúllarnir“ hafa
aldrei fundið fyrir því að vera nýliðar. Þær eru bara hluti af eldri hópnum og kannski ágætt að þær finni
fyrir því að þær séu yngri og að spila fyrstu leikina í meistaraflokki,“ segir Kristín Erna í gamansömum tón.