Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 8
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR8
Þóra Arnórsdóttir
forsetaframbjóð-
andi hélt fram-
boðsfund á Sjó-
mannastofunni Vör
í Grindavík á dög-
unum.
Á framboðsfund-
inum var Þóru gefið orkerað háls-
men, eftir listakonuna Toggu, en
hálsmenið ber nafnið Brynja.
„Það er nú einnmitt í svona bar-
áttu sem maður þarf stundum á
brynju að halda,“ sagði Þóra þegar
hún tók við gripnum.
Þóra sagðist heilluð af Grinda-
vík, en fyrir fundinn höfðu stuðn-
ingsmenn Þóru farið með hana í
kynningarferð um plássið.
„Það er greinilegt að hér er
rífandi uppgangur og vonandi
eitthvað sem mun smitast víðar
um landið, það er að segja þessi
jákvæðni og kraftur sem maður
finnur fyrir,“ sagði Þóra.
Þóra sagði álíka þankagang
þurfa í meiri mæli í íslenskt sam-
félag. „Við megum ekki gleyma
okkur of mikið í því sem hefur
verið gert eða ekki gert síðustu
árin, því við erum að kjósa forseta
fyrir þau fjögur næstu. Við verð-
um að horfa fram á við.“
Þóra kynnti einnig hugmyndir
sínar um forsetaembættið, en hún
sagðist hafa íhaldssamari og hefð-
bundnari sýn á forsetaembættið en
margir. „Mér finnst það vera hans
helsta hlutverk að vera samein-
ingarafl inn á við, að vera ópóli-
tískur og taka ekki þátt í hinum
daglegu pólitísku þrætum. Forset-
inn á þó að vera í góðum tengslum
við stjórnmálamenn og láta þá
alla njóta sannmælis, sama hvar í
flokki þeir standa.“
Þóra svaraði einnig gagnrýni
sem hún hefur fundið fyrir. „Fólk
er mikið að velta fyrir sér þess-
ari litlu þarna í barnabílstólnum,
hvort ég ætli að vera í fæðing-
arorlofi fram að áramótum, eða
fram að næstum kosningum en
svo er ekki,“ sagði Þóra og benti
á nýfædda dóttur sína sem lá í
barnabílstól hjá föður sínum.
„Sá sem býður sig fram til emb-
ættis forseta Íslands tekur við því
á tilsettum tíma eða 1. ágúst.“
katrin@frettabladid.is
Þóra heillaðist af
krafti Grindavíkur
Þóra Arnórsdóttir hélt framboðsfund í Sjómannastofunni Vör í Grindvík. Hún
sagði jákæðni og kraft einkenna bæjarbraginn og hún vonar að andi bæjarins
smitist út í fleiri kima samfélagsins. Íslendingar verði að horfa fram á við.
HEILSUÐU ÞÓRU Þóra Arnórsdóttir heilsaði upp á yngstu kynslóð Grindvíkinga, sem
beið í röð eftir að fá að heilsa forsetaframbjóðandanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Við megum ekki
gleyma okkur of mikið
í því sem hefur verið gert eða
ekki gert síðustu árin, því við
erum að kjósa forseta fyrir
þau fjögur næstu.
ÞÓRA ARNÓRSDÓTTIR
FORSETAFRAMBJÓÐANDI
1. Hvar átti ljóðaþing Kínversk-
íslenska menningarsjóðsins að fara
fram?
2. Hversu mikið jókst ábyrgð ríkis-
ins vegna SpKef frá bankahruni?
3. Hvenær var tónlistarhátíðin Við
Djúpið haldin í fyrsta skipti?
SVÖR:
1. í bænum Kirkenes í Noregi. 2. Um 20
milljarða króna. 3. Árið 2003.
Ferðaskrifstofa
ÍRAK, AP Að minnsta kosti 65 eru
látnir eftir röð sprengjuárása í
nokkrum borgum og bæjum í Írak
í gær. Árásirnar beindust að mestu
að sjíta-múslimum sem minntust
þess að átta ár voru liðin frá láti
klerksins Imam Moussa al-Kad-
him.
Sextán sprengjur sprungu víða
um landið og auk hinna látnu særð-
ust yfir 200 manns. Fyrsta sprengj-
an sprakk í bænum Taji, norð-
ur af Bagdad, um klukkan fimm
í gærmorgun. Sjö létust og tveir
særðust. Fjórar fleiri sprengj-
ur sprungu í gærmorgun í höfuð-
borginni þar sem 25 létust og yfir
70 særðust. Þá spungu tvær bíla-
sprengjur í borginni Hillah, sunn-
an Bagdad, og lést 21 þar og 53
særðust. Í Karbala, heilagri borg
sjíta, létust tveir og í bænum Balad
norður af höfuðborginni létust sjö
eftir að tvær sprengjur sprungu
í bílum. Sjö sprengjur til viðbót-
ar sprungu í gærmorgun annars
staðar í landinu. Meðal annars var
gerð sprengjuárás á skrifstofur
kúrdískra stjórnmálamanna.
Dagurinn í gær var sá blóðug-
asti síðan 5. janúar, en þá létust 78
manns í röð sprenginga sem beind-
ust einnig að sjítum. Árásirnar
voru einnig meðal þeirra mann-
skæðustu síðan bandarískt herlið
fór frá landinu.
- þeb
Mannskæðar sprengjuárásir víða um Írak í gær beindust aðallega að sjítum:
Minnst 65 látnir eftir árásirnar
SKEMMDIR KANNAÐAR Þessir drengir skoðuðu skemmdirnar sem urðu eftir að bíla-
sprengja sprakk í borginni Kirkuk í gærmorgun. NORDICPHOTOS/AFP
GISTING Þrjú íslensk farfuglaheim-
ili eru meðal 10 bestu farfugla-
heimila í heimi samkvæmt mati
gesta sem greint er frá á vefnum
hihostels.com. Farfuglaheimilið á
Laugarvatni er í tíunda sæti, far-
fuglaheimilið á Selfossi í áttunda
sæti og farfuglaheimilið Reykja-
vik Downtown á Vesturgötu 17 í
sjötta sæti.
„Reykjavik Downtown hefur
verið á listanum yfir 10 bestu
farfuglaheimili í heimi frá því
það var opnað 2009 og við fikr-
um okkur sífellt upp listann,“
segir Sigríður Ólafsdóttir, rekstr-
arstjóri farfuglaheimilanna í
Reykjavík.
Hún getur þess að núverandi
listi gildi frá janúar á þessu ári
fram í júní. Gestir meti meðal
annars þjónustu, staðsetningu,
þægindi, vingjarnleika starfsfólks,
hreinlæti og umhverfisvernd. „Á
farfuglaheimilinu á Vesturgötu
eru 70 rúm í 19 herbergjum. Þarna
myndast heimilisleg stemning sem
er bæði gestunum sjálfum og frá-
bæru starfsfólki að þakka.“
Efst á listanum í ár er farfugla-
heimilið Bangkok Siam Square í
Taílandi. Þar á eftir koma Morty
Rich Hostel í Houston í Bandaríkj-
unum, Flåm vandrerhjem í Nor-
egi, Lillehammer vandrerhjem í
Noregi, Pathpoint Cologne í Köln
í Þýskalandi, Reykjavik Down-
town, Utano YH í Kyoto í Japan,
farfuglaheimilið á Selfossi, Shin-
Osaka YH í Osaka í Japan og í
tíunda sæti er farfuglaheimilið á
Laugarvatni.
Þessi eru þau tíu bestu af þeim
tveimur þúsundum sem hægt er
að bóka rúm á á Netinu en alls eru
farfuglaheimili í heiminum rúm-
lega fjögur þúsund í yfir 60 lönd-
um. - ibs
Þrjú íslensk farfuglaheimili eru á lista yfir tíu bestu farfuglaheimili í veröldinni:
Íslensk farfuglaheimili fá toppeinkunn
FARFUGLAHEIMILI Í móttökunni á far-
fuglaheimilinu á Vesturgötu 17.
VEISTU SVARIÐ?