Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 29
FIMMTUDAGUR 14. júní 2012 29
Nýlega kynnti samráðshópur um húsnæðisstefnu stjórn-
valda tillögur að nýju húsnæðis-
bótakerfi, í skýrslu sem var
kynnt nú á dögunum. Þær leggja
áherslu á aðstoð hins opinbera
óháð búsetu og taka aukið tillit
til ólíkra þjóðfélagshópa. Margt
í tillögunum er gott og eru þær
vísbending um aukið jafnræði
í aðstoð hins opinbera til handa
heimilunum í landinu.
Þótt frumvarpið hafi ekki enn
litið dagsins ljós, þegar þetta
er skrifað, má reikna með því
að umræddar breytingar verði
til að jafna lífskjör í landinu;
einkum hjá þeim sem leigja og
hafa ekki notið aðstoðar í bóta-
kerfinu.
Þrátt fyrir öll hin góðu teikn
er einnig ástæða til að hafa
áhyggjur af stefnu stjórnvalda
í húsnæðismálum þegar kemur
að meðlagsgreiðendum; einkum
þeim sem einstæðir eru. Sam-
tök meðlagsgreiðenda hnjóta
um ýmsa þætti tillagnanna. Þær
byggjast að hluta til á svoköll-
uðum vegvísi Evrópuráðsins
um húsnæðisöryggi, en í honum
segir m.a. að húsnæðisstefnu
stjórnvalda beri að tryggja
félagslega samheldni og að
markmið slíkrar húsnæðisstefnu
séu „fjárhagslegt stýritæki fyrir
viðkvæma hópa vegna öflunar
eigin húsnæðis“.
Í skýrslu samráðshópsins
kemur auk þess fram sú áhersla
OECD að húsnæðisstefna aðild-
arríkja skuli vera skilvirk og
sanngjörn. Samráðshópurinn
tekur undir með Evrópuráðinu
og OECD og telur það hlutverk
hins opinbera að hlaupa undir
bagga með þjóðfélagshópum
sem sárt eiga um að binda þar
sem: „Fjölskyldur og einstak-
lingar sem eiga rétt á opinberri
aðstoð, til dæmis lágtekjufólk,
fjölskyldur með þunga fram-
færslubyrði, fólk í erfiðum
félagslegum aðstæðum, fatlaðir
og aldraðir, eiga að vera á sama
húsnæðismarkaði og aðrir.“
Þá segir samráðshópurinn að
„greinargóðar upplýsingar um
húsnæðismarkað séu nauðsyn-
legar forsendur stefnumótunar
og þurfi að vera aðgengilegar
öllum á húsnæðismarkaði“.
Áhyggjuefni Samtaka með-
lagsgreiðenda lýtur að því að
engar ásættanlegar upplýsing-
ar eða rannsóknir eru til um
fjárhagslega stöðu eða félags-
lega hagi meðlagsgreiðenda. Sú
úttekt sem kemst næst því að
vera viðunandi er skýrsla nefnd-
ar um stöðu barna í mismunandi
fjölskyldugerðum, sem var gerð
fyrir félags- og tryggingamála-
ráðuneytið árið 2009.
Þótt þar komi berlega í ljós
að meðlagsgreiðendur búi við
lægstu framfærsluna, verður
hún óviðunandi við það eitt að
forsenda útreikninga í skýrsl-
unni miða við að meðlagsgreið-
endur borgi aðeins eitt meðlag,
á meðan reyndin er að helming-
ur þeirra borgar fleiri en eitt
meðlag. Þá eru ótaldir þeir sem
borga aukið meðlag. Í ofanálag
má nefna að skýrslan tekur ekki
tillit til skulda meðlagsgreið-
enda við lánastofnanir, jafnvel
þótt gögn sem Samtök meðlags-
greiðenda hafa undir höndum
bendi til þess að 75% einstæðra
meðlagsgreiðenda séu á van-
skilaskrá.
Upplýsingar um hagi meðlags-
greiðenda eru því vart til staðar,
og kemur það því ekki á óvart
að samráðshópurinn skuli nefna
sérstaklega flesta þjóðfélags-
hópa í úttekt sinni, en láta það
vera að nefna meðlagsgreiðend-
ur á nafn jafnvel þótt meðlags-
greiðendur séu allt að fjórtán
þúsund talsins. Það er þó ekki
öruggt þar sem hið opinbera
veit ekki nákvæmlega hvað þeir
eru margir. Þar sem tölfræðina
vantar er ekki hægt að fullyrða
fullum fetum að einstæðir með-
lagsgreiðendur búi við verstu
kjörin á Íslandi, jafnvel þótt
heilbrigð skynsemi og einfaldir
útreikningar bendi svo sannar-
lega til þess.
Þótt opinberar stofnanir haldi
öðru fram þá er það samt þannig
í raun að einstæðir meðlags-
greiðendur búa við langverstu
kjörin í samfélaginu. Staða
þeirra er óhugnanleg og er það
því verulegt áhyggjuefni að ekki
skuli vera getið um þann hóp
í skýrslu samráðshópsins. Ef
til verða „sérstakar húsnæðis-
bætur“ til handa einstæðum for-
eldrum með nýju húsnæðisbóta-
kerfi, er það mikið jafnræðis- og
réttlætismál að einstæðir með-
lagsgreiðendur fái aðgang að
þeim sem foreldrar en ekki sem
barnlausir einstæðingar eins og
staðan er nú.
Þó er ástæða til að þakka
stjórnvöldum sérstaklega fyrir
jákvætt og uppbyggilegt viðmót
gagnvart Samtökum meðlags-
greiðenda og framlagi samtak-
anna til umræðunnar. Samtökin
bíða átekta eftir frumvarpi til
laga um nýjar húsnæðisbætur
og hlakka til að eiga jákvætt
og uppbyggilegt samstarf við
stjórnvöld þegar umsagnaferli
frumvarpsins hefst á Alþingi.
Nýtt húsnæðisbótakerfi fyrir meðlagsgreiðendur
Húsnæðisbætur
Gunnar Kristinn
Þórðarson
stjórnarformaður
Samtaka
meðlagsgreiðenda
Áhyggjuefni Samtaka meðlagsgreiðenda
lýtur að því að engar ásættanlegar upplýs-
ingar eða rannsóknir eru til um fjárhagslega
stöðu eða félagslega hagi meðlagsgreiðenda. Sú úttekt sem
kemst næst því að vera viðunandi er skýrsla nefndar um
stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum, sem var gerð
fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið árið 2009.
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
7
9
Við bjóðum
á opinn fund
Íslandsbanki og VÍB bjóða til opins fundar í Norðurljósasal
Hörpu í dag, kl. 11.45-13.00.
Kynnt verður ný þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka auk þess
sem sérfræðingar Íslandsbanka og VÍB fjalla um áhrif óverðtryggðra
og verðtryggðra vaxta á húsnæðislán og sparnað landsmanna.
Að loknum framsögum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Hildur Kristmundsdóttir, útibússtjóri hjá Íslandsbanka
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á www.islandsbanki.is
og www.vib.is.
Skráning fer fram á vef Íslandsbanka, www.islandsbanki.is.
Opið er fyrir skráningu á meðan húsrúm leyfir.
Óverðtryggt eða verðtryggt? Dagskrá:
1. Vöxtur í viðjum hafta – Ný þjóðhagsspá Greiningar
Íslandsbanka. Hvernig munu vextir, verðbólga
og hagvöxtur þróast næstu árin? Hvað með gengi
krónunnar, kaupmátt launa og húsnæðisverð?
Hvernig þróast fjárhagsleg staða fyrirtækja og heimila?
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar
Íslandsbanka
2. Húsnæðislán, hvað stendur til boða? – Á ég að taka
verðtryggt eða óverðtryggt lán? Er hægt að minnka
sveiflur í greiðslubyrði óverðtryggðra lána?
Jón Finnbogason, aðstoðarframkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Íslandsbanka
3. Tekur því að spara óverðtryggt? – Ávöxtun fjármuna
í verðbólgu.
Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB
Ingólfur Bender Björn Berg Gunnarsson Hildur Kristmundsdóttir Jón Finnbogason