Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGKonur 50 plús FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512 5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Eftir því sem fólk eldist hefur
það meiri tilhneigingu til þess að
þyngjast og byrjar það oft þegar
fólk er á fertugsaldri. Aukin lík-
amsþyngd hjá bæði konum og körl-
um stafar oft af minni hreyfingu,
meiri hitaeininganeyslu og minni
brennslu.
Vöðvamassi minnkar með aldr-
inum. Við það hægir á efnaskiptum
þar sem vöðvar nota meiri orku en
fita, það þýðir að hitaeiningaþörf-
in minnkar. Haldist mataræði hins
vegar óbreytt samhliða minni hita-
einingaþörf eru allar líkur á að fólk
fitni með aldrinum. Þrátt fyrir að
líkaminn þarfnist ekki jafn mik-
illar orku og áður þarf hann alveg
jafn mikið á vítamínum að halda.
Því er ljóst að matarvenjur þurfa að
breytast eftir því sem árin líða.
Margir reyna að draga úr neyslu
hitaeininga þegar þeir uppgötva að
talan á vigtinni er farin að hækka.
Það er þó ekki sama hvernig það er
gert. Ef dregið er of mikið úr hita-
eininganeyslu bregst líkaminn
við með því að draga enn meira úr
efnaskiptahraðanum til að spara
orku. Það getur reynst mun árang-
ursríkara að hreyfa sig meira og
skipta orkuríkum fæðutegundum
út fyrir hitaeiningasnauðari mat-
væli sem eru einnig bætiefnarík.
Reglubundin neysla á fjölbreyttu
fæði ásamt nægilegri vatnsdrykkju
er lykillinn að næringarlegu jafn-
vægi.
Konur byrja oft að þyngjast
nokkrum árum fyrir tíðahvörf.
Þetta er talið stafa af minnk-
andi magni af hormóninu estró-
gen. Vilji konur sporna við þessari
þróun ættu þær þó ekki að einblína
um of á að draga úr neyslu hitaein-
inga, heldur frekar leggja áherslu á
litlar máltíðir sem innihalda mikið
af bætiefnum. Þær ættu einnig að
leggja áherslu á aukna hreyfingu
til þess að draga úr þyngdaraukn-
ingunni og til að styrkja líkamann.
Með hækkandi aldri aukast
líkur á beinþynningu, sérstaklega
hjá konum, og líkur á að hjarta-
og æðasjúkdómar geri vart við
sig aukast. Reglubundin hreyfing
getur hjálpað í baráttunni við þessa
aldurstengdu sjúkdóma. Hressi-
legir göngutúrar í 20-30 mínút-
ur, þrisvar til fjórum sinnum í
viku, geta bætt heilbrigðum árum
við lífið. Almenn hreyfing styrkir
beinin, bætir líðanina og það verð-
ur auðveldara að sofna vegna eðli-
legrar þreytu.
Konur byrja oft að
þyngjast nokkrum árum
fyrir tíðahvörf. Þetta er
talið stafa af minnkandi
magni af hormóninu
estrógen.
Skaðsemi reykinga er Íslendingum alkunn. Færri vita
þó að konur eru sérstaklega viðkvæmar fyrir þeim og
tengist það hormónakerfi þeirra. Jóhanna S. Krist-
jánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri
Ráðgjafar í reykbindindi segir að samkvæmt Hagstof-
unni sé dánartíðni kvenna sökum reykinga þremur
prósentustigum hærri en karla.
Tíðahvörf geta orðið allt að tveimur árum fyrr hjá
konum sem reykja og þegar komið er yfir fimmtugt
eykst hættan á hjarta- og æðasjúkdómum til muna.
Jafnframt aukast líkur á þvagleka, beinþynningu og
lungnakrabbameini.
Aldrei of seint að hætta
Eftir breytingarskeiðið finnst sumum konum til-
gangslaust að hætta að reykja því skaðinn sé hvort
sem er ekki afturkræfur. Jóhanna segir það af og frá.
„Það er alveg sama hvenær maður hættir að reykja,
það er alltaf ávinningur. Það tekur blóðrásarkerfið
ekki nema sólarhring að losa sig við koltvísýringinn
og auðveldar það öndun og eykur úthald. Sólarhringi
síðar er nikótínið farið úr blóðinu, æðarnar víkka og
bragðskyn verður næmara.“ Konur ættu því strax
að finna mun en langtímaávinningurinn er mik-
ill: „Lungun byrja auðvitað strax að hreinsa sig en
eftir þrjá mánuði eru bifhárin komin í eðlilegt horf
og hósti og önnur öndunarfæraeinkenni orðin mun
betri.“
Að lokum bætir Jóhanna við að allar konur ættu
að hafa í huga að þær eru fyrirmyndir barna sinna
og barnabarna.
Ráðgjöf og stuðningur
Margar konur óttast að í stað vindlinganna hlaðist á
þær aukakíló en Jóhanna segir það yfirleitt ekki vera
vandamál. „Þetta á við um konur sem skipta sígar-
ettunum út fyrir mat.“ Hún bætir við að heilbrigt líf-
erni verði að fylgja þessari lífsstílsbreytingu en lík-
amsrækt verði auðveldari með auknu þoli.
Það getur þó reynst þrautin þyngri að segja skilið
við reykingarnar. Jóhanna bendir á að fjölmörg úr-
ræði eru til fyrir reykingafólk á Íslandi. Ráðgjöf í reyk-
bindindi er gjaldfrjáls símaþjónusta þar sem starfa
hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu í tóbaksmeð-
ferð. „Sumir hringja inn með spurningu og vilja ekk-
ert meira en flestir þiggja að taka þátt í meðferðinni,“
segir Jóhanna og mælir eindregið með henni. „Rann-
sóknir sýna að mestu máli skiptir að fá ráðgjöf og eft-
irfylgni,“ bætir hún við en boðið er upp á eftirfylgni
í heilt ár.
Símanúmer ráðgjafarinnar er 800-6030 og sím-
inn er opinn alla virka daga milli klukkan 17 og 20.
Auk hennar bendir Jóhanna á spjallþráð á vefsíðunni
www.reyklaus.is þar sem fyrrverandi reykingafólk
deilir reynslu sinni og hjálpar þeim sem vilja hætta
að reykja.
Konur og reykingar
Konur eru viðkvæmari en karlar fyrir skaðsemi reykinga og með aldrinum
aukast líkur á sjúkdómum og öðrum fylgikvillum til muna. Úrræði fyrir fólk
sem vill hætta að reykja eru mörg á Íslandi.
Reykingar eru konum sérstaklega skaðlegar en það er aldrei of
seint að hætta. MYND/GETTY IMAGE
MASKARINN GERIR ÞIG 5 ÁRUM ELDRI
Konur sem eru komnar á miðjan aldur og þar yfir ættu ekki að nota
mikinn maskara á neðri augnhár. Þær eiga ekki heldur að mála svört strik
undir augun. Konur eldast um fimm ár séu þær með mikinn maskara,
segir Karim Sattar, þekktur förðunarmeistari. Hann hefur meðal annars
starfað með Claudiu Schiffer, Jane Fonda, Mónakó-prinsessunni og Tyru
Banks. Dökkur litur undir augum þyngir andlitssvipinn og gerir konur
þreytulegri og eldri, segir meistarinn. Rétt förðun skiptir því miklu máli
fyrir konur þegar þær eldast.
Karim hefur fimmtán ára reynslu í förðun og þykir mikill listamaður
í sínu fagi. Hann hefur starfað fyrir Vogue, Marie Claire, Glamour og
Cosmopolitan. Karim er Þjóðverji og helsta starf hans hefur verið fyrir
The Body Shop.
Hreyfing og hollt mataræði
mikilvægara með aldrinum
Að vera í góðu líkamlegu formi getur
hjálpað líkamanum í baráttunni við öldrun
og ýmsa fylgikvilla hennar.
NORDIC PHOTO/GETTY
ÚTSKRIFTARGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
10% afsláttur
Vertu vinur okkar á Facebook og fylgstu
með því sem gerist á afmælisárinu okkar!
www.facebook.com/sigurboginn
NÝ SUNDFÖT
FRÁ ANITA,
MIRACLESUIT
OG PENBROOKE
VERTU FLOTT
Í SUMAR
Í SUNDFÖTUM
FRÁ
SIGURBOGANUM
Stærðir 36-54
SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ
Laugardaginn 16. júní verður
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið í 23.
sinn. Markmið kvennahlaupsins
er að hvetja og styðja konur á
öllum aldri til aukinnar heilsu-
eflingar en hlaupið er ætlað
konum á öllum aldri. Engin
tímataka er í hlaupinu og hægt
er að velja mislangar vegalengdir.
Kvennahlaupið er haldið eins
nálægt kvennafrídeginum 19.
júní og hægt er. Þannig er reynt
að höfða til samstöðu kvenna.
Fyrsta kvennahlaup ÍSÍ var haldið
í júní árið 1990 í tengslum við
Íþróttahátíð ÍSÍ .Þá tóku um 2.500
konur þátt en nú taka um 16.000
konur þátt á 90 stöðum hérlendis
og 16 stöðum erlendis.
Sjóvá hefur verið aðalstyrktaraðili
hlaupsins frá árinu 1993. Á vef
Sjóvá, www.sjova.is, má finna
allar upplýsingar um hlaupið,
sögu þess, hlaupastaði og þema
hvers hlaups. Þar má einnig finna
skemmtileg myndskeið og gott
myndasafn frá fyrri hlaupum.
Einnig má fylgjast með fréttum
af hlaupinu á Facebook-síðu
hlaupsins.