Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 46
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
Á hinu annars ruglingslega og
óaðlaðandi Hlemmsvæði í Reykja-
vík er hægt að njóta myndlistar
í nokkrum mæli. Svæðið hefur
enda í áratugi verið í nágrenni
við merkar listastofnanir eins og
Myndlista- og handíðaskólann –
síðar Listaháskólann – og Kjar-
valsstaði, að ógleymdu Gallerí
Hlemmi sem rekið var um nokk-
urt skeið við Hlemmtorgið.
Á Hlemmsvæðinu er nú hægt að
skoða myndlist á nokkrum stöðum.
Í sýningarglugga Arion bankaúti-
búsins, Rauðarárstígsmegin, hafa
verið um þó nokkra hríð til sýnis
tvö skemmtileg verk eftir Helga
Þórsson, málverk málað í líflegum
barnslegum stíl sem heitir Skóla-
ball og höggmynd úr bastkörfu og
pappamassa sem heitir Prófessor-
inn, í sama stíl og málverkið, af
manni með lampaskerm á höfðinu.
Hinum megin götunnar er hið
umsvifamikla Gallerí Fold með
mikið úrval myndlistar. Ekki
langt undan, að Hverfisgötu 61,
starfrækja nokkrir myndlistar-
menn gallerí Klósett, en það er
eins og nafnið gefur til kynna
staðsett inni á klósetti á vinnu-
stofum listamannanna. Þar standa
sýningar jafnan stutt yfir, eða
bara um opnunarhelgina sjálfa.
Sá sem síðast sýndi á klósett-
inu var listamaðurinn Gulli Már,
verkið „A Very Private Gentle-
man“. Þetta var ein stór ljósmynd
af manneskju á nærfötunum, konu
að því er virðist, sem stendur ber-
leggjuð með brúsa af barnaolíu í
vinstri hendi fyrir ofan óumbúið
rúm. Viðeigandi verk fyrir sýn-
ingarrýmið.
Yfir Hlemmnum sjálfum vakir
síðan útilistaverk Sigurjóns Ólafs-
sonar, Klyfjahestur, og virkar
sem jarðtenging í óreiðukenndu
umhverfi.
Úrval myndlistarviðburða við
Hlemm jókst nú nýverið þegar
félagarekna galleríið Kling og
Bang, sem er með höfuðstöðvar
sínar við Hverfisgötu í Reykjavík,
opnaði útibú úti á miðju gólfi á
sjálfum Hlemmi, þ.e. inni á stoppi-
stöðinni, og kallar sýningarstaðinn
Public Art Center – Kling og Bang
útibú.
Sýningarrýmið, boxið sem hýsir
sýninguna, er stór og myndar-
legur hvítur járnkassi með gleri
á öllum hliðum og lýsingu. Upp-
setningin er samt óþarflega hrá
ennþá með rafmagnssnúru hang-
andi druslulega ofan úr loftinu.
Fyrsti sýnandi í rýminu er Ragn-
ar Már Nikulásson með verkið
„Falinn – Gone“. Verk Ragnars í
kassanum er fallegt og jafnvel seið-
andi, á sinn látlausa „lágtæknilega“
hátt. Verkið sjálft er sjáanlegt lög-
reglustöðvarmegin, og samanstend-
ur af tveimur skáhallandi speglum
og í endanum er eins konar rafdrif-
in rúllugardína sem á hefur verið
spreyjuð gul lína. Saumuð sam-
skeytin spila einnig rullu í sýning-
unni og við sögu koma lausir endar
í efninu, málningarblettir og annað
ef vel er að gáð.
Aðalatriðið er hins vegar sjónar-
spilið sem verður til og það yfir-
bragð sem listamaðurinn hefur
valið og er í ágætum takti við
Hlemminn. Verkið minnir strax
á kviksjá. Rúllugardínan er á
stöðugri ferð og speglunin býr til
dáleiðandi myndir sem hægt er að
horfa á vel og lengi. Þetta er verk
sem kemur skemmtilega á óvart og
passar einkar vel inn í sýningar-
kassann sjálfan, eins og hann sé
órjúfanlegur hluti verksins.
Þóroddur Bjarnason
Niðurstaða: Sýning sem kemur
skemmtilega á óvart, en frágangur
hefði mátt vera betri.
DÁLEIÐANDI LÁGTÆKNI
FALINN - GONE Verk Ragnars kemur skemmtilega á óvart að mati gagnrýnanda, sjónarspilið er í ágætum takti við Hlemm og
speglunin býr til dáleiðandi myndir sem hægt er að horfa á vel og lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HLYNUR HELGASON Flytur fyrirlestur í
tengslum við Sjálfstætt fólk í dag.
Hlynur Helgason, myndlistar-
maður og heimspekingur, flytur
hádegisfyrirlestur í Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu í dag
undir yfirskriftinni Af auðveldi
og myndlistarheimi – lærdómur
dreginn af ástandinu.
Fyrirlesturinn er í tengslum
við sýninguna „Sjálfstætt fólk“
og er sá fjórði í röðinni af fram-
sögum og ræðum fræðimanna,
aðgerðarsinna og listamanna,
sem er hluti af sýningu Hlyns
Hallssonar og Jónu Hlífar Hall-
dórsdóttur, Kerfi. Sýningin er
hluti af dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík.
Fyrirlesturinn í Hafnarhúsinu
hefst klukkan 12.15 og stendur
til 12.45.
Hádegiserindi
í Hafnarhúsi
AUGLÝST EFTIR MYNDUM Á RIFF RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, auglýsir eftir íslenskum
kvikmyndum til að sýna á hátíðinni sem verður haldin dagana 27. september til 7. október 2012. Auglýst er eftir
leiknum kvikmyndum, heimildarmyndum og stuttmyndum. Skilafrestur fyrir myndir rennur út hinn 15. júlí næst-
komandi. Allar nánari upplýsingar má finna á www.riff.is.
Dodda Maggý verður með lista-
mannaspjall á sýningunni
Horizonic í Listasafni Árnesinga
á laugardag klukkan 15.
Horizonic er sýning sem fjallar
um rými og víðáttur í hljóðlist
og lýst sem „eins konar tilraun
til þess að endurskilgreina rými
með notkun hljóðs“.
Fyrir sýninguna vann Dodda
Maggý hljóðlaust myndband en
tónlistarlegur bakgrunnur henn-
ar hafði áhrif á það hvernig hún
nálgaðist gerð þess þar sem litir,
hreyfing og hrynjandi tengja það
tónlistarlegri upplifun. Á laugar-
dag gefst gott tækifæri til þess að
ræða um verkið og sýninguna við
listamanninn sjálfan, leita svara
og spyrja þeirra spurninga sem
vakna. Aðgangur að spjallinu er
ókeypis.
Listaspjall
í Hveragerði
DODDA MAGGÝ Ræðir sýningu sína
Horizonic á laugardag.
Vesalingarnir
– 9 Grímutilnefningar!
Vesalingarnir
Selma Björnsdóttir
Þór Breiðfjörð
Egill Ólafsson
Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir
Finnur Arnar Arnarsson
María Th. Ólafsdóttir
Lárus Björnsson og Ólafur
Ágúst Stefánsson
Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson og Sigurvald Ívar Helgason
Allra síðustu
sýningar!
15.06 – Örfá sæti laus
16.06 – Örfá sæti laus
21.06 – Uppselt
20.06 – Aukasýning
22.06 – Örfá sæti laus
23.06 – Aukasýning
9 G
RÍM
UTIL
NEFNINGAR
Breski leikarinn Ray Winstone
hefur bæst við leikhópinn í
fyrirhugaðri stórmynd Darrens
Aronofsky,
Noah, sem
stefnt er á að
tekin verði
upp að hluta
til á Íslandi í
sumar. Russell
Crowe fer með
aðalhlutverk-
ið en Jennifer
Conelly hefur
verið orðuð við
aðalkvenhlutverkið. Vefútgáfa
Guardian greinir frá þessu.
Ray Winstone sló í gegn með
frábærri frammistöðu í hinni
rómuðu Sexy Beast árið 2000.
Undanfarinn áratug hefur hann
fest sig í sessi með traustri
frammistöðu í bitastæðum auka-
hlutverkum, til dæmis í Óskars-
verðlaunamynd Martins Scor-
sese, The Departed.
Ray Win-
stone í Noah
RAY WINSTONE
Iceland colours + patterns nefn-
ist litaspjald sem Forlagið hefur
gefið út. Á spjaldinu eru sam-
ankomnir fjölmargir litir sem
finna má í íslenskri náttúru og
umhverfi, svo sem litur fjalla
hálendisins böðuðum í miðnætur-
sól, malarvega, bárujárnsþaka og
hraundranga.
Spjaldið er meðal annars hugs-
að sem innblástur við hvers kyns
listsköpun eða handverk og er
kjörið að hafa til hliðsjónar þegar
maður prjónar peysu eða málar
húsið, vilji maður sækja litina í
íslenskt umhverfi.
Textinn á spjaldinu er á ensku.
Hálendissól
og hraun
á litaspjaldi
Myndlist ★★★ ★★
Falinn - Gone
Ragnar Már Nikulásson
Útibú Kling og Bang, Hlemmi