Fréttablaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA
Björn Ingi Stefánsson, fram-kvæmdastjóri og Kríunes-bóndi, mælir með Alpha
Daily en hann hefur drukkið
drykkinn í um fjóra mánuði. „Því
meira sem ég drekk því meira
grennist ég. Löngun í sykur er
miklu minni eftir að ég byrjaði
að drekka Alpha Daily og
ég er allur orkumeiri og
frískari,“ segir Björn.
Hann segist ekki hafa
fundið áhrifin alveg frá
fyrsta degi en finnur
mikinn mun á sér nú
eftir að hafa drukkið
Alpha Daily-blönduna
í nokkurn tíma. „Nú
er ég kominn í ákveðið
neyslumynstur. Ég drekk
blönduna á hverjum
degi, nokkrum sinnum
á dag. Ég fæ ekki betri
svaladrykk og hann er
mjög góður við þorsta.
Ég finn líka mun á
húðinni, ég hef verið
með viðkvæma húð
lengi og er miklu
betri núna, ekki
eins þurr. Einnig
er ég laus við ein-
hvers konar óþol
sem ég þjáðist
af, ég fæ ekki
magaverki og
meltingin er öll
betri.“
Alpha Daily
fæst í Hagkaupi,
Víði, Fjarðar-
kaupum, Kosti,
Melabúðinni,
Heilsuhúsinu,
Lifandi markaði,
Garðheimum
og Blómavali.
Drykkurinn er í
glerflöskum sem
má skila til HP
Heilsu, Smiðju-
vegi 38 í Kópa-
vogi, og fá áfyll-
ingu. Ef skilað er
inn sex flöskum
fæst áfylling á
heildsöluverði.
GRENNIST AF ÞVÍ AÐ
DREKKA ALPHA DAILY
HP Heilsa kynnir Björn Ingi Stefánsson er
orkumeiri og grennri eftir að hafa drukkið Alpha
Daily í nokkra mánuði.
VATNSLOSANDI
EIGINLEIKAR
Blandan eplaedik
og hunang, sem
Alpha Daily saman-
stendur af, er þekkt
fyrir vatnslosandi
eiginleika sína og
hefur áhrif á bjúg
og bólgur. Hún
styrkir ónæmiskerf-
ið og hefur sýru-
stillandi áhrif.
Fjölbreytt og hollt
mataræði úr öllum
fæðuflokkum og
regluleg hreyfing
er leiðin til betra
lífs hvar sem við
erum stödd í til-
verunni. Regluleg
neysla eplaediks
er ein leið til að
bæta og styrkja
líkama okkar
svo við megum
enn frekar njóta
þess sem lífið
hefur upp á að
bjóða.
Dagný Alda Steinsdóttir stendur fyrir hópferðum til Indlands í haust fyrir
áhugafólk um jóga. Sjálf kynntist
hún jóga í Bandaríkjunum fyrir
löngu en segist ekki hafa lært
að meta það fyrr en hún fór til
Indlands: „Þar hitti ég í fyrsta skipti
mann að nafni Sajeevan, sem er
mikill jógameistari,“ segir Dagný
en hún hefur þrisvar í kjölfarið
boðið meistaranum til landsins til
að kenna Íslendingum jóga. „Hann
kom síðast í sumar. Þá ferðuðumst
við um landið og héldum námskeið
sem voru mjög vinsæl – nánast alltaf
fullmönnuð.“
Sajeevan býr í borginni Fort
Kochin við suðvesturströnd
Indlands en þangað er ferðinni
heitið í haust. Gist verður á fimm
stjörnu hóteli í útjaðri borgarinnar,
í fimm mínútna göngufjarlægð frá
miðbænum. Dagný segir að í ferðinni
verði rík áhersla lögð á jóga og
vellíðan. „Fólk kemur út á morgnana
í indversku náttfötunum sínum, rétt
nýbúið að opna augun. Þá tekur
við tveggja tíma jógastund undir
mangótré.“
Fyrrnefndur Sajeevan sér um jóga-
kennsluna en hún er hugsuð bæði
fyrir vana iðkendur sem byrjendur.
Eftir jógastundina er boðið upp
á nudd á hótelinu en það er svo-
kallað Ayurveda-lækninganudd sem
byggir á 3500 ára gömlum lækninga-
fræðum. „Fólk liggur og lætur hella
yfir sig heilu fötunum af olíu og svo
nudda konurnar það til lífsins,“ segir
Dagný.
Þrátt fyrir mikilvægi jóga-
stundanna og slökunar er einnig
lögð áhersla á að sjá og upplifa
hina einstöku menningu Indlands.
Boðið verður upp á margs konar
dagsferðir. „Við förum til dæmis
að skoða te-ekrur í fjalllendinu og í
leiðinni lítum við á villta fíla. Svo er
farið í síkisferðir á bambusbátum,“
segir Dagný en bætir við að fólk hafi
einnig mikinn frjálsan tíma sem það
geti nýtt að vild.
„Fólk er á hjólum að versla allan
daginn,“ segir hún og hlær. „Flestir
kaupa sér efni og fá svo skraddar-
ann í heimsókn til að sníða föt á sig.“
Hún bætir við að það sé margt að
sjá í Fort Cochin og enginn ætti að
þurfa að leita langt eftir nýjum upp-
lifunum.
Þetta er í þriðja sinn sem Dagný
fer með hópa til Indlands og stefnir
hún á að fara með þrjá hópa í haust.
Fyrsta ferðin verður farin 29. sept-
ember og eru bókanir hafnar. Hver
hópur er tólf nætur í þorpinu en
ferðalagið til Indlands tekur sextán
klukkustundir. Nánar má lesa um
ferðirnar og skoða myndir af aðstöð-
unni á heimasíðunni www.indland.
org. Þar eru einnig upplýsingar um
hvað þarf að hafa í huga fyrir brott-
för og hvernig bóka megi ferðirnar.
■ halla@365.is
STUNDAR JÓGA Á INDLANDI
HITTIR JÓGAMEISTARANN Dagný Alda Steinsdóttir leggur land undir fót í haust en þá mun hún fara með hóp af Íslendingum í jógaferð.
JÓGAKENNARINN
Dagný Alda fer með
hópa til Indlands til að
stunda jóga.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA
HAFIN!
Í kvöld á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS