Fréttablaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 24
19. JÚNÍ TÍMARIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS 61. ÁRGANGUR
Vitið þið til þess að lögreglan hafi nýtt
sér þau gögn sem þið færðuð þeim um
karla sem hafa reynt að kaupa vændi?
Við vitum ekki til þess að lögreglan
hafi nýtt sér gögnin. Aftur á móti hófu
lögreglan og Fréttablaðið samstarf og
Fréttablaðið útbjó nýjar vinnureglur til
að nota við móttöku smáauglýsinga sem
auglýsa nuddþjónustu. Því miður virðist
samstarfið aðeins hafa haft skamm-
vinnan árangur, því auglýsingarnar
hurfu aðeins um tíma.
Það má segja að við höfum orðið fyrir
vonbrigðum með viðbrögð lögreglunnar.
Eins og málum er háttað eru mál er
varða vændi og mansal undir sama
hatti hjá lögreglunni og nauðganir og
kynferðisbrot almennt. Bæði skortir
fé og mannafla í þennan málaflokk
og ekkert virðist eftir þegar kemur að
vændi og mansali sem virðist stundað
hér án mikillar hættu á afskiptum
lögreglu.
Stóra systir hefur ekki verið í beinum
samskiptum við lögregluna nema þegar
gögnin voru afhent í haust.
Hvernig hafa viðbrögðin í samfélaginu
við aðgerðum ykkar verið?
Almennt hafa viðbrögðin verið mjög
góð. Við höfum fengið mörg þakkarbréf
og hvatningu frá fólki. Auðvitað er ein-
hver hópur sem hefur eytt miklu púðri í
að tala um aðferðafræði Stóru systur og
umræðuna hefur því, eins og oft vill
verða í netheimum, borið af þeirri leið
sem okkur hefði þótt æskilegust, það er
að fjalla um raunverulega stöðu vændis
og mansals hér á landi. Það kom okkur
verulega á óvart hvað bæði fram boð
og eftirspurn er mikil.
Annað sem alltaf kemur upp í svona
umræðu er að þeir sem berjast gegn því
ofbeldi sem vændi og mansal er eru
sakaðir um tepruskap og siðapredikanir.
Þetta er grundvallarmisskilningur.
Í fyrsta lagi lítum við svo á að kynlíf
komi hvergi við sögu þegar ein mann eskja
kaupir aðgang að líkama annarrar
manneskju heldur á sér þá stað alvarlegt
ofbeldi. Ein manneskja kaupir sér vald
yfir annarri og við það skapast valda-
ójafnvægi sem brýtur á mannréttindum
þeirrar manneskju sem keypt hefur verið
vald yfir.
Varðandi siðaboðskapinn er það
þannig að það er bannað með lögum á
Íslandi að kaupa vændi. Lagasetningar
byggja að sjálfsögðu á siðferðilegum
grunni, enda eru þær tæki til að skapa
siðað samfélag.
Af hverju felið þið ykkur?
Við teljum ekki að við séum að fela
okkur. Nafn- og andlitsleysið hefur
19. JÚNÍ LAGÐI NOKKRAR SPURNINGAR FYRIR STÓRU SYSTUR
VÆNDI, 'BLÍÐUSALA KVENNA,
SKÆKJU LIFNAÐUR'. Í FORN-
ÍSLENSKU MERKTI VÆNDI
VONSKU EÐA ILLA HEGÐUN
OG VAR EINKUM NOTAÐ
SEM EIGNARFALLSFORLIÐUR
VÆNDIS-: VÆNDISFÓLK,
VÆNDISMAÐUR, VÆNDIS-
KONA. ORÐIÐ ER LEITT AF
LÝSINGARORÐINU VÁNDR.
SJÁ VONDUR. (HEIMILD:
ÍSLENSK ORÐSIFJA BÓK, 1989)
„EF VÆNDIS KAUP ENDUR MEGA VERA NAFNLAUSIR, AF HVERJU
ÞARF FÓLK SEM GAGN RÝNIR AÐ LÖGUM SÉ EKKI FRAMFYLGT AÐ
KOMA FRAM UNDIR NAFNI?“
VÆNDISKAUP
Á ÍSLANDI
Stóra systir
Það vakti töluverða athygli í október á
síðasta ári þegar Stóra systir boðaði til
blaðamannafundar í Iðnó og tilkynnti
að meðlimir samtakanna hefðu tekið
saman lista með 56 nöfnum og 117 síma-
númerum. Þessum nafnalista höfðu
Stóru systur safnað saman með því að
setja auglýsingar á einkamálasíður á
netinu þar sem vændi var boðið til sölu.
Stóru systur sýndu blaðamönnum brot
af þeim samskiptum sem þær höfðu átt
við vongóða vændiskaupendur og að
blaðamannafundinum loknum afhentu
þær lögreglu listann.
19. júní spurði Friðrik Smára Björgvins-
son, yfirlögregluþjón og yfirmann mið-
lægrar rannsóknardeildar, hvort nöfnin
og símanúmerin á listanum frá Stóru
systur hefðu nýst lögreglunni við rann-
sóknir á vændiskaupum. Friðrik Smári
sagði að ekki hefði verið stofnað til
sérstakrar rannsóknar út af nafnalist-
anum því hann væri „ekki gögn í saka-
máli“. Mannskapur hjá lögreglu væri
ekki nægur til að rannsaka vændiskaup
sérstaklega og nauðganir og kynferðis-
brot gegn börnum hefðu forgang.
margþættan tilgang.
Í fyrsta lagi þá er það bragð gegn þeirri
íslensku hefð að fara í manninn en ekki
boltann, eða svokölluð „argu mentum ad
hominem“-aðferð. Það skiptir engu máli
hverjar við erum, það sem skiptir máli
er það sem við viljum vekja athygli á; hér
virðist auðvelt að kaupa vændi þrátt
fyrir góð og skýr lög gegn því.
Í öðru lagi þá er sá hópur sem stendur
fyrir vændi beinlínis hættulegur og
rekstur vændis og mansals er nátengd ur
skipulögðum glæpasamtökum. Sá
hópur notar ekki „argumentum“ heldur
gengur skrefinu lengra en „ad hominem“
-hópurinn. Þótt við sjálfar séum tilbúnar
að leggja okkur í slíka hættu þurfum við
að hugsa um fjölskyldur okkar í því
sambandi.
Í þriðja lagi þá er þetta háðsádeila á
það hversu mikla vernd vændiskaup-
endur hafa fengið í réttarkerfinu. Ef
„Skilaboðin sem verið er að senda eru þau að
það þurfi að vernda vændiskaupendur fyrir geð-
veikri vændislöggjöf.“ Ljósmynd: Anton Brink.
vændiskaupendur mega vera nafnlausir,
af hverju þarf fólk sem gagnrýnir að
lögum sé ekki framfylgt að koma fram
undir nafni?
Hvað er næst á dagskránni í baráttu
Stóru systur gegn vændiskaupum?
Stóra systir er ekki með langtíma-
áætlanir en við erum ekki hættar og ef
við fáum góðar hugmyndir erum við
ekki lengi að hrinda þeim í framkvæmd.
Ætlið þið að birta listann sem þið
afhentuð lögreglunni?
Það kemur í ljós :)