Fréttablaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 46
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR34
SUMARFRÍIÐ
„Það geta allir fengið ís hjá okkur
og það þarf aldrei að skilja neinn
útundan þó hann sé með ofnæmi
eða neitt svoleiðis. Við erum með
eitthvað fyrir alla,“ segir Ásgeir
Baldursson, eigandi fyrirtækisins
Ísbílsins.
Nú í maí varð stór breyting á
rekstri Ísbílsins þegar ákveðið var
að byrja að hringja bjöllunni á höf-
uðborgarsvæðinu líka, en hingað
til hafa ísbílarnir aðeins keyrt um
úti á landi. „Við erum búin að setja
upp tuttugu leiðir í Reykjavík og
nágrenni, en þær enda örugglega á
að verða um 100 árið 2015 þegar við
stefnum á að vera komin með ferð-
ir um allt svæðið,“ segir Ásgeir og
bætir við að bensínkostnaður spili
tvímælalaust stórt hlutverk í rekstri
sem þessum, en að með töluverðri
hagræðingu hafi þó náðst að halda
ísnum á sama verði frá árinu 2010.
Ísbíllinn hefur verið á ferðinni frá
árinu 1994 og nú eru alls átta ísbílar
á landinu sem keyra eftir áætlun og
eru á hverjum stað á tveggja vikna
fresti. „Í upphafi fóru bílarnir bara
um sumarhúsahverfin og minni bæi
landsins en núna erum við farnir að
keyra um allt land, á öll pláss og í
allar sveitir. Ég hugsa að ég hafi
farið á hvern einasta sveitabæ á
landinu og í öll þorp,“ segir Ásgeir.
Í Ísbílunum er líklega að finna
mesta úrval landsins af frosnum
íspinnum, en þar eru seldar 43 mis-
munandi tegundir og til dæmis
hægt að fá sjö mismunandi tegund-
ir sem eru framleiddar í algjörlega
hnetufríu umhverfi. „Við erum með
ís frá Emmessís, Kjörís, Beint frá
bónda og að norðan og gerum okkar
besta til að þjónusta alla kúnnahópa
eins vel og möguleiki er á,“ segir
Ásgeir að lokum. - trs
Hringir bjöllunni í Reykjavík
„Við ætlum að fá innblástur frá náttúrunni,“
segir Jack Steadman, söngvari þekktu indírokk-
hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club sem
heldur tónleika í Hressingarskálanum ásamt
tónlistarkonunni Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur
annað kvöld. Tónleikarnir verða órafmagnaðir
og munu þau flétta tónsmíðar sínar saman. „Svo
verður eitthvað óvænt sem kemur út úr æfinga-
ferð til Vestmannaeyja.“
Þorbjörg er fyrrverandi meðlimur hljóm-
sveitarinnar Mukkaló og kynntist Steadman
þegar hann spilaði á Iceland Airwaves haustið
2010. „Meðlimir Mukkaló komu til kærustunn-
ar minnar og sögðust vera að spila á tónleikum,
sem við mættum á og þeir voru snilld.“ segir
hann og leggur áherslu á orðið „snilld“ með að
segja það á íslensku.
„Ég og kærastan mín keyrðum svo út á land
með þeim síðasta kvöldið okkar. Við fórum að
Seljalandsfossi og vorum þar allt kvöldið,“ segir
hann gáttaður yfir íslenskri náttúrufegurð og
þá sérstaklega birtunni á sumrin. „Ég kom út af
skemmtistað í fyrrinótt klukkan eitt og fríkaði
alveg út.“ Hann bætir við að Íslendingar hafi
meiri tíma fyrir vikið og að hann hafi blásið á
áhyggjur Þorbjargar af litlum æfingatíma þar
sem þau hefðu tvöfalt meiri tíma því það yrði
aldrei dimmt.
Í framhaldi af kynnum Bombay Bicycle
Club og meðlima Mukkaló fyrr um árið spil-
aði Mukkaló með þeim á tveimur tónleikum í
Queen Elizabeth Hall í London í desember 2010.
Spurður um gang mála hjá bresku sveitinni
svarar hann: „Við höfum verið að spila mikið
og erum að byrja að semja fyrir fjórðu plötuna
okkar, sem er væntanleg eftir ár.“
Tónleikarnir hefjast í Hressingarskálanum
í Austurstræti klukkan 22 og er aðgangur
ókeypis. - hþt
Söngvari Bombay Bicycle Club á Hressó
ÞEKKTIR SMELLIR Þorbjörg og Jack Steadman flytja
smelli Bombay Bicycle Club í bland við frumsamið efni
Þorbjargar á Hressó annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BJALLAN GÓÐA Ásgeir
og félagar hjá Ísbílnum
hringja bjöllunni sinni alls
staðar sem þeir koma, en
slagorð Ísbílsins er „Þú
þekkir mig á bjöllunni“.
Ný heimildarmynd Ragnhildar
Steinunnar Jónsdóttur um mann-
eskju sem leiðréttir kyn sitt verð-
ur frumsýnd 7. ágúst, eða á fyrsta
degi Gay Pride-hátíðarinnar.
„Þetta er búið að vera alveg ótrú-
lega erfitt verkefni og mikill rússí-
bani enda er þetta gífurlega mikil
tilfinningaleg flækja sem mann-
eskja fer í gegnum sem er að leið-
rétta kyn sitt. Samt sem áður er
þetta búið að vera rosalega lær-
dómsríkt,“ segir Ragnhildur Stein-
unn um gerð myndarinnar, sem
nefnist Hrafnhildur.
Hún fylgdi í fjögur ár eftir
manneskju sem fer frá því að vera
líffræðilegur karl sem breytist að
lokum í konuna Hrafnhildi. Fylgst
er með öllu ferlinu, þar á meðal
ferðum hennar til geðlæknis og
hormónameðferðinni. „Við fylgj-
umst með öllum þeim sálarflækj-
um sem hún gengur í gegnum og
hvernig kerfið tekur henni. Þetta
er bara upp og niður og veggir og
hindranir alls staðar. Svo er mjög
fróðlegt að komast að því hvort
þessi aðgerð veiti henni sálarró eða
hvort ný vandamál taki við,“ segir
Ragnhildur, en þeim spurningum
verður svarað í lok myndarinnar.
„Það sem er merkilegast við þessa
manneskju er að hún þagði yfir
þessu í 26 ár. Þessi þögn var við það
að ganga frá henni. Það voru í raun-
inni tveir valkostir, annaðhvort að
taka sitt eigið líf eða að stíga út úr
þessu og sem betur fer valdi hún
seinni kostinn.“
Innt eftir því hvers vegna hún
ákvað að gera myndina segir Ragn-
hildur: „Þegar ég var yngri þjálfaði
ég strák í fimleikum sem upplifði
sig sem stelpu. Hann var bara sjö
ára,“ segir hún og á þar við Völu
Grand. „Þá vissi maður ekki neitt
um þetta. Síðan þá hefur maður
RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIR: ÓTRÚLEGA ERFITT VERKEFNI
Sýnir mynd um transkonu
á fyrsta degi Gay Pride
FRUMSÝNIR
HEIMILDARMYND
Ragnhildur Steinunn frumsýnir heim-
ildarmynd um íslenska transkonu á
fyrsta degi Gay Pride, 7. ágúst.
Heimildarmynd Ragnhildar Steinunnar átti fyrst að fjalla um
Völu Grand. Þegar á reyndi ákvað Ragnhildur að fjalla frekar
um aðra transkonu. „Vala Grand er mjög ótýpísk transmann-
eskja. Oftast eru þetta einstaklingar sem vilja litla sem enga
athygli og vilja falla inn í samfélagið. Mér fannst hún í rauninni
ekki gefa raunsæja mynd af hugarheimi þessara einstaklinga og
ég ákvað því að leita annað.“
verið frekar forvitinn en aldrei
skilið þetta almennilega. Þetta var
tilraun mín til að átta mig betur á
hugarheimi þessa hóps,“ greinir
hún frá.
Myndin verður frumsýnd í kvik-
myndahúsum 7. ágúst og skömmu
síðar verður hún sýnd í Sjónvarp-
inu. Að sögn Ragnhildar er vel
við hæfi að frumsýna myndina
á fyrsta degi Gay Pride. „Trans-
hópurinn er eiginlega einu skrefi
á eftir samkynhneigðum en þetta
ár er mikið að gerast hjá trans-
hópnum. Í síðustu viku voru sam-
þykkt lög sem eiga að tryggja þess-
um einstaklingum jafna stöðu á
við aðra en það átti sér stað fyrir
nokkrum árum hjá samkynhneigð-
um. Barátta transfólks er rétt að
hefjast og almenningur er fyrst
núna að byrja að viðurkenna þetta
sem leysanlegan vanda.“
freyr@frettabladid.is
„Ég fer ekki í formlegt sumarfrí í
ár en er á leið til Bandaríkjanna
í júlí og fæ þá einn frídag. Svo fer
ég vonandi með vini mínum til út-
landa í lok sumars. Það er þó enn
óvíst hvert ferðinni er heitið.“
Fannar Sveinsson, annar umsjónarmanna
Hraðfrétta.
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FERSKT & ÞÆGILEGT
STÖÐUGT NÝJAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
HÆTTI VIÐ HEIMILDARMYND UM VÖLU GRAND