Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 4

Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 4
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR4 DÓMSMÁL Börkur Birgisson hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og ærumeiðingar gagnvart opinberum starfsmanni. Börkur situr í fangelsi, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás- ir og er grunaður um að hafa veitt samfanga sínum alvarlega áverka sem leiddu til dauða. Ann- þór Kristján Karlsson er einnig ákærður í líkamsárásarmálun- um og grunaður um að hafa orðið manninum að bana. Börkur og Annþór neituðu báðir sök í líkamsárásarmálunum þegar þeir komu fyrir dómara í héraðs- dómi Reykjaness í gær. - þeb Annþór og Börkur: Neita báðir sök GENGIÐ 19.06.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,2761 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,94 125,54 195,88 196,84 157,57 158,45 21,196 21,320 20,949 21,073 17,815 17,919 1,5825 1,5917 189,92 191,06 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is b ó k a b ú ð f o r l a g s i n s VIÐSKIPTI Sýknudómur yfir íslenska ríkinu vegna kröfu Toyota á Íslandi á hendur þess í síðustu viku er fordæmisgefandi að mati ríkisskattstjóra. Verði hann staðfestur í Hæstarétti mun dómurinn leiða til þess að margra milljarða króna endurálagning embættis ríkisskattstjóra (RSK) vegna svokallaðs öfugs samruna félaga standi. Forsaga málsins er sú að Berg- ey ehf., félag sem Magnús Krist- insson átti, keypti P. Samúelsson hf., sem átti Toyota á Íslandi, í desember 2005 á 5,6 milljarða króna. Bergey fjármagnaði kaup- in meðal annars með 3,25 millj- arða króna láni frá Landsbankan- um. Í kjölfarið tók P. Samúelsson ehf. Bergey yfir með öllum skuld- um og eignum og var því farið að fjármagna kaupin á sjálfu sér að stórum hluta. Svona snúningur kallast öfugur samruni. Í kjölfarið reiknaði hið nýja félag öll vaxtagjöld vegna láns- ins sem það veitti sjálfu sér til rekstrarkostnaðar og taldi þau þar með frádráttarbær frá skatti. Ríkisskattstjóri tók málið til skoðunar og úrskurðaði í nóvem- ber 2010 að þetta mætti ekki. Hann endurálagði því kostn- aðinn á Toyota á Íslandi ehf. Félagið, sem skipti um eigendur fyrir ári í viðamiklu skuldaupp- gjöri við Landsbankann, sætti sig ekki við úrskurðinn og höfð- aði mál á hendur íslenska ríkinu til að fá 93 milljónir króna endur- greiddar. Dómurinn féllst ekki á að vaxtagjöld væru frádráttar- bær frá skattgreiðslum og ríkið því sýknað af kröfunni. Skúli Eggert Þórðarson rík- isskattstjóri segir ekki hægt að líta öðruvísi á dóminn en að hann marki ákveðna stefnu. „Það er líklegt að það verði að líta svo á að þetta sé fordæmisgefandi dómur. Það eru nokkur önnur svona mál í pípunum. Ég reikna samt frekar með því að þessum dómi verði skotið til Hæstarétt- ar.“ Að sögn Skúla eru nokkuð mörg fyrirtæki í svipaðri stöðu og Toyota á Íslandi var í. Fjár- hæðirnar sem voru endurálagð- ar á þau séu þó ákaflega mismun- andi. thordur@frettabladid.is Fordæmisgildi dóms gæti kostað milljarða Dómur í máli Toyota gegn íslenska ríkinu í síðustu viku er fordæmisgefandi. Samkvæmt honum er vaxtakostnaður vegna öfugs samruna ekki frádráttarbær frá skatti. Tugir fyrirtækja hafa fengið sambærilega endurálagningu. ÁHRIF Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri segir ekki hægt að líta öðruvísi á dóminn að hann marki ákveðna stefnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gjaldabreytingar embættis ríkisskattstjóra á félög og fyrirtæki námu sex milljörðum króna á árinu 2011. Þær hafa rúmlega tvöfaldast frá árinu 2009. Á meðal þeirra mála sem leiða til endurálagningar vegna gjaldabreytingar er ólögmæt nýting á tapi við samruna félaga, ólögmæt úthlutun arðs og svokallaðar öfugar yfirtökur þar sem gjaldfærslu á vöxtum lána sem tekin voru til að fjármagna yfirtökuna var hafnað. Á meðal þeirra sem hafa fengið tilkynningu um endurá- lagningu vegna þessa eru Skipti, móðurfélag Símans, sem þarf að greiða á bilinu 800 til 1.800 milljónir króna og Húsasmiðjan sem þurfti að greiða allt að 700 milljónir króna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins (SA), sagði í samtali við Fréttablaðið í janúar að hann teldi marga tugi fyrirtækja hafa fengið endurálagningu vegna öfugra samruna. Upphæðirnar væru afar háar og gætu í sumum tilvikum veitt fyrirtækjunum náðarhöggið. Gætu veitt fyrirtækjum náðarhögg VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 31° 23° 20° 22° 26° 19° 19° 26° 20° 31° 34° 29° 19° 23° 19° 19° Á MORGUN Hæg breytileg átt víða um land, heldur meiri vindur allra syðst. FÖSTUDAGUR Hæg breytileg átt víða um land, heldur meiri vindur allra syðst. 14 14 12 15 15 13 13 1412 17 11 11 11 10 10 10 10 10 7 6 9 4 5 2 3 3 3 2 8 3 2 3 SKIN OG SKÚRIR verða á landinu næstu daga. Úr- komumagnið verð- ur þó ekki mikið og líkur á skúrum minnka eftir morgundaginn. Á milli skúra verður nokkuð bjart. Hitinn hækkar lítillega þegar líður á vikuna og verður víða á bilinu 10 til 17 stig. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður PERSÓNUVERND Íslandsbanki braut lög um persónuvernd með því að senda fermingarbarni og foreldr- um þess auglýsingu í pósti. Fjöl- skyldan var öll bannmerkt í Þjóð- skrá. Foreldrar barnsins kvörtuðu til Persónuverndar sem hefur nú úrskurðað að bankinn hafi brotið lög. Í úrskurðinum segir að bank- inn hafi brotið gegn 28. grein laga um persónvernd þar sem bannlisti Þjóðskrár var ekki virtur í þessu tilviki, eins og lög kveða á um að beri að gera. - sv Íslandsbanki sendi barni bréf: Braut lög um persónuvernd JAFNRÉTTISMÁL Ríkislögreglu- stjóri hefur skipað Katrínu Salimu Dögg Ólafsdóttur, verkefnastjóra í mannauðs- og tölfræðideild ríkis- lögreglustjóra, sem jafnréttis- fulltrúa lögreglunnar til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í til- kynningu frá embættinu. Jafnréttisfulltrúi lögreglunn- ar starfar á landsvísu og fer með umsjón jafnréttismála. Ríkislög- reglustjóri hefur gefið út jafnrétt- isáætlun fyrir lögregluna, stefnu og framkvæmdaáætlun, til þriggja ára, sem tók gildi 12. júní 2012. Skipuð til þriggja ára: Jafnréttisfulltrúi hjá lögreglu JAFNRÉTTISMÁL Innanríkisráðuneyt- ið ætlar að leiðrétta kynbundinn launamun í ráðuneytinu. Við jafn- launaúttekt kom í ljós 2,5 prósent óútskýrður launamunur meðal sér- fræðinga ráðuneytisins. Ráðuneyt- ið telur óviðunandi að konur og karlar njóti ekki sömu launa fyrir sömu störf. Þá fagnar ráðuneytið úttektinni sem gefur tækifæri til að leiðrétta þessa skekkju. Þetta er í fyrsta sinn sem jafn- launaúttekt er gerð í Stjórnar- ráðinu. Hún er framkvæmd innan allra ráðuneytanna. Jafnrétt- isáætlun skyldar ráðuneytin til að kanna árlega hvort kynbundinn launamunur sé fyrir hendi. - bþh 2,5% óútskýrður launamunur: Ráðuneytið leiðréttir laun FJÁRMÁL Ríkisendurskoðun telur að komast þurfi skýrar að orði um það í lögum en nú er að Land- helgisgæslunni sé heimilt að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila. Innanríkisráðuneytið þurfi að fylgjast með því að umsvif stofn- unarinnar erlendis komi ekki í veg fyrir að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu hér við land. Verkefni Landhelgisgæslunn- ar fyrir erlenda aðila byggja á ákvæði í lögum um stofnunina þar sem segir að henni sé, í samráði við ráðherra, heimilt að taka að sér ólögbundin verkefni með samn- ingum. Ekki er tekið sérstaklega fram að heimildin nái til verkefna erlendis. - shá Úttekt Ríkisendurskoðunar: Skýra þarf laga- heimildir LHG VÉLAKOSTUR Bæði flugvél og skip Gæsl- unnar hafa sinnt verkefnum erlendis. Gætu myndað stjórn í dag Ný ríkisstjórn gæti verið mynduð í Grikklandi í dag. Leiðtogi sósíalista- flokksins Pasok sagði þetta í gærkvöldi. Pasok, Nýi lýðræðisflokkurinn og vinstri demókratar hafa fundað um myndun stjórnar, en allir flokkarnir þrír eru hlynntir björgunaráætlun ESB og AGS. GRIKKLAND STJÓRNMÁL Borgarstjórn Reykja- víkur samþykkti eigendastefnu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á fundi sínum í gær. Reykjavíkur- borg á 94% hlut í fyrirtækinu en auk höfuðborgarinnar á Akranes- bær fimm prósenta hlut og Borg- arbyggð eitt prósent. Dagur B. Eggertsson, formað- ur borgarráðs, segir að samþykkt borgarstjórnar á eigendastefn- unni sé eigendum og fyrirtæk- inu sjálfu til hagsbóta. Stefna fyrirtækisins sé skýrari fyrir vikið sem og hlutverk allra sem að málum fyrirtækisins koma þ e g a r t a k a þurfi veiga- miklar ákvarð- anir. Í eigenda- stefnunni er me ð a l a n n - ars fjallað um hlutverk, fjár- hagsleg mark- mið, umboð og valdmörk, sam- skipti og skýrslugjöf og auðlinda- nýtingu og afgjald. Þá er kjarnastarfsemi fyrir- tækisins skilgreind sem rekst- ur vatns-, hita-, raf- og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu vatni. Loks er fyrirtækinu sett það markmið að skila eigendum sínum arði og veita viðskiptavinum þjónustu á sanngjörnu og samkeppnishæfu verði. Unnið hefur verið að gerð eigendastefnunnar um nokk- urt skeið og voru drög að henni kynnt á síðasta ári. Síðan bárust ýmsar umsagnir frá samtökum og einstaklingum og er eigenda- stefnan nú fullkláruð. - mþl Meðal annars fjallað um hlutverk, markmið, umboð og valdmörk og samskipti: Eigendastefna um OR samþykkt DAGUR B. EGGERTSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.