Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 6

Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 6
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR6 HVER ÞREMILLINN? Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðu-leysi, slysagildrur og fleira. thremillinn@frettabladid.is SAMGÖNGUR Alþingismenn sam- þykktu fjögurra ára og tólf ára samgönguáætlanir í gær. Þær voru samþykktar samhljóða, 43 þingmenn greiddu þeim atkvæði sitt. Ýmsar breytingar voru gerðar á frumvörpum ráðherra og komu flestar frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar. Þá var samþykkt breytingar- tillaga átta þingmanna Norð- austurkjördæmis um að miða rannsóknum og undirbúningi Seyð- isfjarðarganga þannig að hægt sé að hefja framkvæmdir við þau samhliða Norðfjarðar- og Dýra- fjarðargöngum. Framkvæmdum við Norðfjarð- argöng verður flýtt og munu þær hefjast á næsta ári. Settir verða 1,2 milljarðar í verkefnið þá og 2,5 árið 2014. Það verður því mikið um gangaboranir á næstunni, því Alþingi samþykkti nýverið heimild til fjármálaráðherra um lán vegna Vaðlaheiðarganga, en þau göng verða tekin út fyrir samgöngu- áætlun. Við þetta bætist að í langtíma- áætluninni er gert ráð fyrir að Norðfjarðargöngum verði lokið á öðru fjögurra ára tímabili áætl- unarinnar, með alls 6,8 milljarða króna framlagi. Í framhaldi af því verða lagðir sex milljarðar króna í önnur jarðgöng. Þá verður fram- kvæmdum við Dýrafjarðargöng flýtt og þeim lokið 2018. Fé til jarðganga næstu árin hleypur því á tugum milljarða. Á meðal breytinga sem nefndar- meirihlutinn lagði til var að verja 2,3 milljörðum króna til uppbygg- ingar nýs Herjólfs og til fram- kvæmda við Landeyjahöfn, einum milljarði árið 2013 og 1,3 milljörð- um árið 2014. Af þessu fé er 440 milljónum króna varið í hlutafjárframlag til hlutafélags um kaup á nýrri ferju með þátttöku Vestmannaeyjabæjar, 60 milljónum króna til þarfagrein- ingar, hönnunar og tankprófana á nýrri ferju og 1.800 milljónum í framkvæmdir við Landeyjahöfn. kolbeinn@frettabladid.is Tugir milljarða í jarðgöng næstu árin Alþingi gerði ýmsar breytingar á samgönguáætlun sem samþykkt var í gær. Norðfjarðargöngum verður flýtt og fé sett í rannsóknir á Seyðisfjarðargöngum. 2,3 milljarðar fara í nýjan Herjólf og Landeyjahöfn. Bora á fjölda jarðganga. LANDEYJAHÖFN Alls fara 1,8 milljarðar króna í framkvæmdir við Landeyjahöfn á fjögurra ára samgönguáætlun. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Samgönguáætlun 2011 til 2014 gerir ráð fyrir að tæplega 21 milljarður fari í málaflokkinn á næstu fjórum árum. Til viðbótar bætast markaðar tekjur til vegamála, svo sem bensíngjald, upp á rúmlega sex milljarða króna. Hér má sjá skiptinguna eftir málaflokkum í milljónum króna: Siglingamál 6.534 Flugmálastjórn 958,3 Vegaáætlun 10.682* Umferðaröryggisáætlun 1.360 Samtals 20.673,7 *Við bætast markaðar tekjur upp á 60,5 milljarða króna. 21 milljarður úr ríkissjóði á fjórum árum Nokkuð hefur borið á því að rusli og drasli sé fleygt við hlið gömlu starfsstöðvar Sorpu við Mið- hraun í Garðabæ. Þar er engin starfsemi eins og stendur. Þegar ljósmyndara bar að garði síðdegis í gær stóð sófi á gangstéttinni við hliðið. Það er ekki fyrsta mublan sem þar hefur verið skilin eftir. Sorpa lokaði starfsstöðinni um áramótin 2009-2010 og hefur hún verið lokuð síðan. Þar er jafnframt skilti sem bendir rusleigendum á að ný starfsstöð Sorpu fyrir svæðið sé á Breiðhellu í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Garðabæ er það bæjarins að hirða rusl við og á götum bæjarins. Allar ábendingar um drasl séu vel þegnar. Rusla- hirðunni fylgir þó kostnaður fyrir bæinn. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu segir að eitt- hvað beri á því, strax eftir að stöðvum hefur verið lokað, að fólk skilji rusl eftir við hliðið. Stöðin við Miðhraun hefur verið lokuð í rúm tvö ár. - bþh Drasli fleygt við yfirgefna lóð YFIRGEFINN SÓFI Skýrt kemur fram á skiltinu við yfirgefna lóðina að Sorpa hafi ekki starfsstöð þar og fólki bent á næstu stöð á Breiðhellu í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VIÐSKIPTI Eignabjarg ehf., dóttur- félag Arion banka, seldi á mánudag Pennann á Íslandi ehf. til fjárfesta- hóps undir forystu Ingimars Jóns- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Pennans. Hann starfaði hjá Pennanum þegar Gunnar Dungal átti hann, en Gunnar seldi Penn- ann í júní 2005. Auk Ingimars leiða Ólafur Stef- án Sveinsson og Stefán D. Frank- lín eigendahópinn. Kaupverðið fæst ekki uppgefið. Samkvæmt svari Arion banka við fyrirspurn Frétta- blaðsins er það trúnaðarmál. Penn- inn á og rekur verslanir Eymunds- son, Pennans, Griffils og Islandia. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Arion banki tók Pennann ehf. yfir í mars 2009 og stofnaði nýtt félag utan um rekstur hans. Um átta milljarða króna skuldir voru skildar eftir í þrotabúi gamla Penn- ans og um 1,2 milljarða króna skuld við Arion var breytt í nýtt hlutafé þegar nýja félagið var sett á fót. Penninn hafði því verið í eigu bankans í 39 mánuði þegar hann var loks seldur á mánudag. Ekk- ert eitt félag hefur verið lengur í eigu banka eftir hrun. Samkvæmt lögum mega bankar einungis eiga fyrirtæki í óskyldri starfsemi í tólf mánuði án þess að leita undanþágu vegna þess hjá Fjármálaeftirlitinu. - þsj Penninn var seldur til hóps fjárfesta á mánudag en kaupverðið er trúnaðarmál: Arion átti Pennann í 39 mánuði SELDUR Penninn á og rekur versl- anir Eymundsson, Pennans, Griffils og Islandia. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍÞRÓTTIR Frítt verður á æfinga- svæði fjölmargra golfklúbba í dag í tilefni af Golfdeginum. Þá verður börnum og unglingum kynnt íþróttin og kennd undir- stöðuatriði. Golfdagurinn er haldinn í til- efni af Ólympíuviku Íþróttasam- bands Íslands. Keppt verður í golfi á leikunum í Ríó árið 2016 í fyrsta sinn síðan árið 1904. Golf er næstvinsælasta íþróttin á Íslandi og eru um sautján þús- und félagar í golfklúbbum hér. - þeb Golfdagurinn er í dag: Æfingasvæði golfklúbba opin Vilt þú að sá tími sem einn ein- staklingur getur setið í embætti forseta Íslands verði takmark- aður? JÁ 60,4% NEI 39,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú ánægð(ur) með að þingmenn hafi komist að sam- komulagi um þinglok? Segðu þína skoðun á vísir.is. KJÖRKASSINN Sumarhappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Útdráttur 17. júní 2012 Toyota Yaris Terra 1.0 að verðmæti kr. 2.770.000 31661 58793 Ferðavinningar frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr. 500.000 12721 26751 52581 15481 32537 57360 21614 36466 64376 Ferðavinningar frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr. 250.000 Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu félagsins að Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535-0900. 361 1293 1859 2809 3296 4422 6155 6308 8070 8898 10528 10624 11873 12254 12892 13092 13563 14253 14918 16365 16871 17231 21190 21254 21416 22695 23680 26166 27010 28420 30559 31461 31933 32973 33745 34286 36054 37412 39403 40905 41325 42435 42571 43632 45468 45766 46136 46555 46985 49436 50626 52508 52815 53205 53547 53816 56964 58372 58665 59455 60644 61357 61414 61438 61972 62444 62465 62595 63576 64016 64113 64386 66728 68010 69844 71262 72252 72803 74929 75631 76372 78493 79895 STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast glæsilegt grill. ER VINN INGS SKÍFA Í PAK KANU M ÞÍNU M? VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT WEBER GRILL? 2 x Weber E310 kr. 132.990 28 x Weber Smokey Joe kr. 16.950

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.