Fréttablaðið - 20.06.2012, Síða 37

Fréttablaðið - 20.06.2012, Síða 37
MIÐVIKUDAGUR 20. júní 2012 25 Tónlistarmaðurinn Bobby Brown gekk að eiga umboðs- mann sinn, Aliciu Etheredge, á Havaí á mánudaginn. Athöfnin var haldin að viðstöddum nán- ustu vinum og ættingjum þeirra en Brown kraup á kné og bað Etheredge á tónleikum með sveit sinni New Edition árið 2010. Brown skildi við söngkonuna sálugu Whitney Houston árið 2007 en þau eiga saman eina dóttur, Bobbi Kristinu Brown, sem er 19 ára gömul. Hún mætti ekki í brúðkaupið en samband feðginanna ku ekki vera upp á sitt besta þessa stundina. Giftir sig GIFTUR MAÐUR Bobby Brown giftist unnustu sinni Aliciu Etheredge á Havaí á mánudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY Sharon Osbourne brast í grát er hún ræddi veik- indi sonar sín í sjónvarpsþættinum The Talk fyrir stuttu. Jack Osbourne, sonur Sharon og Ozzy Osbourne, greindist nýverið með MS, aðeins 26 ára að aldri. Osbourne þakkaði fyrir allar þær heillaóskir sem borist hafa fjölskyldunni frá því að greint var frá sjúkdómi sonar hennar áður en hún brast í grát. „Það sem ég er að gera núna hjálp- ar engum því ég er full sjálfsvorkunnar. Þá er betra að hugsa jákvætt,“ sagði Osbourne sem er einn af þáttastjórnendum The Talk sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni CBS. Pabbi Jacks, rokkarinn Ozzy Osbourne, hefur hvatt son sinn til að fá álit hjá fleiri læknum. „Ég var ranglega greindur með MS,” sagði hann. Grét vegna Jack GRÉT Í BEINNI Sharon Osbourne brast í grát er hún ræddi veikindi sonar síns. NORDICPHOTOS/GETTY Karlfyrirsætan David Gandy hefur barist ötullega fyrir launa- jöfnuði innan fyrirsætubransans, en kvenfyrirsætur fá að jafnaði töluvert hærri laun en karlfyrir- sætur. Að auki segir Gandy að sumar ofurfyrirsæturnar séu hortugar og erfiðar að vinna með. „Mér semur ekki vel við Gisele Bündchen. Við rífumst mikið og finnst ekki gaman að vinna saman. Við erum vissulega hepp- in með útlitið en við björgum ekki mannslífum með starfi okkar og mér mun aldrei semja við mann- eskju sem telur sig betri en annað fólk. Mitt ráð til upprennandi fyrirsæta er einfalt: Ekki ofmetn- ast þrátt fyrir velgengni,“ sagði Gandy. Ekki hrifinn af Bündchen EKKI VINUR BÜNDCHEN David Gandy segist ekki hafa gaman af því að vinna með Gisele Bündchen. NORDICPHOTOS/GETTY Ungstirnið Justin Bieber er orð- inn náinn fjölskyldu kærustu sinnar, Selenu Gomez, en hann sást á góðgerðakvöldverði ásamt móður Gomez og stjúpföður á dögunum. Bieber sat við fjöl- skylduborðið og þykir það merki um að Bieber hafi verið sam- þykktur af tengdafjölskyldu sinni en kærustuparið sat hlið við hlið við borðhaldið. Samkvæmt heim- ildum People voru Gomez og Bie- ber út af fyrir sig og vildu ekki stela athyglinni frá sjálfu mál- efninu en þau eru eitt frægasta kærustupar í heimi um þessar mundir. Hangir með tengdó NÁIN Fjölskylda Selenu Gomez bauð kærasta hennar, Justin Bieber, með sér á góðgerðakvöldverð á dögunum. NORDICPHOTOS/GETTY LEIÐIN TIL HOLLUSTU www.skyr.is Norræna matvælamerkið Skráargatið auðveldar þér að velja holla matvöru. Vörur með Skráargatinu verða að uppfylla ákveðin næringar- viðmið og teljast hollastar í sínum fæðuflokki. Skyr.is drykkirnir standast þessar ströngu kröfur, þú getur því treyst á hollustu Skyr.is.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.