Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 38

Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 38
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is UNNUR BIRNA KARLSDÓTTIR Fannst það kærkomin tilbreyting að stíga út úr glímunni við fræðin og heimildirnar og hverfa á vit skáldskaparins, sem hún fékkst við hvenær sem henni gafst laus stund undanfarin þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það kemur alltaf nýr dagur nefnist fyrsta skáldsaga Unnar Birnu Karlsdóttur, sem kom út hjá Bjarti á dögunum. Bókina skrifaði Unnur Birna samhliða dokt- orsritgerð í sagnfræði. Það kemur alltaf nýr dagur fjallar um Ásu, sem búið hefur í New York um skeið. Þegar maðurinn hennar yfirgefur hana fyrir aðra konu og faðir hennar deyr snýr hún heim á eyðibýlið sem einu sinni var æsku- heimili hennar og við tekur upp- gjör við fortíðina. Þetta er fyrsta skáldsaga Unnar Birnu Karlsdóttur, sem er sagn- fræðingur að mennt. Hún varði doktorsritgerð sína um náttúrusýn Íslendinga fyrir tveimur árum og skrifaði skáldsöguna með fram henni og öðrum verkefnum. „Þetta byrjaði á því að ég fékk hugmynd að sögu,“ rifjar hún upp. „Ég fór að punkta hjá mér ýmsar hugleiðingar og hugdettur varð- andi hana og eitt leiddi af öðru. Fyrr en varði var ég langt komin með handrit að skáldsögu.“ Unnur Birna vann við skáldsög- una á kvöldin og um helgar eða hvenær sem það gafst laus tími. Hún segir það ekki hafa vafist fyrir sér að vera á kafi í fræða- heimunum á daginn en hverfa á vit skáldskaparins á kvöldin. „Ég átti ekki í neinum vand- ræðum með það, þvert á móti var það mjög kærkomin tilbreyting að stíga út úr hinni fræðilegu glímu; heilastarfsemin er öðruvísi þegar maður skrifar fræðitexta og skáld- skap. Doktorsritgerð leggur maður í dóm annarra og er sniðinn annar stakkur. Í skáldskap eru efnistökin frjálsari.“ Spurð út í efni bókarinnar segir hún lífið sjálft hafa látið sér það í té. „Maður heyrir sögur bæði frá fólki sem maður þekkir og þekkir ekki og fer að hugsa hvernig það er að vera manneskja í samtíma- heimi, að vinna með ást, sorg og svik. Þetta eru hin undirliggjandi þemu hjá mér, sem og minningar sem mér finnst heillandi viðfangs- efni; hvernig við minnumst yfir ævina, hvers við minnumst og vilj- um ekki minnast og hvernig það hefur áhrif á okkur og getur mótað ákvarðanir okkar, bæði góðar og vondar.“ Unnur Birna segir líklegt að hún eigi eftir að skrifa fleiri skáld- sögur en efast um að það verði á kostnað sagnfræðinnar. „Ég hef ástríðu fyrir hvoru tveggja og gæti líklega ekki af öðru séð. Mér finnst heillandi tilhugsun að sam- eina þessi tvö svið, til dæmis í sögulegri skáldsögu og á sjálfsagt eftir að skoða það í fullri alvöru. Af nógu er að taka í heimildum.“ bergsteinn@frettabladid.is Kærkomið að stíga út úr hinni fræðilegu glímu Kammerkórinn Schola cantorum syngur íslenskar og erlendar kórperlur í hádeginu í dag í Hall- grímskirkju í tilefni Alþjóð- legs orgel- sumars 2012 sem hófst um síðustu helgi. Þannig verður það alla mið- vikudaga í sumar klukk- an 12. Á sama tíma á fimmtu- dögum munu íslenskir orgelleik- arar leika á hið stóra og hljóm- mikla Klais-orgel og í þessari viku ríður Laszlo Petö, organisti Stykkishólmskirkju, á vaðið. Allir organistarnir gefa vinnu sína til styrktar viðgerðarsjóði orgelsins í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir standa í um hálfa klukkustund. Miðaverð er 1.500 krónur en ókeypis er fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. - gun Hádegistón- leikar í Hall- grímskirkju LASZLO PETÖ ORGANISTI ÞÝSKI SPUNATÓNLISTARMAÐURINN Christoph Schiller heldur tónleika í 12 tónum, Skólavörðustíg 15, ásamt Loïc Grobéty. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00. Næstu daga, 21. til 24. júní, verður Reggísumar í Bíói Paradís. Á þess- ari litlu kvikmyndahátíð verður sýnd ný heimildamynd um Bob Mar- ley, Marley eftir Kevin McDonald, auk heimildarmyndarinnar Rise Up og kvikmyndarinnar Rockers. Gestir munu einnig njóta lifandi tónlistar þessa daga, en fimmtu- daginn 21. júní mun reggíhljóm- sveitin Ojba Rasta spila eftir sýn- ingu á Marley, upp úr klukkan 22.30. Á föstudaginn 22. júní mun svo reggísveitin Amaba Dama spila fyrir gesti eftir sýningu á Rockers, upp úr klukkan 21.45. Auk þeirra mun plötusnúðahópur- inn RVK Soundsystem spila ljúfa reggítóna í sal fyrir sýningu og í hléi alla fjóra daga sýningarinnar. Það er einmitt RVK Soundsys- tem sem stendur fyrir sýning- unni í samstarfi við Bíó Paradís, en það er hópur fimm plötusnúða og tónlistarmanna, þeirra DJ Elv- ars, Gnúsa Yones, DJ Kára, Kalla Youze og Arnljóts úr Ojba Rasta. Hópurinn vill auka veg og virð- ingu reggítónlistar á Íslandi og stendur fyrir reglulegum reggí- viðburðum bæði á Hemma & Valda og Faktorý. Tveir dagar helgaðir reggíkvikmyndum OJBA RASTA Leikur fyrir gesti á Reggísumari í Bíói Paradís á morgun, eftir sýningu heimildarmyndarinnar Marley eftir Kevin McDonald. Heilsueldhúsið 1. vinningur: Chervrolet Cruze LTC sjálfskiptur. Nýr bíll frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 3.690.000 38039 2.-31. vinningur: Ferðavinningur að eigin vali fyrir 2 eða fleiri með Heimsferðum. Hver að verðmæti kr. 300.000 994 23420 35857 39015 46512 5000 25109 35976 39052 49477 13878 26253 36282 39162 49767 17338 29241 36334 39497 53413 18220 29698 37582 39795 57565 20166 31538 38111 43128 60187 32.-61. vinningur: Apple iPad spjaldtölva, 32GB 4G/Wi-Fi frá Epli.is. Hver að verðmæti kr. 144.900 203 9210 20183 32078 51617 1424 9673 22569 33531 52035 2188 11867 28586 35386 55207 4879 14132 30776 38780 56632 5228 18533 31044 40711 56940 7067 18873 32072 41727 57923 62.-105. vinningur: Gisting ásamt morgunverði í tvær nætur fyrir 2 auk kvöldverðar annað kvöldið hjá einhverju Fosshótelana. Hver að verðmæti kr. 60.000 1991 5218 16889 22041 25165 37229 47362 56910 2983 6102 20496 22630 25713 40533 47897 57234 3716 6586 20547 23214 31039 44119 48723 3813 7483 20892 23685 31635 45306 49663 4260 7880 21391 24021 33852 45746 51072 4342 11655 21471 24613 35266 45876 52421 Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindraafélagsins, Hamrahlíð 17. Upplýsingasími 525 0000. Birt án ábyrgðar VINNINGASKRÁ Vorhappdrætti 2012. Dregið 15. júní 2012

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.