Fréttablaðið - 20.06.2012, Qupperneq 40
28 20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR
Leikkonan Anne Hathaway fer
með hlutverk í söngvamynd-
inni Les Miserables og þurfti að
grenna sig töluvert fyrir það.
Hathaway segir í viðtali við tíma-
ritið Allure að það hafi reynst
henni erfitt að þola megrunar-
kúrinn sem hún var sett á.
„Ég er á sjötta degi í megrun
og kúrinn varð til þess að ég
fékk útbrot, sem er frábært. Það
jafnast ekkert á við það að borða
hummus og radísur allan daginn
og fá bólur þar að auki,“ sagði
leikkonan.
Hathaway fer einnig með hlut-
verk Kattarkonunnar í spennu-
myndinni The Dark Knight Rises
sem frumsýnd verður í lok júlí.
Óánægð
með kúrinn
„Ég spila á flest hljóðfæri á nýju
plötunni,“ segir Ólöf Arnalds, sem
leikur lög af væntanlegri breið-
skífu sinni, Sudden Elevation, í
bland við tónsmíðar af fyrri plöt-
um og eftir aðra tónlistarmenn á
tvennum tónleikum á Café Flóru í
Grasagarðinum á morgun og hinn.
Nýja platan er væntanleg með
haustinu og stýrir Skúli Sverris-
son, bassaleikari og tónskáld, upp-
tökum hennar og verður henni til
halds og traust í Grasagarðinum.
Tilefni tónleikanna eru sumarsól-
stöður og fylgir hún þar með eftir
sumar- og vetrarsólstöðutónleikum
sínum á síðasta ári.
„Platan verður öll á ensku, það
er breyting frá fyrri plötunum en
annars er ég að fara dýpra inn í
þá fagurfræði sem ég hef verið að
búa til í nokkur ár. Þetta eru stærri
útsetningar en ég hef gert áður,“
segir Ólöf sem spilar á ýmsa gítara,
strengi og syngur margar raddir í
nýju verkunum. Upptökum plöt-
unnar er lokið en hún er væntan-
leg í október. Á sama tíma koma út
þrjár smáskífur með b-hliðum frá
Ólöfu sem hafa að geyma ábreið-
ur. „Ábreiða fyrstu smáskífunnar
verður Mr. Tambourine Man eftir
Bob Dylan,“ segir Ólöf sem leggur
land undir fót í haust. „Ég mun setj-
ast aftur upp í flugvélina og spila
víða í Evrópu, Bandaríkjunum,
Ástralíu og Japan á næsta eina og
hálfa ári.“ - hþt
Leikur ný lög á Flóru
ALÞJÓÐLEG Ólöf spilar á flest hljóðfæri nýju laganna sem eru væntanleg með
haustinu. Eftir útgáfuna mun hún spila í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Japan.
ÓSÁTT MEÐ MEGRUN Anne Hathaway er
ósátt við megrunarkúrinn sem hún er á.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlist ★★★★ ★
Leyfðu ljósinu
Hildur Guðnadóttir
Leyfðu ljósinu er þriðja platan
sem Hildur Guðnadóttir, selló-
leikari og tónsmiður, gefur út hjá
enska fyrirtækinu Touch Records.
Touch starfar á mörkum nýklass-
ískrar tónlistar og raftónlistar og
Leyfðu ljósinu passar vel inn í
það umhverfi. Eins og Jóhann
Jóhannsson, sem einnig gefur
út hjá Touch, þá byrjaði Hildur í
poppinu, söng í hljómsveitinni
Rúnk og hefur spilað með hljóm-
sveitum á borð við múm, Stórsveit Nix Noltes og Stillupp-
steypu, en er nú komin yfir í aðra sálma.
Tónlistin á Leyfðu ljósinu er öll tekin upp „live“. Hildur
spilar á sellóið, syngur og notar raftól, m.a. til að vinna
með hljóðin, en hún gerir það allt saman á meðan á
upptökum stendur. Það er engu breytt eða bætt við
eftir á. Það eru tvö verk á plötunni, Prelude, sem er stutt
forspil og svo Leyfðu ljósinu sem er rúmar 35 mínútur.
Í Prelude er sellóið eina hljóð-
færið, en í Leyfðu ljósinu notar
Hildur meðal annars tólin sín
til þess að taka upp röddina og
spila hana aftur og býr þannig
til marglaga röddun. Þegar ég
hlustaði á plötuna fyrst hélt ég að
hún væri með kór með sér. Verkið
byrjar mjög lágstemmt með sellói
og einni rödd, en smám saman
bætast raddir og hljóð við verkið
og það stigmagnast og tekur
ýmsum breytingum. Hildur vinnur
líka með steríóhljóminn, tónlistin
ferðast á milli hátalaranna sem
bætir í þá tilfinningu að þarna sé
hópur flytjenda að verki, en ekki
ein manneskja.
Á heildina litið er þetta mjög
flott verk sem virkar best spilað á góðum styrk. Í senn
einfalt og margslungið.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Þriðja plata Hildar Guðnadóttur fyrir
Touch-útgáfuna er athyglisvert sambland af raftónlist og
nýklassík.
Einfalt en margslungið
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
WHAT TO EXPECT WHEN... KL. 5.45 - 8 - 10 12
PIRANHA 3D KL. 10.20 16
PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 16
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING LÚXUS KL. 5.35 - 8 L
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
PRIANHA 3DD ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10 16
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 10.30 16
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
STUNDUM ÞARFTU AÐ STÍGA
INN Í LÍF ANNARRA, TIL AÐ
SJÁ HVAÐ VANTAR Í ÞITT.
MYNDIN SEM ER AÐ SLÁ Í
GEGN UM ALLAN HEIM!
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS- ROGER EBERT
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
MOONRISE KINGDOM KL. 8 - 10.10 L
MIB 3 2D KL. 5.30 10
WHAT TO EXPECT 5.50, 8, 10.15
INTOUCHABLES - ISL TEXTI 4, 8
MADAGASKAR 3 3D 4, 6
MADAGASKAR 3 2D 4
PROMETHEUS 3D 10.20
SNOW WHITE 7, 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%
„Scott ... tekst að skapa rafmagnaða
stemningu í Prometheus“
-V.J.V., Svarthofdi.is
- Roger Ebert
EGILSHÖLL
12
12
12
10
16
16
16
16
V I P
12
12
12
L
L
L
L
L
L
L
ÁLFABAKKA
12
12
L
L
AKUREYRI
16
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND
MILEY CYRUS DEMI MOORE
12
12
12
L
L
L
KRINGLUNNI
12
12
16
KEFLAVÍK
L
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
FRÁ LEIKSTJÓRA HAIRSPRAY KEMUR
PARTÝMYND SUMARSINS
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
00
01
6
/1
2
Gildir til 30. júní
Lægra
verð
í Lyfju
20%
afsláttur
Lactocare daily
kemur jafnvægi á þarmaflóruna.
Lactocare travel
er talið fyrirbyggja meltingar-
óþægindi á ferðalögum.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas
MIÐVIKUDAGUR: UNG (GOODBYE FIRST LOVE) 17:50, 20:00,
22:10 SUMARTÍÐ (SUMMER HOURS) 17:50, 20:00 COOL CUTS:
LEGENDS OF VALHALLA-THOR 18:00 COOL CUTS: JAR CITY 20:00
COOL CUTS: LAST DAYS OF THE ARCTIC 22:00 TYRANNOSAUR
18:00 IRON SKY 22:10 BLACK’S GAME 20:00, 22:00
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA.
“Létt og
ánægjuleg.”
-The Guardian
“Einstök mynd.”
-The New York Times
21. JÚNÍ: MARLEY + REGGÍHÁTÍÐ!ALLT Á SÉR SÍNA TÍÐ
SUMARTÍÐGOODBYE FIRST LOVEUNG
Myndin sem
slegið hefur í
gegn í Evrópu
og vestanhafs
á undanförnum
vikum!