Fréttablaðið - 20.06.2012, Side 46
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR34
GOTT Á GRILLIÐ
„Við bjuggum okkur bara til ofur-
hetjubúninga,“ segir Örvar Helga-
son, háseti á frystitogaranum
Venusi, sem ásamt áhöfn sinni
blés til keppni um flottasta ofur-
hetjubúninginn á þjóðhátíðardag-
inn. „Þetta byrjaði allt með því að
við horfðum á heimildarmynd um
alvöru ofurhetjur í Bandaríkjun-
um. Svona ruglað fólk sem klæð-
ir sig upp í búninga og reynir að
stöðva glæpi á nóttinni,“ segir
Örvar. Eftir áhorfið hófu félagarn-
ir að útbúa eigin ofurhetjugervi og
héldu keppni þar sem þeir spröng-
uðu um togarann í búningunum í
tvo tíma. Ekki var þó hægt að velja
sigurvegara enda um of flotta bún-
inga að ræða að sögn Örvars.
„Við vorum komnir í þennan gír
eftir tíu daga úti á sjó. Hvað ætli
við gerum eftir fjörutíu daga. Það
er nefnilega alveg snargeggjað lið
hérna um borð,“ segir Örvar um
uppátækjasemi þeirra félaga sem
sigla nú um Reykjaneshrygginn og
stefna á að halda keppnina árlega.
„Við toppum þetta á næsta ári og
gerum líka dagatal.“ - hþt
Sjómenn héldu vígalega ofurhetjukeppni
UPPÁTÆKJASAMIR Áhöfn frystitogarans
Venusar var heldur skrautleg á þjóðhá-
tíðardaginn.
„Esjan er alltaf lúmsk,“ segir Sig-
urður Kiernan, framkvæmda-
stjóri Investum Holdings, sem
hyggur á 70 kílómetra hlaup
á Esjunni næsta laugardag í
nýja íslenska ofurhlaupinu Mt.
Esja Ultra Xtreme. Þátttakend-
ur hlaupsins geta valið milli
tveggja, fimm eða tíu ferða upp
og niður Esjuna, eða 14, 35 og 70
kílómetra.
Sigurður mun með hlaupi sínu
taka þátt í erfiðasta fjallahlaupi
sem haldið hefur verið á Íslandi,
en fjórir eru skráðir í sömu
vegalengd. Hann hóf að hlaupa
af alvöru fyrir rúmum þrem-
ur árum og hefur tekið þátt í
Laugavegshlaupinu og hlaupum í
Frakklandi, Bandaríkjunum og á
Kanaríeyjum. „Hlaupið á Kanarí
var 123 kílómetra langt og náði
þvert yfir eyjuna. Ég tók einnig
þátt í 85 kílómetra fjallahlaupi
í Bandaríkjunum í síðasta mán-
uði.“ Að þessu sögðu mætti ætla
að Esjuhlaupið væri lítið mál
fyrir svo vanan hlaupara. „Það er
ekkert létt að hlaupa Esjuna. Það
er margt sem getur komið upp á
og Esjan er mjög brött. Maður
þarf sérstaklega að passa sig á
að fara ekki of geyst á niðurleið.“
Sigurður segist velja fjalla-
hlaup umfram götuhlaup. „Þau
eru meira ferðalag og maður fær
að dást að náttúrunni.“
Hugmyndin að baki Esjuhlaup-
inu er að gefa fólki möguleika á
að safna punktum hérlendis fyrir
erlend hlaup. Rúmlega fimmtíu
hafa skráð sig en netskráningu á
hlaup.is lýkur á miðnætti í kvöld.
Jafnframt verður mögulegt að
skrá sig í versluninni Afreksvör-
um í Glæsibæ til lokunar á morg-
un. Nánari upplýsingar um hlaup-
ið má finna á esjuhlaup.is. - hþt
Hleypur 70 kílómetra á Esju
ERFIÐASTA HLAUPIÐ Sigurður Kiernan
mun hlaupa tíu ferðir upp og niður Esju
í erfiðasta hlaupi Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Það er ótrúlega skemmtilegt að
skrifa bók með karakterum sem
voru algjörlega lifandi í höfðinu
á manni,“ segir rithöfundurinn
Óttar Martin Norðfjörð.
Hann sendir í haust frá sér
skáldsöguna Blóð hraustra
manna. Hið óvenjulega er að hún
er framhald glæpamyndarinnar
Borgríkis sem kom út á síðasta
ári við góðar undirtektir. Til
stendur að byggja framhalds-
mynd hennar, sem er í undir-
búningi, að stórum hluta á sögu
Óttars. „Það er oft áskorun fyrir
rithöfunda að blása lífi í persón-
urnar í bókunum sínum en þarna
var ég að vinna með lifandi pers-
ónur,“ segir Óttar, sem átti því
auðvelt með að koma sér af stað
í skrifunum.
Leikstjóri Borgríkis, Ólafur
Jóhannesson, hafði samband við
hann í byrjun ársins og spurði
hvort hann vildi taka þátt í sam-
starfi hans og Hrafnkels Stefáns-
sonar en þeir sömdu handritið að
Borgríki. Þeir voru þegar búnir
að skrifa beinagrind að handriti
Borgríkis 2, eða Blóði hraustra
manna, eins og hún kemur til með
að heita, og vildu að Óttar hjálp-
aði þeim við að þróa hugmyndina
áfram. „Þetta er eitthvað nýtt og
það er kannski ástæðan fyrir því
að ég samþykkti að gera þetta.
Ég var með nýja bók í höfðinu
en síðan kom þetta á ská,“ segir
Óttar, sem hefur í gegnum árin
hjálpað nokkrum leikstjórum með
handritin þeirra. „Þetta er orðinn
„díalógur“. Stóra hugmyndin hjá
þeim var fín en það voru litlar
holur í henni hér og þar. Það er
langur vegur frá tuttugu blað-
síðna beinagrind í fjögur hundr-
uð blaðsíðna skáldsögu. Núna er
ég kominn með bók og þá fara
þeir að bregðast við henni. Þetta
er bolti sem við ætlum að kasta á
milli okkar.“
ÓTTAR MARTIN NORÐFJÖRÐ: BOLTI SEM VIÐ ÆTLUM AÐ KASTA Á MILLI
Samdi nýja skáldsögu
sem er framhald Borgríkis
Í Blóði hraustra manna er
haldið áfram með sögu aðal-
persónanna fjögurra sem Ágústa
Eva Erlendsdóttir, Ingvar E.
Sigurðsson, Sigurður Sigur-
jónsson og Zlatko Krickic léku
í Borgríki, auk þess sem ein
ný persóna er kynnt til leiks.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er líklegt að Þorvald-
ur Davíð Kristjánsson leiki
hana í myndinni en ekkert hefur
verið ákveðið í þeim efnum.
Stikla úr framhaldsmyndinni var
nýlega sýnd erlendum fjárfestum
og hún hitti í mark því dreifing-
arfyrirtækið Celluloid Dreams
tryggði sér sýningarrétt hennar
í Evrópu þrátt fyrir að enn eigi
eftir að taka hana upp. Verið er
að fjármagna myndina og reikn-
að er með frumsýningu eftir um
tvö ár.
Hvað varðar endurgerð Borg-
ríkis í Hollywood er vinna hafin
á vegum fyrirtækisins New
Regency við að skrifa handrit-
ið og samkvæmt því á myndin
að gerast í Chicago. Enn á samt
eftir að koma í ljós hvort endur-
gerðin verði að veruleika.
freyr@frettabladid.is
FRAMHALD BORGRÍKIS
Óttar Martin Norðfjörð hefur samið
bók sem er framhald glæpamyndar-
innar Borgríkis með Ingvari E. Sig-
urðssyni í einu aðalhlutverkanna.
Mér finnst best að grilla
kjúklingabringur og búa til
sérstaka sælkerafyllingu sem
ber heitið Hrafnkell Gunni
og inniheldur rjómaost, chili,
kóríander, sólþurrkaða tómata,
salt og pipar.
Þyrí Huld Árnadóttir, dansari og með-
limur listahópsins Garms Garmssonar.
FRÉTTIR
STÖÐVAR 2
Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
1316
1713
3631
3863
5105
6809
7716
9803
11279
12540
13217
13440
14790
15316
15406
15886
16731
17846
20086
21486
24814
25013
25160
25532
25686
26606
27820
28366
29573
30181
30269
30557
31855
33596
34544
34801
38236
39564
40848
40956
41681
42815
43442
44279
46684
47773
49036
49492
50253
50498
51172
51768
52328
53043
53710
55195
56752
57313
58485
61272
61277
61331
62648
63134
63509
64843
65549
65629
69309
69559
69664
72947
76528
77052
77516
78952
80061
80285
80345
82144
84056
84185
85595
86760
87384
88073
88357
89428
89742
90630
93740
94111
96738
98719
101988
106451
106964
107044
108671
111095
113084
113112
113732
115086
115662
116061
117956
118049
118433
119690
119785
121756
122033
123019
123630
123733
125903
127797
128723
128815
129493
130986
132282
132696
133359
133621
137568
138426
138487
140349
140395
141571
141976
142074
142129
142242
142290
143032
143894
144008
144587
148539
148930
149171
149707
3728
6524
8822
14630
19860
26254
28096
31859
34030
36371
37510
39935
41770
46374
46381
54266
54965
55665
61817
62595
63210
63397
67157
67607
70378
73312
75479
78462
79853
83515
85834
85936
88251
90313
94391
95264
95406
96134
100447
115062
118081
118280
118472
121340
122483
133857
136234
136416
147875
149276
Vinningar
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8, sími 540 1900.
Byrjað verður að greiða út
vinninga þann 2. júlí nk.
Bi
rt
án
á
by
rg
›a
r
Suzuki Kizashi, 5.880.000 kr.
3257
Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr.
142835
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 200.000 kr.
Sumarhappdrætti
Krabbameins-
félagsinsÚtdráttur 17. júní 2012
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 100.000 kr.