Fréttablaðið - 19.07.2012, Page 2
19. júlí 2012 FIMMTUDAGUR2
FÓLK „Mér finnst þetta ekki vera
hlutur sem verður til þess að eldri
borgurum líði vel,“ segir Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara,
um fyrirhug-
aða áfengissölu
á Hrafnistu í
Reykjavík.
E i n s o g
Frétta blaðið
skýrði frá í
gær er verið
að breyta borð-
sal heimilis-
fólks á Hrafn-
istu í kaffihús
þar sem hægt
v e r ð u r a ð
kaupa bjór og
vín. „Ég er nú
bindindismann-
eskja í eðli
mínu og finnst
þetta dálítið
furðulegt og
skil þetta ekki
almennilega,“
segir Jóna sem
kveðst ekki hafa heyrt af málinu
fyrr.
„Hins vegar hef ég heyrt frá
Vogi að það hafi aukist að það
séu eldri borgarar sem þurfi þar
að leita sér aðstoðar,“ segir Jóna.
Til stendur að opna sérstaka deild
fyrir aldraða þar.
Erling Garðar Jónasson, for-
maður Samtaka aldraðra, segir
málið viðkvæmt. „Á öllum aldurs-
skeiðum þurfum við að hafa visst
frjálsræði og aðgengi að samfé-
laginu. Það er grundvallar atriði
en aðgangur að áfengi í óheftum
mæli getur fyrir suma verið
mjög óheppilegt. Þess vegna þarf
að fara varlega,“ segir Erling og
undir strikar að mannréttindi
þessa hóps séu í húfi.
„Við skulum heldur ekki
gleyma því að fólk fer bara og
nær í áfengi ef það vill það. Ef
það kemst ekki sjálft þá sendir
það leigubíl eftir því. Þá verður
neyslan meiri og erfiðari og
meiri leyndarhjúpur yfir henni,“
segir Erling.
Jóna segist telja ýmislegt
mikil vægara fyrir eldri borgara
að gera en að hefja vínsölu á
hjúkrunarheimilum. „Kaffihús
væri allt í lagi að setja upp. Fólki
finnst oft gaman að setjast niður
saman og fá sér kaffi en það slær
mig frekar illa að það sé vínveit-
ingaleyfi þar,“ segir Jóna.
Erling minnir á að einangrun
gamals fólks sé oft mikil. „Þá
leita sumir á náðir lyfja eins og
áfengis til að eyða tímanum eða
lina þjáningar,“ segir hann og vill
gefa hugmyndinni á Hrafnistu
tækifæri. „Við skulum leyfa þeim
að prófa. Þeir eru með hjúkrunar-
lið á heimsmælikvarða þannig að
það er gætt að hverjum einasta
sjúklingi mörgum sinnum á dag.“
gar@frettabladid.is
Forystukonu illa við
vínsölu á Hrafnistu
Formanni Landssambands eldri borgara er illa við áformaða áfengissölu á
Hrafnistu. Formaður Samtaka aldraðra segir að ekki megi hefta eldri borgara.
Málið sé þó viðkvæmt því sumum öldruðum sé hætt við misnotkun á áfengi.
NÝI MATSALURINN Glæsilegur borðsalur í eins konar bókakaffisstíl verður opnaður á
Hrafnistu í haust. Þar verður selt áfengi til klukkan átta á kvöldin. MYND/HRAFNISTA
JÓNA VALGERÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
ERLING GARÐAR
JÓNASSON
LÖGREGLUMÁL Tvennt var hand-
tekið í Kópavogi í fyrrinótt eftir
að hafa unnið skemmdarverk á
íbúðarhúsi og veist að lögreglu-
mönnum.
Lögreglu barst tilkynning frá
íbúum um að fólkið, sem er á þrí-
tugsaldri, væri búið að brjóta rúðu
í útidyrahurð hússins og léti ófrið-
lega. Ekki liggur fyrir hvort það
hugðist brjótast þar inn.
Þegar lögregla kom á vett-
vang brást fólkið hið versta við
og sparkaði og sló til lögreglu-
mannanna, sem sakaði þó ekki –
að minnsta kosti ekki alvarlega.
Fólkið var flutt í fangaklefa, undir
talsverðum áhrifum vímugjafa, og
til stóð að taka af því skýrslu síð-
degis í gær. - sh
Sváfu úr sér í fangaklefa:
Vímaðir rúðu-
brjótar réðust á
lögreglumenn
UPPLÝSINGATÆKNI Ísland er í sjö-
unda sæti á lista landa Efna-
hags og framfarastofnunarinnar
(OECD) yfir fjölda áskrifta að
háhraðanettengingu hjá hverjum
hundrað íbúum. Hér eru tenging-
arnar 34,6 á hverja hundrað íbúa.
Sviss er hins vegar í fyrsta
sinn á toppi listans með 39,9
áskriftir á hverja hundrað í búa. Í
öðru sæti er svo Holland með 39,1
og svo Danmörk í þriðja með 37,9
áskriftir.
Af OECD löndunum 34 eru
fæstar áskriftir í Tyrklandi og
Mexíkó, 10,4 og 10,8. Meðaltalið í
OECD er 25,6. - óká
OECD telur háhraðatengingar:
Sviss trónir á
toppi listans
Land Alls Á 100 íb.
1. Sviss 3.125.000 39,9
2. Holland 6.498.000 39,1
3. Danmörk 2.100.521 37,9
4. Frakkland 22.615.000 35,9
5. Noregur 1.745.607 35,7
6. Kórea 17.859.003 35,4
7. Ísland 110.010 34,6
8. Bretland 20.419.899 33,3
9. Þýskaland 27.185.816 33,3
10. Lúxemborg 163.617 32,6
- - -
32. Síle 2.002.573 11,7
33. Mexíkó 11.723.336 10,8
34. Tyrkland 7.576.798 10,4
Heimild: oecd.org/sti/ict/broadband
Háhraðaáskriftir í OECD
NOREGUR Margir víkinganna sem
komu frá Noregi til Íslands, mögu-
lega þriðjungur þeirra, komu frá
norðurhluta Noregs en ekki vestur-
hlutanum eins og áður var talið.
Þetta er haft eftir pró fessornum
Alf-Ragnar Nielssen á frétta-
vefnum Tvedestrandsposten.no.
Prófessorinn er höfundur bókar-
innar Landnåm fra Nord en í henni
er fjallað um ferðir Norðmanna
frá Hálogalandi og Namdal. Hefur
prófessorinn fundið nákvæmlega
út hvaðan í Noregi 37 landnáms-
menn komu. - ibs
Norskur prófessor:
Víkingar komu
frá N-Noregi
KOSNINGAR Þrír fatlaðir kjósendur
lögðu í gær fram formlega kæru
til Hæstaréttar og kröfðust þess
að nýafstaðnar forsetakosningar
yrðu ógiltar.
„Kjósandi, sem ekki gat kosið
eigin hendi, átti aðeins tveggja
kosta völ. Annaðhvort beygja sig
undir þá framkvæmd, að aðstoð-
armaður hans kæmi úr röðum
kjörstjórnarmanna, eða víkja
af kjörstað án þess að taka þátt
í kjöri forseta,“ segir í kæru
þeirra Guðmundar Magnús-
sonar, formanns Öryrkjabanda-
lags Íslands, Ásdísar Jennu Ást-
ráðsdóttur og
Rúnars Björns
Herrera Þor-
kelssonar.
Þetta fyrir-
komulag hafi
leitt til þess
að kosningin
hafi ekki verið
leynileg, enda
miði megin-
reglan um að
kosningar séu leynilegar ekki
síst að því að vernda kjósendur
fyrir afskiptum hins opinbera.
Kjósendur hafi ekki ástæðu til að
bera trúnað til kjörstjórnarfull-
trúa, sem séu einmitt fulltrúar
hins opinbera á staðnum.
Í kærunni eru kosningarnar
bornar saman við kosningarnar
til stjórnlagaþings, sem voru
ógiltar. „Í hinum fyrri kann að
vera að áliti Hæstaréttar að
leynd kosninga hafi verið rofin,
en í þeim síðari var hún sannan-
lega og án nokkurs vafa rofin.
Hinar fyrri voru dæmdar ógildar
og hinar síðari eru óhjákvæmi-
lega ógildar með verulega þung-
vægari rökum,“ segir í kærunni.
- sh
Þrír fatlaðir kjósendur kæra nýafstaðnar forsetakosningar til Hæstaréttar:
Þungvæg rök fyrir ógildingu
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
LÖGREGLUMÁL Þriðjungi fleiri fíkniefnabrot komu til kasta
lögreglunnar á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili
í fyrra, samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra.
Alls komu 996 fíkniefnamál upp frá ársbyrjun og út
júní, samanborið við 768 mál í fyrra. Árið 2010 voru þau
713. Langstærstur hluti fíkniefnabrota, 72 prósent, er
vegna vörslu eða meðferðar þeirra, 9,7 prósent vegna
framleiðslu, tvö prósent vegna dreifingar fíkniefna og 5,5
prósent vegna innflutnings. Afgangurinn, um tíu prósent,
flokkast sem önnur fíkniefnamál, til dæmis þegar fíkni-
efni finnast á víðavangi.
Líkamsárásum hefur sömuleiðis fjölgað milli ára, úr 480
í 528, og eignaspjöllum úr 938 í 1.109.
Auðgunarbrotum hefur aftur á móti fækkað. Þannig
komu 775 innbrot á borð lögreglu á fyrri helmingi þessa
árs, samanborið við 885 í fyrra. Það er fækkun um tólf
prósent. Þjófnaðarbrotum hefur sömuleiðis fækkað veru-
lega, úr 2.435 í 1.859, sem er tæplega 23 prósenta sam-
dráttur.
Umferðarlagabrot hafa hins vegar færst í vöxt. Hrað-
akstursbrotum fjölgaði úr 14.061 í 16.454, eða um sautján
prósent, og ölvunarakstursbrotum úr 577 í 658, um fjórtán
prósent. - sh
Fleiri brjóta af sér í umferðinni í ár en í fyrra en þjófnaðarbrotum fækkar:
Fíkniefnabrotum fjölgar um þriðjung
KANNABISFRAMLEIÐSLA Einungis lítill hluti fíkniefnamála
sem upp koma snýr að framleiðslu eða sölu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Erlendur karlmaður
hefur verið handtekinn grunaður
um að hafa komið afritunar búnaði
fyrir í kortalesara hraðbanka í
miðborg Reykjavíkur. Málið kom
upp þegar kort viðskiptavinar fest-
ist í raufinni með þeim afleiðingum
að afritunarbúnaðurinn losnaði.
Ekki er talið að maðurinn hafi
náð að koma kortaupplýsingum í
umferð en hann var handtekinn á
fimmtudaginn fyrir viku á Akur-
eyri.
Búnaðurinn samanstendur af
kortalesara í kortaraufinni og
örsmárri myndavél sem beint er að
lyklaborðinu þar sem PIN-númer
eru slegin inn.
Síðast kom slíkt mál inn á borð
lögreglu í mars á þessu ári þegar
tveir rúmenskir kortaþrjótar voru
handteknir. - bþh
Erlendur maður handtekinn:
Kom afritunar-
búnaði fyrir í
hraðbönkum
Fækkar á Facebook
Notendum samskiptasíðunnar
Facebook hefur fækkað í Banda-
ríkjunum og Evrópu á síðustu
mánuðum. Þetta kemur fram í rann-
sóknarniðurstöðum greiningarfyrir-
tækisins Capstone Investments.
TÆKNI
Varð undir dráttarvél
Karlmaður á níræðisaldri rifbeins-
brotnaði þegar hann varð undir aftur-
hjóli dráttarvélar í Brynjudal í Hvalfirði
í gærkvöld. Slysið varð þegar verið var
að reyna að koma vélinni í gang með
því að láta hana renna af stað.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS
Ég er nú bindindis-
manneskja í eðli
mínu og finnst þetta dálítið
furðulegt.
JÓNA VALGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
FORMAÐUR LANDSSAMBANDS ELDRI
BORGARA
Elín, verða engir risar á
Baunagrasinu?
„Jújú, og Jói mætir.“
Elín J. Ólafsdóttir er einn skipuleggjenda
þjóðlagahátíðarinnar Baunagrassins á
Bíldudal.