Fréttablaðið - 19.07.2012, Síða 12
19. júlí 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
PRÓSENTA hækkun varð á verði aðgöngumiða í Þjóðleik-
húsið frá árinu 2001 til ársins 2011. Á sama tíma hækkaði verð á
vínarpylsum um 29 prósent samkvæmt Hagstofu Íslands.
Velferðarráðuneytið og Neytenda-
samtökin hafa undirritað nýjan
þjónustusamning um Leigjenda-
aðstoð Neytendasamtakanna og
mun samningurinn gilda til ársloka
2013. Með slíkum þjónustusamningi,
sem fyrst tók gildi 1. maí 2011, taka
samtökin að sér að leiðbeina og
aðstoða leigjendur í deilum þeirra við
leigusala.
Mikil þörf var fyrir slíka aðstoð,
að því er fram kemur á vef Neytendasamtakanna. Alls bárust 817 erindi til
Leigjendaaðstoðarinnar frá 1. maí 2011 til loka þess árs. Það sem af er þessu
ári hafa borist rúmlega 800 erindi til Leigjendaaðstoðarinnar.
■ Húsnæði
Samningur um leigjendaaðstoð
framlengdur
WOW air mun innan skamms bjóða upp á snjall-
símaforrit fyrir bæði iPhone og Android-síma þar
sem hægt verður að bóka flug, að því er vefurinn
Turisti.is hefur eftir Svanhvíti Friðriksdóttur, tals-
konu flugfélagsins. Þar segir hún að farþegar geti
haldið utan um bókun sína, fengið upplýsingar um
komu- og brottfarartíma ásamt því að geta skoðað
upplýsingar um áfangastaði. Á vefnum segir jafnframt
að málið sé til skoðunar hjá Iceland Express. Icelandair
er með sérstaka heimasíðu sem er hönnuð fyrir farsíma
með vafra.
■ Flugferðir
Mögulegt að bóka flug með snjallsímafor-
riti WOW air
Bandaríski vísindamaðurinn David Edwards og franski hönnuðurinn Philippe
Starck hafa þróað bragðúða undir heitinu Wahh sem seldur er í París og á
netinu. Úðinn er til með piparbragði og vodkabragði og er í umbúðum sem
eru á stærð við varalit. Síðarnefndi úðinn er hins vegar ekki eingöngu notaður
við matargerð ef marka má umfjöllun erlendra fjölmiðla. Fullyrt er að hægt sé
að finna fyrir ölvunaráhrifum sé úðað beint í munninn í stað þess að úða á
matinn. David Edwards hefur áður fundið upp koffínúða með kaffi- eða súkku-
laðibragði.
■ Matvæli
Úði með vodkabragði þróaður
fyrir matargerð
110
NEYTENDUR Verðmerkingum var
ábótavant í fimm af fimmtán
ísbúðum sem Neytendastofa gerði
athugun hjá.
Þetta voru Ísbúðin Garðabæ,
Ísbúðin Háaleiti, Ísbúðin Smára-
lind, Ísfólkið og Ísgerðin. Þeim
var gefinn frestur til að laga verð-
merkingar.
Allar nema ein ísbúð höfðu farið
að tilmælunum, þegar Neytenda-
stofa kannaði málin síðar.
Það var Ísbúðin í Háaleiti sem
fékk athugasemdir í seinni heim-
sókninni, en þar hafði hluti af sölu-
vörum verið verðmerktur en vörur
í kæli ásamt kökuþjónustu voru
enn án verðmerkinga. - ktg
Verðmerkingum ábótavant:
Vantaði verðmiða í ísbúðum
ÍS Í BRAUÐFORMI Verðmerkingar eiga
að tryggja gagnsæi í verðupplýsingum
svo auðveldara sé fyrir neytandann að
gera verðsamanburð. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Í BANKA Með því að nýta sér sjálfvirka þjónustu bankanna er hægt að komast hjá því að greiða ýmis gjöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það getur kostað 120 krónur
að fá yfirlit yfir reikning
afhent hjá starfsmanni í
bankaútibúi og 75 krónur að
hringja í þjónustuver banka
til að fá yfirlit yfir stöðuna
svo dæmi séu tekin. Við-
skiptavinir geta hins vegar
komist hjá þessum gjöldum
og fleiri með því að nýta sér
sjálfvirka þjónustu bank-
anna í eins miklum mæli og
hægt er.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir þjón-
ustugjöld geta átt fullan rétt á sér
óski viðskiptavinur eftir ákveðinni
þjónustu og ef greitt er sannvirði
fyrir þjónustuna, eins og hann
orðar það. „Gjöldin eiga að endur-
spegla kostnaðinn sem er á bak
við þjónustuna sem viðskiptavinur
óskar sérstaklega eftir. Ef gjöldin
væru ekki tekin í þeim tilfellum
væri verið að dreifa kostnaðinum
á alla viðskiptavinina. Það er lítið
hægt að segja um þessi gjöld ef um
raunkostnað er að ræða. Álagning
Hægt að komast hjá
þjónustugjöldum banka
Arion banki Íslandsbanki
Millifærsla í annan banka 110 kr. 125 kr.
Yfirlit fengið í banka 110 kr. 120 kr.
Yfirlit sent heim 110 kr. 120 kr.
Hringt í þjónustuver vegna stöðu 75 kr. 0 kr.
Hringt í sjálfvirkan þjónustusíma 0 kr. 0 kr.
Úttekt með debetkorti í banka 50 kr. 15 kr.
Dæmi um þjónustugjöld
á að vera takmörkuð en ekki ein-
hver tekjulind fyrir bankana.“
Að sögn Jóhannesar geta þeir
einstaklingar sem ekki eiga tölvu
eða kunna ekki á tölvu lent í því
að borga ýmis þjónustugjöld sem
aðrir geta komist hjá. „En við-
skiptavinir sem geta nýtt sér sjálf-
virka þjónustu eins og heimabanka
geta sparað sér ýmis gjöld sem
bankarnir eru með. Þeir geta til
dæmis látið vita að þeir vilji ekki
greiðsluseðil sendan heim, hvorki
frá banka né þeim aðila sem fær
greiðsluna. Viðskipta vinir geta
líka sparað með því að láta skuld-
færa lán á gjalddaga. Það er auð-
velt að fylgjast með stöðunni á
reikningunum í heimabanka og
það er einnig hægt að skoða þá
reikninga sem maður greiðir raf-
rænt.“
Á heimasíðum bankanna er
verðskrá yfir þau gjöld sem tekin
eru fyrir ákveðna þjónustu sem
starfsmenn bankans sjá um. Hjá
Íslandsbanka kostar það til dæmis
120 krónur að fá útprent af yfirliti
afhent í bankanum sjálfum. Það
er sama gjald og tekið er þegar
yfirlitið er sent heim til viðskipta-
vinar. Ekkert gjald er tekið þegar
hringt er í þjónustuver Íslands-
banka til að fá yfirlit yfir stöðuna.
Arion banki rukkar hins vegar
viðskiptavini um 75 krónur vegna
slíkrar þjónustu. Hvorugur bank-
inn tekur gjald þegar hringt er í
sjálfvirkan þjónustusíma til að fá
upplýsingar um stöðu og færslur.
„Við hvetjum neytendur til
þess að skoða öll þessi gjöld til
þess að þeir sjái hverjum þeirra
er hægt að komast hjá. Þannig er
hægt að spara sér peninga,“ segir
Jóhannes. ibs@frettabladid.is