Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 10
24. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR Smellugas Olís einfalt og þægilegt Smellugas – fyrir grillið, útileguna og heimilið á næstu Olís-stöð og hjá umboðsmönnum um allt land. PI PA R\ TB W A S ÍA 5 kg 11 kg 10 kg Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is F ÍT O N / S ÍA London / Edinborg / Köln verð frá: Þrusu þrenna! *Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar. Ferðatímabil: 25. júlí til 30. september 2012 14.900 kr.* F ÍT O N / S ÍA 12 TÍMA TILBOÐ ! frá hádegi til m iðnættis * ÚT MEÐ HÓPINN! Sendu okkur línu á hopar@icelandexpress.is og fáðu tilboð fyrir hópinn þinn. 200.000 h ótel í 165 löndum / 8 00.000 bíla r í 125 löndu m HÓTEL OG BÍLBÓKA ÐU MANNLÍF Þegar komið er í Kerl- ingarskarð á Snæfellsnesi blas- ir þar Kerling ein við á toppi Kerlingar fjalls og þó hún hafi hægt um sig hefur hún eflaust verið hin mesta ögrun fyrir hug- djarfa klifurmenn. Þó er aðeins vitað um einn sem farið hefur upp á Kerlinguna, ef svo mætti að orði komast, en það er eldhuginn Ágúst Bjartmars frá Stykkishólmi. „Það var árið 1939 en þá vorum við skátarnir þarna í grennd- inni og það þurft i nát t- ú r u l e g a a ð finna sér eitt- hvað að gera,“ segir Ágúst sem þykir ekki mikið til afreks síns koma. „Ég var með snæri og reyndi nokkrum sinnum að kasta lykkjunni yfir hausinn og svo þegar það tókst þá var ekkert annað að gera en að koma sér upp.“ Kerlingin er tutt- ugu og einn meter á hæð og þver- hnípt svo það er kannski ekkert að undra þó að mönnum fallist hendur undir pilsfaldi hennar. „Menn voru alltaf uppi í fjöllum á þessum tíma svo þetta þótti nú ekkert svakalegt,“ segir Ágúst hógvær. En hann atti ekki aðeins kappi við Kerlinguna því hann er einnig fimmfaldur Íslandsmeist- ari í badminton. Höfuðborgarbú- um þótti það mikil hneisa þegar Hólmari kom í bæinn og vann Íslandsmeistaratitilinn árið 1958. Þá lagði hann Wagner Walbom að velli en sá danski hafði verið Jótlands meistari. „Menn tóku þetta óstinnt upp og það var skor- að á mig að spila við hann aftur því menn voru sannfærðir um að þetta færi á annan veg ef við spiluðum aftur,“ segir Ágúst. „Ég sagði bara allt í lagi en þið verðið þá að koma hingað vestur og við spilum í Stykkishólmi.“ Leikar þessir fóru hins vegar á versta veg á Hólminum því Walbom fékk fyrir hjartað og var hætt kominn. „Þetta var vænn maður, hann tók öllu eins og góður íþrótta maður en það voru menn í Reykjavík sem öttu honum fram í þetta, í þá daga þótti mörgum það sárt að einhver utan af landi færi sigurför í bæinn.“ Ágúst er nú áttatíu og átta ára að aldri en ennþá ólgar blóð í æðum. Hann á helminginn af Bíldey og siglir þangað reglulega á trillunni sinni. „Ég er nú stundum skammaður fyrir að vera að fara þetta einn en þá vingsa ég bara farsímanum og svara því til að ég hringi bara ef mér þykir ástæða til,“ segir hann. jse@frettabladid.is Karlinn sem klifið hefur Kerlinguna Móbergsdranginn Kerlingin er ekki árennilegur. Þó er vitað um einn mann sem náði lykkju utan um haus hennar og kleif þar upp. Það er Ágúst Bjartmars en hann er einnig badmintonmeistari og siglir enn trillu sinni þó 88 ára sé. ÁGÚST BJARTMARS KERLINGIN Móbergsdranginn er ekki árennilegur enda er ekki vitað um nema einn sem hefur klifið hann, þá fimmtán ára. MYND/HARALDUR SIGURÐSSON Ýmsar þjóðsögur eru til sem eiga að útskýra tilurð Kerlingarinnar. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur sagði Fréttablaðinu eina slíka. „Tröllkerling ein var á silungsveiðum í Baulárvallavatni og bar vel í veiði,“ segir Haraldur. „En henni var örðug leiðin heim enda með þunga silungs- kippu á bakinu og sólin farin að gægjast við sjóndeildarhringinn. Þegar kerlingin er komin upp á háfjallið ná fyrstu sólargeislarnir á hana svo hún dagar þar uppi.“ Dagaði uppi eftir veiðar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.