Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 15
Unnur Kolka Leifsdóttir hefur þróað og blandað þrenns konar saltskrúbba eftir eigin uppskrift.
„Ég hef lengi verið áhugamanneskja
um húðumhirðu. Ég kynntist notkun á
saltskrúbbi fyrst þegar ég var að vinna
á spa-i. Þá blandaði ég saman sjávar-
salti og olíu og skrúbbaði fólk fyrir
nuddið. Ég prófaði þetta sjálf og varð
ástfangin,“ segir Unnur sem fór að þróa
eigin uppskriftir.
Grunnurinn í hugmynd Unnar er sá að
allt sem sett er á húðina fer inn í hana.
„Húðin „borðar“ í raun það sem sett er
á hana. Hún tekur inn næringu rétt eins
og við nærumst á mat og því er tilvalið
að næra hana á sannkölluðu ofurfæði.“
Unnur byrjaði á því að þróa eigin salt-
blöndu sem er gerð úr bólgueyðandi
söltum. Einnig eru uppbyggjandi efni fyrir
kollagen húðarinnar í blöndunni þannig
að með reglulegri notkun verður hún
stinnari. „Næst fór ég að prófa mig áfram
með olíur. Ég þróaði skrúbbana þannig
að hráefnin styrkja hvert annað. Einn
skrúbburinn, kaffi-súkkulaði skrúbbur,
er örvandi og vinnur á appelsínuhúð.
Annar er kókos-lime skrúbbur. Hann er
styrkjandi, græðandi og uppbyggjandi. Sá
þriðji er búinn til úr goji-berjum og app-
elsínu. Hann er frískandi og hressandi.
Skrúbbarnir eru allir andoxandi og bakt-
eríudrepandi,“ segir hún.
Saltskrúbb er aldagömul aðferð til
þess að viðhalda heilbrigði húðarinnar.
Saltið slípar húðina á mildan hátt, losar
hana við dauðar húðfrumur og „opnar“
hana svo að næringarefni eigi greiðari
aðgang. „Þegar við notum sápu tekur hún
húðfituna. Það er ekki gott því húðin er
sjálf alltaf að reyna að halda jafnvægi.
Þetta verður að nokkurs konar vítahring;
maður notar sápu og verður þurr og þarf
þá að nota krem. Skrúbbarnir eru algjör-
lega sápulausir og skilja húðina eftir
hreina og mjúka.”
Skrúbbarnir fást á nuddstofu Unnar,
Heilsubælinu, hjá Sölku forlagi og hjá
Krummagulli á Neskaupsstað.
■ lilja.bjork@365.is
FRÍSKANDI OFUR-
FÆÐA FYRIR HÚÐINA
FALLEG HÚÐ Unnur Kolka Leifsdóttir, heilsunuddari, þróar sína eigin salt-
skrúbba. Skrúbbarnir eru lífrænir og bakteríudrepandi og vinna með húðinni.
ANDOXANDI OG LÍF-
RÆNIR Skrúbbarnir
hennar Unnar eru nú
þegar til í þremur út-
gáfum. Fleiri tegundir
eru væntanlegar og
innan skamms verða
skrúbbarnir fáanlegir í
heilsubúðum. Þeir eru
allir lífrænir.
HUGSIÐ UM HÚÐINA Unnur
segir fólk ekki vera nógu meðvitað
um hvaða efni það setur á húð
sína. Húðin „borðar“ í raun það
sem sett er á hana og því má ekki
bera á hana hvað sem er.
MYND/ERNIR
STYRKJANDI FYRIR HENDURNAR
Hér er uppskrift að heimagerðu handabaði sem styrkir
hendurnar og byggir upp neglur. Blandið saman hun-
angi, þeyttri eggjarauðu og mjólk og látið hendurnar
liggja í baðinu í 10 til 15 mínútur. Skolið af með volgu
vatni.
Stuðnin
gs
stöngin
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig
á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
Yfir 500
0 noten
dur
á Ísland
i síðan
1999
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48
rautt st. 36-42
blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt
36-42
Verona
svart, hvítt
st. 36-41
Amsterdam
leður m/míkrófíber sóla
svart, hvítt
st. 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og
rúskinnssóla
st. 36-42
Boníto ehf. • Praxis
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 • www.friendtex.is • soo.dk
Opið mán. – fös. kl. 11–18. Lokað á laugardögum
Verð: 11.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 8.600 kr.
Verð: 10.900 kr.
Verð: 7.690 kr.
Verð: 6.990 kr.
fæst í B,C skálum á AÐEINS KR. 2.750,-
TILBOÐ TILBOÐ
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Útsalan
er hafin
Verð: 7.950 kr.
Fjölþrepa bakbrettið
Teygir á hrygg og bakvöðvum
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is