Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 8
24. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR8 SJÁVARÚTVEGUR Þrjár stjórnsýslu- kærur hafa borist úrskurðar- nefnd umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Skipulags- stofnunar um að leyfi Hraðfrysti- hússins Gunnvarar fyrir eldi á 7.000 tonnum af laxi og regnboga- silungi í Ísafjarðar djúpi skuli ekki háð umhverfismati. Þær koma frá Landssambandi veiðifélaga, rækjusjómönnum og síðan aðilum úr ferðaþjónustu. Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóri Gunnvarar, segir að áform fyrirtækisins geri ráð fyrir að geta hafið fiskeldið á næsta ári en nokkurra ára bið verði á því að leyfin verði fullnýtt. Fyrr- nefndar kærur geta þó tafið málið. Tugir starfa fylgja eldisstarf- seminni, segir hann. „Kerfið er illa í stakk búið til að takast á við þessi mál,“ segir Krist- ján og tekur þar undir með bæjar- ráði Vesturbyggðar sem er orðið langeygt eftir því að leyfismál frá Arnarlaxi komist á hreint. „Nú þegar hafa leyfismál í tengslum við uppbyggingu í laxeldi í Arnarfirði verið að veltast hjá stjórnvöldum í nokkur ár með tilheyrandi óvissu og töfum,“ segir í bókun bæjar- ráðs frá 12. júlí. „Sú óvissa hefur valdið fyrirtækjum, íbúum og sam- félaginu öllu miklum skaða. Er það mikið áhyggjuefni hvernig staðið er að þessum málum hjá stjórn- völdum.“ - jse Þrjár stjórnsýslukærur vegna sjö þúsund tonna laxeldis í Ísafjarðardjúpi: Telja ríkið vanbúið í leyfismálum UNNIÐ VIÐ ÞORSKELDI Á ÍSAFJARÐAR- DJÚPI Þegar leyfin eru komin á hreint hyggjast Gunnvararmenn leggja megin- áherslu á lax- og silungaeldi þó áfram verði átt við eldi á þeim gula. MYND/VALDIMAR INGI GUNNARSSON Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar 1. Í hvaða borg áttu sér stað óhugnanleg fjöldamorð í kvik- myndahúsi á föstudag? 2. Hvað heitir íslenski dansarinn sem mun taka þátt í setningarat- höfn Ólympíuleikanna í London? 3. Hvaða lið trónir á toppi Pepsi- deildar karla? SVÖR: 1. Aurora í Colorado í Bandaríkjunum 2. Thelma Christel Kristjánsdóttir 3. KR VEISTU SVARIÐ? Nú þegar hafa leyfismál í tengslum við uppbyggingu á laxeldi í Arnarfirði verið að veltast hjá stjórnvöldum í nokkur ár. KRISTJÁN G. JÓAKIMSSON VINNSLUSTJÓRI GUNNVARAR VIRKJANAMÁL Ekki náðist að afgreiða þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða á síðasta þingi. Lagaumhverfi varðandi virkjanir er því óbreytt og stefnu- mótun ríkisstjórnarinnar í þeim málum hefur ekki áhrif á útgáfu rannsóknarleyfa. Fjórar umsóknir um rann- sóknar leyfi eru til umfjöllunar hjá Orkustofnun og þar af eru þrjár á svæðum sem sett eru í bið- flokk í ramma- áætlun. Rannsóknar- leyfi er í raun aðeins rammi utan um rann- sóknir sem gera þarf og veitir ekki leyfi til að raska svæðum. Sækja þarf um slíkt sérstaklega. Komi slíkar umsóknir fram áður en rammaáætlun verður að lögum hefur stefnumótun áætlunarinnar engin áhrif á afgreiðslu um- sóknanna. Orkufyrirtæki geta því sótt um rannsóknarleyfi á svæðum sem sett eru í verndar- flokk í áætluninni. „Já, já. Rammaáætlun hefur ekkert lagalegt gildi,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumála- stjóri. „Við í stjórnsýslunni getum ekki farið eftir einhverjum frum- vörpum eða tillögum sem liggja frammi. Sérstaklega ekki með til- liti til þess að löggjafinn hefur haft þær undir höndum töluvert lengi án þess að samþykkja þær. Þá fer auðvitað að falla svolítið á þær.“ Eftir staðfestingu Alþingis á Árósarsáttmálanum gefur Orku- stofnun ekki lengur út rannsóknar- leyfi fyrir hönd ráðherra, heldur er útgáfan algjörlega á höndum stofnunarinnar. Tvö fyrirtæki hafa sótt um rannsóknarleyfi vegna hugmynda um virkjun í Skjálfandafljóti, sem gert er ráð fyrir að fari í biðflokk. Verði bið á því að rammaáætlun verði samþykkt getur sú staða komið upp að rannsóknir séu vel á veg komnar og leyfi hafi fengist fyrir rannsóknum sem fela í sér jarðrask. „Verði einhver tillaga samþykkt sem hefði það í för með sér að Skjálfandafljót lenti í biðflokki, þá breytist auðvitað lagaumhverfi rannsóknanna,“ segir Guðni. kolbeinn@frettabladid.is Engin stefna um virkjanir Þar til Rammaáætlun hefur verið samþykkt er stefna ríkisstjórnar í virkjanamálum aðeins orðin ein. Ekkert er því til fyrirstöðu að sækja um rann- sóknarleyfi á svæðum sem eru í verndarflokki. GUÐNI A. JÓHANNESSON STÓRA LAXÁ Í HREPPUM Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknarleyfi vegna hug- mynda um virkjun í ánni. Stóru Laxá er ekki að finna í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Orkustofnun hefur til umfjöllunar umsóknir um rannsóknarleyfi á þremur svæðum sem eru í biðflokki í rammaáætlun. ■ Íslensk vatnsorka ehf. hefur sótt um framlengingu á rannsóknarleyfi vegna hugmynda um Hagavatnsvirkjun. ■ Íslensk vatnsorka ehf. hefur sótt um rannsóknarleyfi vegna hugmynda um Búðartunguvirkjun í Hvítá ofan við Gullfoss. ■ Hrafnarbjargarvirkjun hf. og Landsvirkjun hafa sótt um rannsóknarleyfi vegna hugmynda um virkjun í Skjálfandafljóti. Ein umsókn er til umfjöllunar vegna svæðis sem ekki er að finna í rammaáætlun. ■ Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í Stóru-Laxá í Hrunamannahreppi. Umsóknir sem eru í meðferð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.