Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 17
■ Ólympíuleikarnir eru al-
þjóðlegt fjölíþróttamót. Þeir
skiptast í sumarólympíuleika
og vetrarólympíuleika. Fyrstu
sumarólympíu leikarnir voru
haldnir í Aþenu árið 1896 og
fyrstu vetrarólympíuleikarnir í
Chamonix í Frakklandi árið 1924.
Upphaflega voru þessi tvö mót
haldin á sama ári en frá árinu
1994 hafa verið tvö ár á milli
þeirra.
■ Ólympíuleikar nútímans eru
haldnir að fyrirmynd Ólympíu-
leikanna í Grikklandi til forna.
Þeir voru endurvaktir af
Frakkanum Pierre de Coubertin
seint á 19. öld.
■ Konur fengu fyrst leyfi til að
keppa á Ólympíuleikunum árið
1900.
■ Ólympíuleikarnir eru alltaf
kenndir við borgina sem þeir eru
haldnir í, ekki landið.
■ Fyrsta formlega opnunar-
atriði Ólympíuleikanna var sýnt
á Ólympíuleikunum í London
árið 1908. Opnunaratriðin þykja
órjúfanlegur hluti þeirra í dag og
leggur það land sem heldur leik-
ana hverju sinni yfirleitt mikinn
metnað í að gera opnunaratriðið
eins tilkomumikið og kostur er.
■ Síðasti gullverðlaunapeningur-
inn sem var alfarið úr gulli var
afhentur á Ólympíuleikunum árið
1912.
■ Í dag eru gullpeningar rúmlega
90 prósent silfur. Þeir eru húð-
aðir með sex grömmum af gulli.
■ Fyrstu sjónvarpsútsending-
arnar frá Ólympíuleikunum voru
sendar út árið 1936 en þá voru
leikarnir haldnir í Berlín.
■ Hringirnir fimm í Ólympíu-
fánanum eiga að tákna heims-
álfurnar Afríku, Asíu, Ameríku,
Eyjaálfu og Evrópu og samhug á
milli landanna sem þeim tilheyra.
Suðurskautslandið er undan-
skilið. Litir hringjanna voru
valdir þannig að öll þátttökulönd
væru að minnsta kosti með einn
litanna í fána sínum.
■ Ruðningur, golf og krikket eru
á meðal íþróttagreina sem keppt
hefur verið í á Ólympíuleikunum
en eru ekki lengur á lista.
■ Norðmenn hafa unnið flest
verðlaun á vetrarólympíuleik-
unum.
■ Bandaríkjamenn hafa unnið
flest verðlaun á sumarólympíu-
leikunum.
EKKI LENGUR
SKÍRAGULL
ÓLYMPÍUFRÓÐLEIKUR Sumarólympíuleikarnir í
London eru á næsta leiti og ekki úr vegi að skerpa
á nokkrum staðreyndum og skemmtilegum fróð-
leik. Vissir þú til dæmis að eitt sinn voru verð-
launapeningarnir sem afhentir eru úr skíragulli?
Nefkvef, hnerri og
kláði í nefi
eru helstu einkenni frjókornaofnæmis
Nýjung Sinose 100% náttúrulegt efni
sem úðað er í nef og kemur af stað öflugum hnerra
sem hjálpar til við að hreinsa ofnæmisvaka úr nefi en
í leiðinni róar það og ver með áframhaldandi notkun.
Sinose er þrívirk blanda sem
hreinsar,róar og ver. Hentar
einnig þeim sem þjást af stífluðu
nefi og nef- og kinnholubólgum.
Hentar öllum frá 12 mánaða aldri, á meðgöngu og meðan
á brjóstagjöf stendur. Slævir ekki, engin kemísk íblöndunarefni.
Ef það virkar ekki, þá má skila því innan 30 daga,
munið að geyma kvittunina!
Andaðu léttar og njóttu sumarsins með Sinose
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
PR
E
N
TU
N
.IS
30 daga
ánægjutrygging
Frekari upplýsingar www.gengurvel.is
100% HÁGÆÐA PRÓTEIN
HLEÐSLUSKYR ER HOLL NÆRING. ÞAÐ HENTAR
VEL Í BOOST-DRYKKI EÐA SEM MÁLTÍÐ OG ER
RÍKT AF MYSUPRÓTEINUM. SMAKKAÐU ÞAÐ
HREINT EÐA BRAGÐBÆTT.
NÝTT
Ríkt af
mysupróteinum
Lífið er æfing - taktu á því
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
M
SA
6
04
35
0
7/
12
4 |FÓLK |HEILSA