Fréttablaðið - 31.07.2012, Side 4
31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR4
GENGIÐ 30.07.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
209,0575
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,25 121,83
190,43 191,35
148,83 149,67
20,006 20,124
20,006 20,124
17,799 17,903
1,5501 1,5591
182,81 183,89
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FULLKOMINN FERÐAFÉLAGI!
SÝRLAND „Ég hef miklar áhyggj-
ur af áhrifum sprengjuárása og
notkun skriðdreka og annarra
þungavopna á íbúa í Aleppo,“
segir Valerie Amos, mannúðar-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
„Margir hafa leitað skjóls til
bráðabirgða í skólum og öðrum
opinberum byggingum á örugg-
ari svæðum,“ bætti hún við:
„Þau eru í brýnni þörf fyrir mat,
dýnur og teppi, hreinlætisvörur
og drykkjarvatn.“
Leon Panetta, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, segir að
þessar þungu árásir stjórnarhers-
ins á borgina dragi enn úr stuðn-
ingi við stjórn Bashars al-Assads
meðal almennings.
„Ég held að á endanum verði
þetta nagli í líkkistu Assads,“
sagði Panetta. „Stjórnartíð hans
er að enda komin.“
Í gær skýrði utanríkisráðu-
neyti Bretlands frá því að Khaled
al-Ayoubi, yfirmaður sýrlenska
sendiráðsins í London, styðji ekki
lengur Sýrlandsstjórn. Ayoubi
hefur verið staðgengill sendiherra
Sýrlands í London síðan sendi-
herrann var kallaður heim fyrr á
þessu ári.
Stjórnarherinn sagðist í gær
hafa náð aftur á sitt vald einu
hverfa borgarinnar, „hreinsað
svæðið“, eins og þeir komust að
orði, en leiðtogi sýrlenska upp-
reisnarhersins í Aleppo fullyrðir
að stjórnarherinn hafi ekki náð
„einum metra“ á sitt vald.
Erfitt er fyrir erlenda frétta-
menn og fulltrúa alþjóðastofn-
ana að meta hvað hæft er í yfir-
lýsingum stríðandi fylkinga og
enginn veit hve mikið mannfall
hefur orðið.
Margt bendir til þess að patt-
staða geti myndast, ekki ólík
þeirri sem ríkt hefur um skeið í
borginni Homs þar sem uppreisn-
armenn hafa sum hverfi á valdi
sínu en stjórnarherinn önnur.
Uppreisnarherinn í Sýrlandi er
reyndar langt frá því að vera sam-
stæð heild, því hann samanstend-
ur af fjölmörgum hópum sem
sumir starfa saman en aðrir ekki.
Markmið þeirra eru líka mjög
ólík; margir eru stjórnarandstæð-
ingar sem hafa gripið til vopna en
innan um eru herskáir íslamistar
og hryðjuverkahópar sem segjast
tengjast Al Kaída-netinu.
Þessir síðastnefndu eru bæði
Sýrlendingar, sem börðust með
Al Kaída í Írak, og svo hafa á síð-
ustu vikum streymt herskáir ísl-
amistar frá Tyrklandi sem hafa
í hyggju að taka þátt í bardögum
gegn stjórnarhernum í Aleppo.
Óvíst er með öllu hvað við tekur
falli stjórn Assads.
gudsteinn@frettabladid.is
Sprengjum rignir
enn yfir íbúa Aleppo
Stjórnarhernum í Sýrlandi virðist lítið verða ágengt í Aleppo, fjölmennustu
borg landsins, þrátt fyrir harðar árásir með þungavopnum, skriðdrekum og
herþotum. Mannúðarfulltrúi SÞ telur almenning vera í mikilli hættu.
SÝRLENSKUR UPPREISNARMAÐUR Í ALEPPO Sýrlenski herinn mætir harðri mót-
spyrnu þrátt fyrir öflugan vopnabúnað. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
29°
20°
19°
22°
25°
18°
18°
27°
20°
32°
26°
32°
18°
25°
21°
19°Á MORGUN
Fremur hægur
vindur.
FIMMTUDAGUR
Fremur hægur
vindur.
13
14
13
14
13
14
14
11
11
16
12
4
3
2
2
3
3
5
3
5
5
3
12
13
11
16
13
13
13
10
14
16
BIRTIR TIL V-lands
á morgun. Nú höf-
um við fengið smá
gróðurskúr V-til en
á morgun er það
aftur út á sólpall.
Fremur hæg NA-
læg átt næstu daga
og þá má búast við
þokulofti við N-og
A-stöndina. Kólnar
dálítið NA-til en
spáir hlýnandi aftur
á föstudaginn.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
NOREGUR Lögregla og Náttúru-
vernd ríkisins í Noregi leita nú
að særðu bjarndýri í Saltdal í
norðurhluta landsins og hafa
beðið almenning á svæðinu að
hafa varann á.
Dýrið var skotið á sunnudag
eftir að hafa ráðist á sauðfé, en
komst undan á flótta.
Bjarnarins er leitað bæði úr
lofti með þyrlum og með leitar-
hundum á jörðu niðri, en var enn
ófundinn í gær.
„Björninn gæti hafa komist
langt eftir að hann var skotinn
og gæti verið hættulegur,“ hefur
Aftenposten eftir Margrethe
Torseter hjá lögreglunni í Sal-
ten. - þj
Viðvörun í Noregi:
Særður björn
ógnar öryggi
BJARNDÝR Særður björn gengur nú
laus í Norður-Noregi. Hann var skotinn
þegar hann réðst á sauðfé og gæti verið
hættulegur.
RÚSSLAND Rússneska kvennapönk-
sveitin Pussy Riot neitar ásökun-
um um að hafa verið með óspektir
á almannafæri, en þarf að dúsa í
hálft ár áfram í gæsluvarðhaldi.
Hljómsveitarmeðlimir voru
leiddir fyrir dómara í gær, eftir að
hafa setið fimm mánuði í gæslu-
varðhaldi. Þær efndu til tónlistar-
og mótmælauppákomu í helstu
kirkju landsins hálfum mánuði
fyrir forsetakosningar í mars, í
óþökk kirkjunnar jafnt sem stjórn-
valda. Vladimír Pútín forseti hefur
forðast að segja nokkuð um málið
sem vakið hefur mikla athygli
jafnt innan sem utan Rússlands. - gb
Pussy Riot neitar sök:
Gæsluvarðhald
í hálft ár enn
Í DÓMSALNUM Þrír meðlimir kvenna-
pönksveitarinnar Pussy Riot í Moskvu.
NORDICPHOTOS/AFP
Fíkniefnasali tekinn í Eyjum
Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók
fíkniefnasala um þrítugt aðfaranótt
laugardags og gerði í framhaldi hús-
leit á heimili hans. Þar fundust 70
grömm af amfetamíni og nokkuð
af peningum, sem taldir eru vera
ávinningur af afbrotum. Maðurinn
viðurkenndi að hafa staðið í fíkniefna-
sölu og telst málið upplýst.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÍSRAEL, AP Bandaríski forsetafram-
bjóðandinn Mitt Romney segir
Ísraela hafa menningarlega yfir-
burði gagnvart Palestínumönnum
og segir velgengni Ísraela í efna-
hagsmálum staðfesta það.
Ummælin fóru illa fyrir brjóstið
á Palestínumönnum sem segja
hann greinilega lítið vita bæði um
Palestínumenn og Ísraela.
Romney hefur verið á ferðalagi,
meðal annars til að safna fé í kosn-
ingasjóði sína. Ummælin lét hann
falla í Ísrael í gær, en hélt síðan til
Póllands. - gb
Romney hneykslar í Ísrael:
Segir Ísraela
hafa yfirburði
HÚSNÆÐISMÁL Íbúðalánasjóður
hyggst setja þrjár blokkir á Sel-
fossi á sölu í einu lagi í haust.
Vonast er til þess að leigufélög
kaupi eignirnar og þannig verði
skorturinn á leiguhúsnæði á
Árborgarsvæðinu leystur.
Þetta sagði Sigurður Erlings-
son, framkvæmdastjóri Íbúða-
lánasjóðs, í fréttum Stöðvar 2 í
gærkvöldi.
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Árborg, er
gagnrýninn á það hvernig Íbúða-
lánasjóður hefur haldið á málum á
Selfossi eftir að hann leysti til sín
blokkirnar. Margir tugir íbúða í
eigu sjóðsins standi nú tómar, þótt
eftirspurn eftir húsnæði á svæðinu
– einkum leiguhúsnæði – sé mikil.
„Þarna er opinber íbúðabanki
að búa til skort með því að leysa
til sín eignir og koma þeim ekki á
markað,“ segir hann. „Þetta veld-
ur þrenns konar vanda; fólk fær
ekki íbúðir, fasteigna- og leigu-
verð helst óeðlilega hátt og svo
hefur þetta bein áhrif á neyslu-
vísitöluna og hækkar þannig
lánin okkar.“
Eyþór fagnar því að Íbúðalána-
sjóður hyggist selja leigufélögum
íbúðirnar en minnir á að það geti
verið nokkuð langt í að það verði
að veruleika.
- sh, jmi
Íbúðalánasjóður gagnrýndur fyrir að búa til húsnæðisskort á Selfossi:
Þrjár blokkir seldar í heilu lagi
SIGURÐUR
ERLINGSSON
EYÞÓR
ARNALDS
BANDARÍKIN John Holmes, sem
myrti tólf manns á miðnætursýn-
ingu nýjustu Batman-myndarinnar
í Colorado í Bandaríkjunum, hefur
verið ákærður. Ákæran er í 142
liðum.
Ekki er búið að ákveða hvort
farið verður fram á dauðarefsingu
yfir Holmes, sem er 24 ára.
Hátt í sextíu særðust í árásinni
og eru tíu þeirra enn á sjúkrahúsi,
þar af eru fjórir enn í lífshættu.
Holmes var doktorsnemi í tauga-
skurðlækngum en talið er að hann
sé haldinn geðhvarfasýki.
Árásin í Colorado:
Holmes hefur
verið ákærður