Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 12
12 31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR Þegar íslensku útrásarvíkingana þraut örendið bar nokkuð nýrra við. „Sjá roðann í austri/hann brýtur sér braut“, sungum við ungir jafnaðarmenn í fyrnd- inni. Sá roði úr austri brýtur sér nú braut alla leiðina þaðan og upp á Grímsstaða- hálendið. Og – eins og íslensku útrásar- víkingarnir – heillar þúsundirnar upp úr skónum með fögrum framtíðarfyrirheit- um. Dreymnir Íslendingar, sem neyddust til að hætta að láta sig dreyma um Ísland sem miðdepilinn í fjármálaumsvifum heimsins, sjá nú fyrir sér heilsuhótel og golfvöll uppi á öræfum landsins, ásamt með flugvelli fyrir farþegaþotur (sumir halda orrustuþotur), hundrað villur við hótelið fyrir austræna auðmenn (sumir halda leiðtoga kínverskra kommúnista), risaumskipunarhöfn rétt við hlaðið á Gunnarsstöðum (sumir halda herskipa- höfn), olíuhreinsunarstöð á hafnarbakk- anum og risahótel í Reykjavík (fyrir ennþá fleiri kínverska kommúnista). „And you ain’t seen nothing yet“, eins og komist var svo vel að orði þegar íslensku útrásarvíkingarnir voru um það bil að leggja undir sig heiminn. „You ain´t seen nothing yet.“ Hvílíkur sæluhrollur fer um landann þegar þessi orð og atvik rifj- ast upp. Sjálfur voldugi kínverski drek- inn sér mikilleik landans og landsins og hyggst hefja land og landsmenn upp í þann háa sess sem vér vitum oss ber en þar sem öfundsjúkir og illa þenkjandi útlendingar (ekki þó Kínverjar) stöðvuðu oss í miðri vegferð. Já, roðinn úr austri hann brýtur oss braut. Kínverjar eru sagðir vera vitmenn miklir, Konfúsíus og Lao Tse voru mikl- ir vitringar. Ekki fer hins vegar eins mikið orð af Kínverjum fyrir glens eins og gáfur. Kínverjanum Huang Nubo hefur til dæmis ekki hugkvæmst eins og Jóni Gnarr að bjóða landsmönnum upp á hvítabjörn í húsdýragarðinn þó svo Kínverjinn segist eins og Jón vilja gera allt fyrir aumingja. Þess vegna er Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík en ekki Huang Nubo. Jón Gnarr hefur nefni- lega miklu meiri húmor en Huang Nubo – þó hann sé að vísu ekki jafn stórtæk- ur. Gnarr hefur nefnilega þennan fína húmor – ekki þennan stórkarlalega. Ekki svona svakalega stórkarlalegan. Er svo miklu betri en Huang í að gnarrast í fólki. Enda Íslendingur! Nema hvað?!? FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Huang Gnarr Stjórnmál Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi ráðherra FRÁBÆR TILBOÐ Kúlutjöld - Svefnpokar Takmarkað magn lÍs en kus G ildandi aðalskipulag var samþykkt fyrir áratug. Sam- kvæmt því á í Vatnsmýrinni í Reykjavík, þar sem nú er flugvöllur sem þjónar innanlandsflugi, að vera blönduð byggð með íbúðum og þjónustu- og atvinnu- húsnæði. Engin teikn eru á lofti um að farið sé að huga að færslu flug- vallarins þrátt fyrir að samkvæmt aðalskipulaginu eigi önnur flugbrautin að víkja árið 2016 og flugvöllurinn að vera alfarinn úr mýrinni átta árum síðar. Svo virðist sem þegjandi samkomulag flugmálayfirvalda og flugrekstraraðila hafi verið þessi tíu ár sem liðin eru frá því aðalskipulagið var samþykkt um að láta sem það sé ekki til. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að færa flugvöll- inn innan höfuðborgarsvæðisins eða undirbúa flutning innan- landsflugs til Keflavíkur. Ekki hefur heldur verið hægt, vegna aðalskipulagsins, að byggja upp og ekki einu sinni viðhalda með eðlilegum hætti mannvirkjum á Reykjavíkurflugvelli í Vatns- mýri. Þetta er bæði ábyrgðarlaust og í raun algert klúður af hálfu þessara aðila. Í grein sem borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson skrifar í blaðið í gær ítrekar hann að vilji borgarfulltrúa í Reykjavík sé að tryggja samgöngur allra landsmanna til og frá borginni. Þeim sé hins vegar líka falið að skipuleggja byggðina í borginni til framtíðar og í því samhengi sé ekki hægt að líta fram hjá þeim kostum sem landið í Vatnsmýri er búið. „Með byggð í Vatnsmýri geta borgaryfirvöld náð markmiðum sínum um styttri ferðatíma, fjölbreytilegri ferðamáta, minni mengun, meiri sjálfbærni og þétta og skemmtilega borg,“ segir Gísli Marteinn meðal annars í grein sinni. Umræður um flugvöllinn í Vatnsmýri hafa tilhneigingu til að verða æði tilfinningaþrungnar. Það er auðvelt að setja sig í spor þeirra sem nota flugvöllinn mikið og hafa, eins og gefur að skilja, lítinn áhuga á að hann flytjist úr miðbænum. Það breytir þó engu um það aðalskipulag sem er í gildi og ber að fara eftir meðan svo er. Það liggur líka fyrir að skoðanir eru afar skiptar um stað- setningu flugvallarins og fyrirkomulag innanlandsflugs. Ef að líkum lætur vill meirihluti þeirra sem búa á landsbyggðinni hafa flugvöllinn áfram þar sem hann er. Meðal íbúa höfuðborgarsvæð- isins eru deildari meiningar. Ágreiningurinn um staðsetningu vallarins er einnig þvert á alla flokka. Ekkert af þessu breytir þó neinu um það að skipulagsvald er í höndum sveitarstjórnar, í þessu tilviki Reykjavíkurborgar. Hún hefur mótað stefnu sem meðal annars var grundvölluð á leiðbein- andi íbúakosningu um staðsetningu flugvallarins en umboðið er í höndum kjörinna fulltrúa í borginni og það er skýlaust. Tíminn líður án þess að nokkuð bóli á lausn á flugvallarmálum vegna innanlandsflugs: Aðalskipulagi ber að hlíta Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is SKOÐUN Tveir menn og heilar Vandfundið er leiðinlegra lesefni en ritdeila prófessoranna Stefáns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um það hvor er meira með hinn á heilanum. Hannes bloggaði síðast á sunnudaginn – vitaskuld um Stefán. Það eru hins vegar heilir fimm dagar síðan Stefán bloggaði síðast um Hannes. Af því mætti draga þá ályktun að Hannes hefði vinninginn. Það væri hins vegar óvarlegt, enda allt eins víst að Stefán verði búinn að blogga sig upp að hlið hans þegar þetta blað kemur úr prentun. Jafnósammála Þeim sem hafa fylgst með opinberri umræðu undanfarin ár og gott betur er hins vegar fullljóst að báðum er fræðingunum jafnumhugað um að vera ósammála hvor öðrum. Um allt. Líka um það hvor er meira ósammála hinum. Vandamál fyrsta heimsins Íslendingum er margt ofviða. Til dæmis að fara úr skónum. Nú erum við orðin óskaplega leið á því að þurfa að reima af okkur skæðin við öryggisleit í Leifsstöð og láta lýsa í gegnum þau. Innanríkis- ráðherra er kominn í málið og búið er að boða endurskoðun á öryggisreglum með haustinu. Við erum orðin býsna vön því að tuða yfir tittlingaskít, en það er ekki oft sem það ber svona mikinn árangur. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.