Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 31. júlí 2012 13 Þetta er sterkt til orða tekið en sumir hafa kallað elli- og hjúkr- unarheimili þessu nafni og fáum við væntanlega flest einhverja hryllingsmynd í hugann. Einhverj- ir munu hugsa með sér að þangað muni þeir aldrei fara, á meðan aðrir lofa góða þjónustu, yndis- legt viðmót, fagleg vinnubrögð sem og það öryggi sem slíkt veitir þeim sem slíka aðhlynningu þurfa. Ekki síst hefur samfélagsmynstr- ið breytt möguleikum fjölskyldna á að búa saman frá vöggu til grafar vegna aukins álags, vinnuframlags og tímaskorts hvort heldur sem er gagnvart börnum okkar eða for- eldrum. Þó skyldi stefna að búsetu á eigin heimili eins lengi og þess er nokkur kostur. Umræðan undanfarið hefur verið áhugaverð vegna fyrirætl- ana um að setja upp kaffihús og selja áfengi á slíku heimili hér í bænum. Víti til varnaðar segja sumir á meðan aðrir fagna frelsi íbúa, þroskaðra einstaklinga, sem vilja hafa eitthvað að segja um líf sitt og tilveru þrátt fyrir að vera vistmenn. Það er vitaskuld rétt út frá læknisfræðilegu sjónarmiði að áfengi og viss lyf, hár aldur og lélegri efnaskipti geta haft nei- kvæð áhrif á nautnina við að fá sér í glas eins og það er kallað á góðri íslensku. Fylgifiskar ölv- unar eru alþekktir, fyrir utan þá sértæku sem snúa að heilsu eldri borgara eins og hætta á falli og beinbrotum svo eitthvað sé nefnt. Ég hef ekki kafað djúpt í greinar um slíkt en ugglaust er áfengis- víma ekki til að auka öryggi ein- staklingsins. En snýst þetta um frelsi, val- möguleika og rétt einstaklingsins til að ákveða fyrir sjálfan sig hvað hann vill? Mögulega er það svo. En hver á að ákveða fyrir okkur hve- nær við erum fær um slíkt? Senni- lega læknirinn sem ber ábyrgð á heilsu vistmanna. Rétt eins og læknar veita leyfi til aksturs ald- urhniginna einstaklinga með því að gefa út vottorð. Það mætti með kímni spyrja hvort læknar vistheimila þurfi í framtíðinni að gefa út drykkju- vottorð og þar með leyfi til að fá sér í staupinu á kaffihúsinu. En að öllu gamni slepptu þá er ólíklegt að við myndum stuðla að afvelta kengfullum eldri borgurum á göngum elli- og hjúkrunarheimila landsins með þeim ráðahag. Rétturinn til sjálfsákvörðunar er afar sterkur, sömuleiðis eign- arrétturinn og því er áhugavert í þessu ljósi að velta fyrir sér öðru máli er tengist gjaldþrotameðferð „efnaðs“ vistmanns á öðru stóru vistheimili í Reykjavík vegna skuldar hans við heimili sitt. Þetta er hið einkennilegasta mál ef horft er fram hjá að mínu viti gölluðum reglum um greiðsluþátttöku ein- staklinga í kostnaði við rekstur vistheimila og staldrað við for- dæmið sem þetta mál setur. Okkur er tíðrætt um samtrygginguna og það að við viljum auðvitað sann- gjarnt og gott velferðarkerfi, gott og vel! Væntanlega hefur þessi umræddi maður greitt skatta og skyldur og aflað um ævina svo hann ætti eign í lífeyrissjóði eða viðlíka, hans lífeyrissjóð. Er hann ekki búinn að greiða samtrygg- inguna í gegnum áratugi í vinnu? Til hvers greiddi hann í sjóð- inn ef hann getur ekki notið hans? Hann á vitaskuld sama rétt og allir aðrir á „fullkomnustu heil- brigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni“ án þess að greiða meira en aðrir góðir og gildir þegnar þessa lands. Ef hann getur svo ekki heldur fengið að ráða því hvort hann fái gott rauðvín með steikinni heima hjá sér nema gegn framvísun vottorðs þá er manni eiginlega öllum lokið. Ég á væntanlega nokkur ár eftir áður en ég fer á vistheimili, fram að því munu þau vafalaust taka miklum breytingum. Ég gæti talið upp fjöldamörg atriði sem ég myndi vilja fyrir mína parta, en það myndi sprengja ramma þess- arar greinar. Þegar þar að kemur hef ég væntanlega greitt minn skerf til samfélagsins svo ég og kona mín getum óáreitt notið líf- eyris okkar með staup að eigin vali í hönd, hvort sem er áfengt eður ei, og átt ánægjulegt ævi- kvöld án þess að finnast við vera í biðsal dauðans. Teitur Guðmundsson læknir HEILSA Biðsalur dauðans Fylgifiskar ölvun- ar eru alþekktir, fyrir utan þá sértæku sem snúa að heilsu eldri borgara eins og hætta á falli og beinbrotum svo eitthvað sé nefnt. Blå Band bollasúpurnar eru handhæg og bragðgóð næring sem gott er að grípa til. Þær innihalda ekkert MSG, engar transfitur og aðeins náttúruleg bragð- og litarefni. Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus. Í Fréttablaðinu 25. júlí sl. er ágæt frásögn af góðu fram- taki nokkurra fræðimanna sem spurðu í netkönnun hvaða aðferð fólki hugnaðist best við kjör í embætti forseta Íslands. Spurt var um fjórar aðferðir auk þeirrar núverandi þar sem einfaldur meirihluti ræður. Meðal annars var boðið upp á það sem fræðimennirnir köll- uðu „varaatkvæðisaðferð“. Við þetta má bæta fróðleik sem hvorki kom fram hjá spyrlunum né heldur í fréttaskýringunni. Fyrst er þess að geta að nafn- giftin á því sem nefnt er „vara- atkvæðisaðferð“ hefur verið á reiki. Hún hefur í opinberum skjölum verið kennd við „for- gangsröðun“ en líka nefnd „aðferð færanlegra atkvæða“, sem er hrá þýðing á algengasta heitinu á ensku, Single transfe- rable vote (STV). Mikilvægt er að vita að þessi aðferð er sú sama og stjórnlaga- ráð hefur lagt til að beitt verði við forsetakjör framvegis. Til upprifjunar þá felst aðferðin í því að kjósendur eiga ekki að velja með krossi einum heldur að raða frambjóðendum í for- gangsröð: „Þennan vil ég helst, en ef hann nær ekki kjöri þá er þessi næstbesti kostur minn“ o.s.frv. Þetta er einföld aðferð og hefur ýmsa kosti fram yfir þá að kjósa tvisvar. Kostnaður er minni bæði hjá hinu opin- bera og ekki síður hjá fram- bjóðendunum sjálfum. En ekki er síðra að STV, sem er eins og „tveggja umferða kosning“ í einni, kemur í veg fyrir hrossa- kaup um stuðning þeirra sem falla út í fyrri umferðinni, eins og er t.d. sláandi í Frakklandi. Að lokum má bæta við frá- sögn blaðsins að bæði var STV- aðferðin, „varaatkvæðisaðferð- in“, notuð við kosninguna til stjórnlagaþings og jafnframt lögð til grundvallar í nýleg- um stjórnarfrumvörpum um persónukjör, en dagaði uppi í málþófi eins og nú er tískan á Alþingi. Meira má lesa um STV- aðferðina við forsetakjör í Fréttablaðinu 12. janúar sl.; sjá http://thorkellhelgason. is/?p=1324. Meira um aðferðir við forsetakjör Stjórnmál Þorkell Helgason sat í Stjórnlagaráði Mikilvægt er að vita að þessi aðferð er sú sama og stjórnlagaráð hefur lagt til að beitt verði við forsetakjör framvegis.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.