Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 10
31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR10 HVER ÞREMILLINN! Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðuleysi, slysagildrur og fleira. thremillinn@frettabladid.is 1. Hvar var tónlistarhátíðin Bræðslan haldin? 2. Hvaða fyrirtæki hefur Um- hverfisstofnun bannað að sigla upp að arnarhreiðrum? 3. Hvaða tegund af hval mátti líta í Njarðvík og Keflavík um helgina? SVAR 1. Á Borgarfirði eystri 2. Sæferðum 3. Grindhval SAMFÉLAGSMÁL Opnunarhátíð Iðjubergs og Gylfaflatar verður haldin klukkan 13 í dag á Markús- artorgi við Gerðuberg. Á hátíðinni mun fjöldi góðra gesta koma fram auk þess sem haldin verður sölu- sýning með listmunum frá Iðju- bergi og Gylfaflöt. „Það er frábær stemning í hópn- um, við erum öll rosalega spennt og hlökkum mikið til,“ segir Mel- korka Jónsdóttir, forstöðumaður Gylfaflatar og Iðjubergs. Tara Þöll Eurovisionfari fatlaðra mun taka lagið á hátíðinni, Elfa Dögg uppistandari mun einnig koma fram og trúðarnir Jóhann og Jóhanna úr Sirkus Íslands. Verkefnið Torg í biðstöðu snýst um að lífvæða biðsvæði með tíma- bundnum lausnum. - ktg Verkefnið Torg í biðstöðu: Hátíð haldin á Markúsartorgi við Gerðuberg Árvakur lesandi sendi Frétta- blaðinu myndir frá Sléttuvegi við Fossvog. Fræst hefur verið upp úr veginum og mikið af glerbrotum liggur nú í fræsingunni. Einnig er stígur í botni götunnar lýstur upp, en stígurinn sjálfur einungis mal- arvegur. Lesandinn bendir á að mikið af eldri borgurum og hreyfihömluðum búi í næstu húsum sem eigi erfitt með að ferðast um í jafn miklum torfærum. „Stígurinn er inni á bygging- arsvæði og það er fyrirhugað að byggja austan megin við stíginn. Við slíkar framkvæmdir fara stíg- ar gjarnan mjög illa. Við værum að henda peningum ef við færum út í stígagerð þarna,“ segir Jóhann S. D. Christiansen, starfsmaður skrifstofu gatna- og eignaumsýslu Reykjavíkurborgar. Hann bendir á að skammt frá sé fullbúinn stígur. „Það er annar stígur 26 metrum frá þessum. Hann er fullgerður og reiknað er með að umferðin fari um hann.“ Í sambandi við fræsta mal- bikið á Sléttuveginum segir Jóhann lítið mál að sópa glebrotunum upp, en malbikunin fari fram samfara frekari uppbyggingu á svæðinu. - ktg Sléttuvegurinn alls ekki sléttur UMHVERFI VIÐ SLÉTTUVEG Stígurinn virðist enda á miðri leið og við tekur malarvegur. Slíkt getur reynst mikil hindrun fyrir fólk sem á erfitt með gang eða ferðast um í hjólastól. GLERBROT Á VEGINUM Lesandi bendir á að mikið af glerbrotum séu á veginum. SAMFÉLAGSMÁL Þjóðskrá Íslands gaf út mun fleiri vegabréf í júní heldur en á sama tíma í fyrra. Munurinn nemur 22,5 prósentum. Í júní voru 6.932 vegabréf gefin út en í fyrra voru þau 5.658. „Skýringin liggur að hluta í því að 23. maí árið 2006 breytt- ust vegabréfin og var þá örflögu komið fyrir í þeim öllum. Sam- fara þessu var gildistími vega- bréfanna styttur úr tíu árum niður í fimm ár,“ segir Gígja Hjaltadóttir, fulltrúi hjá Þjóð- skrá Íslands. „Nú er verið að endurnýja tvo árganga, bæði gömlu vegabréfin sem gefin voru út fyrir tíu árum og fyrstu árgangana af vegabréf- um með örflögunum“. Gígja bendir á að þetta geti þó varla skýrt hvers vegna fleiri hafa sótt um nýtt vegabréf í ár, þar sem endurnýjunin á vega- bréfum með fimm ára gildistíma hófst 2011. „Við héldum að þetta yrði stöð- ugt frá því í fyrra, en svo er ekki,“ segir Gígja. „Ætli þetta skýrist ekki helst af ferðaþrá landsmanna.“ - ktg Fleiri sækja um nýtt vegabréf í ár en í fyrra: Vegabréfin rjúka út þetta árið VEGABRÉF Nýju vegabréfin gilda aðeins í fimm ár sem skýrir að hluta hvers vegna fleiri sækja um nýtt vegabréf í ár. Vega- bréf án örflögu sem ekki eru útrunnin eru þó í fullu gildi enn þá. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR ÚKRAÍNA Stjórnarandstöðuflokk- arnir í Úkraínu hafa ákveðið að sameinast um Júlíu Tímósjenkó sem forystuframbjóðanda sinn í þingkosningum í haust. Þetta hafa flokkarnir ákveð- ið jafnvel þótt Tímósjenkó sitji í fangelsi dæmd fyrir að hafa mis- notað völd sín þegar hún var for- sætisráðherra. Dómurinn yfir henni hefur verið harðlega gagnrýndur og stjórnvöld sökuð um að misnota sér dómstólana til að koma höggi á þennan andstæðing sinn. - gb Stjórnarandstaðan í Úkraínu: Tímósjenkó í forystuframboð VEISTU SVARIÐ? 7.660 kr. á mán. í 18 mánuði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.