Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 18
18 31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR Við Íslendingar hrósum okkur fyrir fiskvernd. Núna erum við ánægðir með þorskinn enda stofninn í betra ástandi en oft áður. Útgerðarmenn segja að lækkun heildarafla eftir ráðleggingum Hafró um 30 þúsund tonn 2007 og áfram ár frá ári til 2011 hafi leitt til þessarar góðu útkomu. Hafró miðar heildarafla að jafnaði við ákveðið hlutfall af hrygningarstofni og þessi ár var viðmiðunarstuðull lækkaður í sem samsvarar 20% af hrygning- arstofni. Til að finna út þolmörk þorsk- stofnsins er farið svokallað vorrall, en þá fara skip Hafró á stúfana og kanna þorskgengd kringum landið. Styrkur hrygningarstofns er mæld- ur, ekki bara í fjölda fiska heldur einnig í meðalþyngd þeirra. Aðalæti þorsksins hefur verið loðna en nú er makríllinn kominn til sögunnar og ekki ljóst hvaða áhrif hann hefur. Þó menn deili um gagnsemi og aðferðafræði Hafró er samanburð- ur við útlönd sláandi. Nær alls stað- ar hafa botnfiskstofnar í Evrópu hrunið og eru nú brot af því sem áður var. Væntanlega er einhverri ofveiði um að kenna en þó frekar slæmri umgengni um fiskimiðin með eyðileggjandi veiðarfærum. Því hafa þjóðir Evrópu neyðst til að leggja meira upp úr uppsjávarfisk- um eins og síld og makríl. Írar eru gott dæmi um það. Þöggun hefur ríkt um eyðilegg- ingu hafsbotnsins og lífríkis hans, en svo virðist sem umhverfisvernd nái einungis að sjávarmáli. Gild- ir það einnig um Ísland. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði þó nýlega fréttagrein um lífríki hafsins og segir m.a. að líf- ríki hafsins sé fjölbreytt og þekking okkar á vistkerfum undirdjúpanna minni en ofansjávar. Það skipti máli að tryggja viðgang vistkerfisins í heild, en ekki bara einstakra fiski- stofna eins og nú tíðkast. Almennt gildi sú regla að reyna að lágmarka skaða sem athafnir mannsins geta valdið á lífríkinu, sem hægt er að gera með umhverfisvænni veiðiað- ferðum án þess að draga úr afla eða verðmæti hans. Ráðherra minnist þarna á veiði- aðferðir og á væntanlega við botn- vörpuna, sem búin er að eyði- leggja nánast öll botnmið Evrópu og Bandaríkjanna og hálfnuð með íslensku fiskimiðin. Þrátt fyrir að skaðsemi botnvörpuveiða sé vís- indalega sönnuð (University of Ore- gon) liggur hún í þagnargildi. Hvers vegna? Þegar hagsmunir lífríkis og veiðimanna takast á er augljóst að lífríkið á að njóta vafans. Hafs- botninn má ekki við átroðningi frekar en hálendissvörðurinn og umhverfisvænni veiðiaðferðir eins og krókaveiðar eru miklu fýsilegri en botnskrapið. Að dýfa öngli í vatn raskar engu, en að draga eftir botn- inum þreskivél sem engu eirir, öllu. Og viti menn. Krókaveiðar með línu kosta fjórum sinnum minni eldsneytisbrennslu en botnvörpu- veiðar á togurum miðað við sama afla. Á þöggunin einnig að ríkja um það? Ég fór í skuggasundið milli Land-símahússins og Miðbæjarmark- aðarins og skoðaði tillögurnar sem urðu hlutskarpastar í samkeppni um byggingu hótels o.fl. bygginga við Ingólfstorg og Austurvöll. Það er vel viðeigandi að sýna til- lögurnar í skuggasundinu. Allar framkomnar hugmyndir um bygg- ingar á þessu svæði eru ávísun á fleiri skuggasund og vindgöng. Það hvarflar að mér sú hugsun að þeir sem standa fyrir þessari sam- keppni eigi aldrei leið um miðborg Reykjavíkur og þekki hana því ekki. En þessi ályktun mín er röng, leið- arljós „uppbyggingarinnar“ er gróði og gjörnýting. Og þá verða minni- háttar tilfinningar og skynsemi að víkja. Reykjavík er vindasöm borg norð- arlega á hnettinum. Þar sem sólar nýtur og skjól er fyrir vindum safnast fólkið saman, bæði höfuðborgarbúar og gest- ir þeirra. Og borgaryfirvöld hafa aukið gæðin með því að takmarka bílaumferð á nokkrum stöðum. Háar byggingar og þröng sund milli þeirra rýra sólarljósið sem fellur á íbúana og eykur vindhrað- ann. Hótel á þessum stað eykur umferð rútubíla og risajeppa. Áætlanir um byggingu risahót- els á Landsímareitnum eru tíma- skekkja og stórslys verði af fram- kvæmdum. Björgum Ingólfstorgi og Nasa! Ég skora á alla að undirrita áskor- unina á www.ekkihotel.is. AF NETINU Ekki lengur hlegið Ég man þá tíð upp úr 1960 þegar sett var fram hugmyndin um „nýjan miðbæ” þar sem þá voru kartöflugarðar fyrir utan Reykjavík í Kringlumýri. Margir hlógu að „svona vitleysu” og þeir héldu áfram að hlæja næstu áratugina. En byggðin breiddist út bæði allt í kringum Kringlumýrina og í henni sjálfri og þegar Kringlan var opnuð, að mig minnir 1987, og fyrstu árin þar á eftir, var kaupmönnum við Laugaveg ekki lengur hlátur í huga. Á þessum árum kom upp hugmynd um að byggja yfir hluta Laugavegar eða annarrar götu á því svæði og útbúa þar keppinaut við Kringluna, en ósamstaða og skammsýni komu í veg fyrir það. [...] omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson Nær alls staðar hafa botnfisk- stofnar í Evrópu hrunið og eru nú brot af því sem áður var. Sígilda Óskajógúrtin sem enginn verður leiður á. Létta Óskajógúrtin án viðbætts sykurs. Óskajógúrt þjóðarinnar í 40 ár Í gegnum súrt og sætt hefur Óskajógúrt verið kærkominn kostur íslensku þjóðarinnar, hvort sem er í ferðalaginu, á róló, í vinnu, hjá dagmömmu, í vegasjoppunni eða sem morgunmatur heima við. Þín óskastund getur verið hvar sem er. Nær náttúruvernd bara að sjávarmáli? Náttúra Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur Lýður Árnason læknir Í skuggasundi Skipulagsmál Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.