Fréttablaðið - 31.07.2012, Side 8
31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
Móhellu 2, 221 Hafnarfjörður
Sími 555 3100 www.donna.is
„Enn einn heitur dagur“
Fáðu gust úr vandaðri Honeywell viftu
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
láttu okkur vakta heimilið
Farðu
áhyggjulaus í fríið
Góð ráð frá Trausta á
facebook.com/oryggi
Fáðu tilboð í
Heimaöryggi á oryggi.is
eða í síma 570 2400
FRÉTTASKÝRING: Áhugi Huang Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum
Áhugi kínverska fjárfestis-
ins Huang Nubos á kaupum
á Grímsstöðum á Fjöllum
undir ferðamannaaðstöðu
hefur verið ríkisstjórn
Íslands vandræðamál. Inn-
anríkisráðherra hefur reynt
að stöðva málið en samráð-
herrar hans hafa verið því
fylgjandi. Ræða á málið í
ríkisstjórn í dag.
Sala jarðar á Norðausturlandi ætti
ekki, undir eðlilegum kringum-
stæðum, að vera mál sem veldur
ríkisstjórn Íslands vandræðum.
Fyrirætlanir kínverska fjárfest-
isins Huang Nubos um uppbygg-
ingu ferðamannastaðar á Gríms-
stöðum á Fjöllum hefur hins
vegar verið ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur hausverkur og til-
efni til umræðu um mun stærri
mál en uppbyggingu á svæðinu.
Fregnir bárust af því í fyrra
að Huang Nubo hefði áhuga á
að festa kaup á Grímsstöðum á
Fjöllum. Kaupverðið var í áður
óþekktum hæðum, um einn millj-
arður íslenskra króna.
Ekki skemmdi fyrir áhuganum
að fyrirætlanir hans voru stór-
tækar. Á teikniborðinu er 100
herbergja lúxushótel, 100 her-
bergja fjölskylduhús, hestabú-
garður og golfvöllur á Fjöllum.
Í Reykjavík vill hann síðan reisa
300 herbergja hótel. Rætt hefur
verið um að áformin fyrir norðan
ein og sér kosti rúmlega 16 millj-
arða króna.
Ríkisborgararéttur eða búseta
Íslensk löggjöf hefur áratugum
saman verið sniðin að því að koma í
veg fyrir að útlendingar eignist hér
landsvæði. Í lögum um eignarrétt
og afnotarétt fasteigna, frá 1966,
er kveðið á um að enginn megi öðl-
ast eignarrétt eða afnotarétt yfir
fasteignum hér á landi nema vera
íslenskur ríkisborgari eða með lög-
heimili á Íslandi. Sé félag stofnað
um starfsemina verða allir í því að
vera íslenskir ríkisborgarar, eða að
hafa haft lögheimili hér á landi sam-
fellt í að minnsta kosti fimm ár.
Þegar Ísland gekk í EES árið 1993
var þessum lögum breytt þannig að
sömu ákvæði giltu fyrir íbúa EES-
svæðisins og Íslendinga.
Hægt er að gefa undanþágu frá
þessari almennu reglu og er það
á forræði innanríkisráðherra, en
hann hafnaði slíkri beiðni í nóvem-
ber.
Árið 2010 setti Alþingi lög um
ívilnanir vegna nýfjárfestinga á
Íslandi. Þar eru ýmis skilyrði sett
um veitingu ívilnana, en þær fel-
ast í undanþágu frá fyrrgreindum
lögum.
Til að flækja málið enn frekar
snerta önnur lög þetta mál, eða lög
um einkahlutafélög frá 1994. Tvö
íslensk félög Huangs hafa sótt um
undanþágu frá búsetuskilyrðum í
þeim lögum og hefur efnahags- og
viðskiptaráðuneytið veitt hana.
Ögmundur segir nei
Eins og fyrr segir hafnaði Ögmund-
ur Jónasson innanríkisráðherra
beiðni um undanþágu frá lögum um
eignarrétt og afnotarétt fasteigna.
Hann sagðist einungis fylgja lögun-
um við ákvörðun sína, en hafði þó
ekki farið dult með andstöðu sína
við áformin. Ekki var að heyra á
honum að hann teldi málið eiga eftir
að hafa áhrif á stjórnarsamstarfið.
„Ég held að það geti ekki truflað
stjórnarsamstarfið þótt farið sé að
íslenskum lögum,“ sagði hann í sam-
tali við Fréttablaðið og kallaði eftir
sanngirni í mati á ákvörðun sinni.
Engu að síður fór þó svo að málið
olli titringi í ríkisstjórn. Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
sagði Ögmund styðjast við þrönga
lagatúlkun. „Ákvörðunin veldur
mér vonbrigðum,“ sagði hún við
Vísi.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra sagði í kjölfar ákvörðunarinn-
ar að það væri ekkert leyndarmál
að fullt af fólki innan Samfylking-
arinnar væri orðið pirrað á sam-
starfinu.
Árni Páll Árnason, þáverandi
efnahags- og viðskiptaráðherra,
sagði ákvörðunina vekja spurningar
um ríkisstjórnarsamstarfið. Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
sagðist ósammála ákvörðuninni, en
málið mundi ekki sprengja ríkis-
stjórnina.
Ekki spöruðu þingmenn Samfylk-
ingarinnar þó stóru orðin.
„Þetta er brjáluð ákvörðun tekin
í forherðingu af ráðherra sem lík-
lega er vanhæfur í málinu vegna
fyrri yfirlýsinga,“ sagði Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson. Kristján Möll-
er sagði Ögmund vanhæfan og að
ákvörðunin hefði áhrif á stuðning
hans við ríkisstjórnina. „Þessi kross
fer í kladdann og ég veit ekki hvað
það er pláss fyrir marga krossa í
viðbót þar.“
Varað við öðrum leiðum
Fljótlega eftir ákvörðun Ögmundar
kom til tals að ýmsar leiðir væru
færar í málinu, til dæmis sú sem nú
er verið að fara með leigu á landinu.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
sagði það jákvæðar fréttir, reynt
yrði að leiðbeina Huang í gegnum
íslenskt lagaumhverfi.
Ögmundur var ósáttur við þá yfir-
lýsingu og sagðist, í samtali við Rík-
isútvarpið, vonast til að ekki væri
verið að leiðbeina fjárfestinum
framhjá íslenskum lögum. Það vakti
aftur reiði iðnaðarráðherra sem
sagði um þau ummæli við Frétta-
blaðið 5. desember:
„Ég verð að segja alveg eins og
er að ég varð undrandi á þeim, að
hann skuli ætla okkur að gera eitt-
hvað slíkt og skuli ákveða að dylgja
um slíkt án þess að tala við kóng eða
prest áður en það er gert.“
Ljóst má því vera að málið hefur
lengi valdið titringi í stjórnarsam-
starfinu og gæti gert enn.
Vandræðamál fyrir ríkisstjórnina
Málið verður á dagskrá ríkisstjórnar í dag, að
ósk Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra.
Hann segir að ef menn telji sig nauðbeygða
til að veita öllum fyrirtækjum undanþágu
frá hinni almennu reglu varðandi kaup eða
leigu á fasteignum hér á landi, sé í raun búið
að afnema lögin. Þá sé búið að skapa reglu
sem geri stjórnvöldum ókleift að beita hinum
almennu lögum. En til hvers þá að vera með
heimild til veitingar undanþágu, ef beiting
hennar hefur jafn alvarleg áhrif?
„Það má deila um hvers vegna þessi undan-
þáguheimild er veitt. Það kunna að vera hér
aðstæður uppi þar sem þú viljir, á málefna-
legum forsendum, heimila einhverjum að
taka þátt í atvinnustarfsemi hér, á grundvelli
sérstakrar undanþágu. Ef síðan er ályktað í
kjölfarið á grundvelli jafnræðisreglu að þar
með hljótir þú að veita öllum þann rétt; þá
hafa lögin ekki lengur gildi.“
Ögmundur spyr hvað sé öðruvísi varðandi
hugmyndir kínversks fjárfestis í ferðaþjónustu,
eða kaup kanadísks fjárfestis á orkufyrirtæki.
„Þegar kanadískur auðmaður, sem átti
heima í skúffu í Svíþjóð, fjárfesti í jarðhita-
fyrirtæki hér á Suðurnesjum, og þá vísa ég
í Magma-málið, þá voru áhöld um hvort
heimild hefði verið fyrir slíku. Ef hann nú á
grundvelli þessarar lagasetningar hefði sótt
um heimild til að gerast íslenskt fyrirtæki, þótt
það væri erlent að uppistöðu til, þá væri þessi
almenna lagaregla farin.“
Hvað með Magma? spyr ráðherra
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
RÍKISSTJÓRN Hugmyndir um uppbyggingu á ferðamannasvæði á Grímsstöðum á Fjöllum verða aftur á borði ríkisstjórnarinnar í
dag. Ljóst er að málið hefur lengi verið stjórninni óþægur ljár í þúfu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is