Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 19
BER Í BAKSTURINN
Berjatíminn er runninn upp fyrr en oft áður
sökum veðurblíðu. Nú er um að gera að
halda í berjamó og fylla frystinn af bráð-
hollum bláberjum. Það er gott að skammta
þau í litla poka til að eiga í boost og bakstur.
Íslandsmótið í strandhandbolta fór fram á laugardaginn í Nauthólsvík í frábæru veðri. Þetta var níunda
árið í röð sem mótið er haldið og er það
orðið fastur liður hjá handboltamönn-
um og stuðningsmönnum félaganna. Í ár
tóku sextán lið þátt og varð lið Elítunn-
ar sigurvegari annað árið í röð. Liðið er
að mestu leyti skipað leikmönnum úr N1
deildinni, meðal annars leikmönnum úr
HK, FH og Aftureldingu. Í öðru sæti varð
lið skipað leikmönnum úr HK og þriðja
sætið féll í skaut Fálka, sem er lið skipað
leikmönnum úr Gróttu.
Upphafsmenn strandhandboltans á
Íslandi eru félagarnir Haraldur Þor-
varðarson og Davíð Lúther Sigurðsson.
Haraldur spilaði sem atvinnumaður í
handbolta í Þýskalandi í nokkur ár og
kynntist íþróttinni þar. „Ég bjó í fimm
ár í Þýskalandi meðan ég var atvinnu-
maður í handbolta. Strandhandboltinn
var alltaf spilaður á sumrin þar í landi
og í raun víða í Evrópu, til dæmis í
Danmörku og Noregi. Íþróttin hefur
aldrei verið spiluð hér enda lítið um
strandvelli. Við félagarnir ákváðum að
setja upp mót árið 2004 og það gekk
mjög vel. Mótið hefur notið sívaxandi
vinsælda síðan þá, bæði hjá leikmönn-
um og áhorfendum.“
Leikreglurnar eru nokkuð frá-
brugðnar hefðbundnum handabolta-
reglum. Aðeins fimm spila inn á í einu
og er markmaður liðsins þátttakandi í
sóknarleiknum. „Ef markmaður skorar
fær liðið tvö mörk. Ef lið skorar fallegt
mark fær liðið einnig tvö mörk. Að öðru
leyti gilda svipaðar reglur, það má til
dæmis ekki hlaupa og bara taka þrjú
skref. Leikmenn eru þó lítið að drippla
boltanum enda býður sandurinn ekki
beint upp á það.“
Um kvöldið var lokahóf haldið á
Úrillu Górillunni þar sem verðlaun voru
veitt, meðal annars fyrir besta leik-
manninn í karla- og kvennaflokki. Und-
anfarin ár hefur það færst í vöxt að liðin
keppi í sérstökum búningum. Haraldur
segir stelpurnar yfirleitt metnaðarfyllri
þegar kemur að búningum. „Liðin hafa
mætt í Avatar búningum og sem skjald-
bökur. Það setur mjög skemmtilegan
svip á keppnina á hverju ári.“
STRANDHANDBOLTI
Í SUMARBLÍÐUNNI
BOLTI OG SÓL Níunda Íslandsmótið í strandhandbolta fór fram um helgina.
Leikreglurnar eru nokkuð frábrugðnar hefðbundnum handbolta og kynin spila
gjarnan saman. Mörg liðanna mæta í skrautlegum keppnisbúningum.
SPILAÐ Á STRÖND
Davíð Lúther Sigurðsson
og Haraldur Þorvarðar-
son eru upphafsmenn
strandhandboltans á
Íslandi.
MYND/VILHELM
TEG 3451 - fæst í C,D,E skálum á kr. 5.800,-
buxur í stíl á kr. 1.995,-
MJÚKUR OG ÞÆGILEGUR
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48
rautt st. 36-42
blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt
36-42
Verona
svart, hvítt
st. 36-41
Amsterdam
leður m/míkrófíber sóla
svart, hvítt
st. 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og
rúskinnssóla
st. 36-42
Boníto ehf. • Praxis
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 • www.friendtex.is • soo.dk
Opið mán. – fös. kl. 11–18. Lokað á laugardögum
Verð: 11.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 8.600 kr.
Verð: 10.900 kr.
Verð: 7.690 kr.
Verð: 6.990 kr.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Útsalan
er hafin
H7 Hö
Öflugt höfuðljós fyrir útivistarfólk
Verð: 14.450 kr.
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
Laugavegi 178 - Sími: 568 9955
www.tk.is
ÖÐRUVÍSI
LEIKREGLUR
„Ef markmaður
skorar fær liðið tvö
mörk. Ef lið skor-
ar fallegt mark fær
liðið einnig tvö
mörk.“