Fréttablaðið - 31.07.2012, Qupperneq 23
KYNNING − AUGLÝSING Bílaleigur31. JÚLÍ 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3
Bílaleigan Átak var stofn-uð árið 1979 og er ein elsta starfandi bílaleiga lands-
ins. Átak hefur alla tíð lagt mikla
áherslu á góða þjónustu og sveigj-
anleika gagnvart viðskiptavin-
um sínum. Jóhannes Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Átaks, segir
viðskiptavini fyrirtækisins alltaf
skipa fyrsta sætið. „Við höfum á að
skipa framúrskarandi starfsfólki
sem er boðið og búið til að aðstoða
viðskiptavini okkar og mæta þeim
sérkröfum sem þeir óska eftir. Það
á sérstaklega við um þann fjölda
erlendra ferðamanna sem kemur
hingað og dvelur í nokkra daga.
Slíkir ferðamenn mega ekki við
óþarfa töfum og þá skiptir öllu
máli að bregðast hratt og örugg-
lega við óskum þeirra.“ Höfuð-
stöðvar bílaleigunnar Átaks eru á
Smiðjuvegi í Kópavogi en auk þess
er fyrirtækið með glæsilega starfs-
stöð við Leifsstöð þar sem tekið er
á móti erlendum ferðamönnum og
íslenskum ferðalöngum.
Gott úrval nýrra bíla
Átak hefur yfir að ráða fjölbreytt-
um bílaf lota sem hentar þörf-
um allra viðskiptavina. Bílaleig-
an býður upp á úrval smábíla,
jepplinga og jeppa og meira að
segja litlar rútur og lúxusbíla. Rík
áhersla er lögð á gott úrval vel
útbúinna bíla. Bílafloti Átaks er að
öllum líkindum sá yngsti meðal
bílaleiga hérlendis enda eru allir
bílar árgerð 2011 og 2012. Bíl-
arnir koma frá ýmsum framleið-
endum, meðal annars Volkswa-
gen, Nissan, Suzuki og Hyundai.
„Það eru þó bílar í millistærð eins
og jepplingar sem eru vinsælast-
ir hjá okkur og þá sérstaklega hjá
erlendum ferðamönnum. Við-
skiptavinum okkar finnst gríðar-
lega mikilvægt að vita til þess hve
nýr bílafloti okkar er. Það skiptir
miklu máli að þurfa ekki að huga
að viðgerðum og viðhaldi á stuttu
ferðalagi um landið þegar tíminn
er naumur og allir dagar eru vel
skipulagðir.“ Ferðamenn losna
ekki bara við óþarfa viðgerðir
þegar keyrt er um á nýjum bílum
heldur skiptir öryggisþátturinn
líka mjög miklu. „Það er gríðar-
lega mikill munur á nýjum bíl og
tíu ára gömlum bíl. Það skiptir því
miklu máli fyrir til dæmis fjöl-
skyldur sem koma hingað saman
og ferðast um landið á misgóðum
vegum. Þá er mikið öryggi fólgið
í því að vita til þess að bíllinn sé
nýr og dekkin góð. Það getur bein-
línis verið hættulegt fyrir erlenda
ferðamenn að keyra á slæmum
vegum hérlendis á lélegum bílum
og slæmum dekkjum.“
Íslendingar leigja oftar bíla en
áður
Stærstur hluti v iðsk iptav ina
Átaks eru erlendir ferðamenn.
„Flestir v iðskiptavinir ok kar
koma yfir sumartímann enda
heimsækja f lestir ferðamenn Ís-
land á þeim tíma. Þetta er öll
f lóran, einstaklingar, vinahóp-
ar, hjón eða fjölskyldur. Stærstur
hluti þeirra kemur í gegnum er-
lendar ferðaskrifstofur.“ En þótt
stærstur hluti viðskiptavina sé
erlendur færist það sífellt í vöxt
að sögn Jóhannesar að Íslend-
ingar leigi bíla, bæði til lengri og
skemmri tíma. „Íslendingar eru
farnir að leigja bíla mun oftar
en áður, til dæmis fyrir sumar-
leyfi innanlands. Þá er algengt
að jepplingar og jeppar séu leigðir
enda oft mikill farangur með í för.
Að sama skapi fá margir erlenda
gesti í heimsókn og þá eru bílar
oft leigðir ef sýna á gestum land-
ið. Við höfum líka séð vöxt í lang-
tímaleigu bíla þar sem Íslend-
ingar leigja bíla allt upp í nokkra
mánuði.“
Samstarf við tryggingafélögin
Átak býður upp á ágætt úrval
aukabúnaðar með bílum sínum.
Mikið úrval barnabílstóla er í
boði fyrir alla aldurshópa og hægt
er að leigja lokaðar kerrur fyrir
farangur sem er vinsæll kostur
fyrir þá sem eru á leið upp á fjöll
eða eru fjarri byggðum. „Síðan
leigja f lestir erlendir ferðamenn
GPS tæki sem hjálpar þeim að
rata innanlands.“ Bílaleigan Átak
er einnig í samstarfi við öll trygg-
ingafélögin hérlendis. Þannig
gefst viðskiptavinum trygginga-
félaganna kostur á að fá bíl hjá
Átaki ef þeir lenda í óhappi og ef
þeir eiga rétt á bíl. „Viðskiptavin-
ir tryggingafélaganna hafa verið
mjög ánægðir með þá þjónustu og
sérstaklega í ljósi þess að bílarnir
okkar eru alltaf nýir.“
Nýir bílar tryggja öryggi
viðskiptavinarins
Megináherslur bílaleigunnar Átaks felast í traustri og góðri þjónustu. Bílafloti leigunnar samanstendur einungis af nýjum bílum.
Íslendingar nýta sér bílaleigubíla í meira mæli en áður fyrir sumarleyfin og skammtímaleigu yfir vetrartímann.
„Viðskiptavinum okkar finnst mikilvægt að vita til þess hve nýr bílafloti okkar er,” segir Jóhannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri Átaks . MYND/ERNIR
Lokaðar kerrur eru vinsælar í lengri ferðir.
Átak býr yfir fjölbreyttum bílaflota sem hentar þörfum allra viðskiptavina. Átak leigir „Tengdamömmubox”.
Smábílar eru vinsælir í styttri og lengri ferðir.
Jepplingar búa yfir góðu farangursplássi.
Jeppar eru vinsælir í fjallaferðir.