Fréttablaðið - 31.07.2012, Síða 46
31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR34
„Við bjóðum aðallega upp á
nautakjötið okkar því það er
kúabú á bænum. Við erum með
gúllassúpu, nautasteik, ham-
borgara og steikarsamlokur,“
segir Eygló Scheving, söngkona
hljómsveitarinnar Vicky, sem
hefur lagt hljóðnemann á hill-
una að mestu í sumar en hún opn-
aði veitingahúsið Gamla fjósið á
sveitabæ móður sinnar Hvassa-
felli undir Eyjafjöllum af alvöru
í vor.
Hún rekur staðinn með móður
sinni, Heiðu Björgu Scheving,
og gerðu þær upp gamalt fjós.
„Þetta er ekki eins og hver önnur
vegasjoppa heldur upplifun fyrir
ferðamenn,“ segir hún og telur að
þeir upplifi gamla sveitamenn-
ingu staðsettir í fjósi með útsýni
yfir nautgripi bæjarins. „Og fá
sér svo bita,“ segir hún og hlær.
Hljómsveitin Vicky gaf út aðra
breiðskífu sína, Cast a Light,
í október og hafa lög hennar
hljómað í útvarpi en margir ættu
að kannast við lagið Feel Good.
„Það er rólegra yfir hljómsveit-
inni út af þessu og svo flytur
Ástrós bassaleikarinn okkar út
til Flórída í haust og við ætlum
að taka okkur smá pásu,“ segir
Eygló. Ekki er vitað hvort tími
gefist fyrir kveðjutónleika en
hún lofar þrusustuði þegar sveit-
in tekur lagið á Þjóðhátíð á laug-
ardaginn.
Eygló er ekki eini meðlimur
Vicky sem dvelur undir Eyja-
fjöllum en Karlotta Laufey gítar-
leikari stendur vaktina í Gamla
fjósinu og Orri trommuleikari
býr á næsta bæ. En ætla þau að
semja í sveitinni? „Það var hug-
myndin en það hefur verið brjál-
að að gera. Karlotta og Orri hafa
samt samið í skjóli nætur,” segir
hún. Matseðill staðarins er fjöl-
breyttur og er opið í fjósinu milli
klukkan 11 og 22 í sumar.
- hþt
HELGIN
„Planið er að setjast niður og fara
yfir málin,“ segir grínistinn Hall-
dór Halldórsson.
Grínhópurinn Mið-Ísland hélt
til Danmerkur í morgun á vegum
framleiðslufyrirtækisins Douglas
Entertainment, sem er stýrt af
grínistanum Casper Christensen,
öðrum helmingi Klovn-tvíeykis-
ins. Hópurinn dvelur í Danmörku
í viku og hittir þar forsvarsmenn
Douglas Entertainment ásamt því
að taka upp grínatriði sem verða
sýnd í þættinum FunnyHaHa TV
á sjónvarpsstöðinni Zulu.
Halldór vildi lítið tjá sig um
málið í samtali við Fréttablaðið
sökum þess hversu skammt það
er komið á leið. Hann staðfestir
þó að Mið-Ísland hafi setið við
skriftir í sumar fyrir verkefnið
og að tilgangurinn sé að sýna
danskt samfélag í öðru ljósi;
nokkurs konar sýn aðkomumanna
á landið.
„Maður á sem minnst að segja
á þessu stigi málsins. En upphaf-
lega stóð til að við yrðum með
einn sketch í hverjum þætti serí-
unnar,” segir Halldór. „Hvort það
haldi verður bara að koma í ljós.
En þetta er önnur sería af Funny-
HaHa TV, og er hún sýnd á sjón-
varpstöðinni Zulu.”
Nafn þáttarins er dregið af
vefsíðu Caspers, þar sem frægt
atriði Mið-Íslands um Andrés
Önd var birt á sínum tíma. Áhugi
Caspers og félaga kom til í kjöl-
farið á atriði úr Mið-Íslandsþátt-
unum sem voru sýndir á Stöð 2 í
vetur. Atriðið fjallaði um harm-
ræna dogmamynd byggða á ævin-
týrum Andrésar og naut gríðar-
legra vinsælda en áhorfin slaga
upp í samtals eina milljón á
nokkrum vefsíðum.
atlifannar@frettabladid.is
HALLDÓR HALLDÓRSSON: PLANIÐ AÐ SETJAST NIÐUR OG FARA YFIR MÁLIN
Mið-Ísland tekur upp grín
fyrir danskt sjónvarp
ÍSLENSKT GRÍN
Í DANMÖRKU
Mið-Íslandshópurinn fór til
Danmerkur í morgun þar sem
hann hyggst taka upp grín
fyrir danskt sjónvarp. Hér er
hópurinn ásamt Ragnari Hans-
syni leikstjóra. Danski grínistinn
Casper Christensen er einn
af framleiðendum
grínatriðanna
sem Mið-
Ísland tekur
upp úti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Í SVEITASÆLU Eygló Scheving ásamt
Karlottu Laufeyju við Gamla fjósið þar
sem þær bjóða ferðalanga velkomna
með fjölbreyttum matseðli sem fangar
sveitasæluna undir Eyjafjöllum.
Söngkona Vicky matreiðir í fjósi
„Ég skipulegg ásamt öðrum
Inniskóinn, raftónlistarhátíð
sem byrjar á fimmtudag og
stendur yfir alla helgina. Ég
verð því á Þýska barnum og
síðan ætla ég bara að hafa það
kósí í rólegum bænum.“
Pan Thorarensen, raftónlistarmaður.
Hlédís Sveinsdóttir er meðlimur í
hinu nýstofnaða Valhopparafélagi
Íslands. Félaginu er ætlað að fram-
kalla bros á vörum félagsmanna
enda er ómögulegt að valhoppa í
fýlu.
„Hugmyndin kom frá Þráni Sig-
urðssyni, frænda mínum, í vetur.
Ég, hann og systir hans, Matthea,
vorum að ræða saman og hann
varpaði fram þeirri kenningu að
það væri ekki hægt að valhoppa og
vera í fýlu. Eftir nokkrar tilraunir
komst ég að því að þetta mun vera
hverju orði sannara, þetta er bara
eins og þyngdarlögmálið; sama
hvað þú reynir færðu ekki epli til
að detta upp,“ útskýrir Hlédís og
bætir við að einkunnarorð félags-
ins séu að „skokka skemmtilega“.
Innt eftir því hvort fjöldi með-
lima Valhopparafélagsins hafi
farið vaxandi frá stofnun þess
segir Hlédís að það vekji í það
minnsta eftirtekt og býður um leið
alla velkomna að ganga til liðs við
félagið. Enn sem komið er hafa
meðlimir félagsins ekki valhoppað
saman en ætla að gera það í fyrsta
sinn í Reykjavíkurmaraþoninu
sem fer fram þann 18. ágúst. Hlé-
dís efast um að hún geti valhopp-
að alla tíu kílómetrana en ætlar þó
að valhoppa inn á milli þess sem
hún skokkar. Félagið ætlar sér að
styrkja hinn þriggja ára gamla
Steinar Mána sem varð fyrir lang-
varandi súrefnisskorti við fæð-
ingu og hlaut í kjölfarið töluverðan
heilaskaða og lága vöðvaspennu.
„Ég kynntist mömmu hans
þegar ég eignaðist mína stelpu
fyrir einu og hálfu ári síðan. Mín
dóttir varð líka fyrir langvarandi
súrefnisskorti við fæðingu og það
var ómetanlegt að fá að tala við
foreldri sem skildi mann og stapp-
aði í mann stálinu,“ segir Hlédís
að lokum.
Hægt er að leggja Steinari Mána
lið á síðunni Hlaupastyrkur.is með
því að heita á Mattheu Sigurðar-
dóttur sem hleypur undir núm-
erinu 2213. - sm
Ómögulegt að valhoppa í fýlu
VALHOPPARI Hlédís Sveinsdóttir er
meðlimur í hinu nýstofnaða Valhoppara-
félagi Íslands. Hér er hún ásamt dóttur
sinni, Sveindísi Helgu.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi.
Hagkaup, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Hrannarbúðin Grundarfirði. Skipavík, Stykkishólmi. VESTFIRÐIR:
Verslunin Ranglátur, Tálknafirði. Fjölval, Patreksfirði. Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Drangsnesi. Snerpa Ísafirði.
NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Smárabær, Blönduósi.
Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Valberg, Ólafsfirði. SR Byggingavörur, Siglufirði. Hagkaup, Akureyri. Heimilistæki,
Akureyri. Víkurraf, Húsavík. AUSTURLAND: Tölvulistinn, Egilsstöðum, Kauptún, Vopnafirði. Nettó, Höfn Hornafirði.
SUÐURLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Geisli, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuþjónusta Benna, Grindavík.
Heimilistæki, Reykjanesbæ. Hagkaup, Njarðvík.
ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ
FYRIR LÍTIÐ. HENTA
VEL HVORT SEM
ER Í STOFUNA,
HERBERGIÐ,
Á HÓTELIÐ,
SUMARBÚSTAÐINN
EÐA HJÓLHÝSIÐ.
MEÐ
DVD
SPILARA
TILBOÐ 49.990
FULLT VERÐ kr. 59.990
Finlux 22FLX850DVUD
22“ HD LCD SJÓNVARP með DVD spilara,
1366x768p upplausn, stafrænum DVB-T mót-
takara og er 12/220v. Fjöldi tengimöguleika m.a.
Scart, HDMI, USB marg miðlunartengi, Digital Coax,
Heyrnartólstengi og CI rauf fyrir afruglarakort.
12/230v