Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 11

Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 11
MÁNUDAGUR 10. september 2012 11 0,0 0,5 1,0 1,5 2,0 2,5 3,0 Fyrir LYFIS 2,93 milljarðar 40 LYFIS lyfjum síðar, 2 ár 1,79 milljarðar Stöndum saman – höldum áfram að lækka lyfjaverð LYFIS lækkar lyfjakostnað landsmanna Grensásvegi 22 | S ími 534 3500 | www.lyf is . i s 1.140.775.071 kr. er árlegur sparnaður ríkis og þegna vegna 40 fyrstu lyfja LYFIS og þeirra verðlækkana sem orðið hafa vegna þeirra nú þegar. Útreiknaður heildarmarkaður vegna þeirra 40 lyfjategunda sem LYFIS hefur komið með samheitalyf við. 2,93 milljarðar kr: heildarsala allra framleiðanda á lægsta mögulega smásöluverði fyrir innkomu LYFIS. 1,79 milljarðar kr: heildarsala allra framleiðanda á lægsta mögulega smásöluverði í september 2012. Með því að velja ódýrasta lyfið stuðlar þú að áframhaldandi og varanlegri lækkun lyfjaverðs - er þér boðið ódýrasta lyfið í apótekinu þínu? LYFIS ehf. er samheitalyfjafyrirtæki sem selur lyf undir eftirfarandi vörumerkjum frá framleiðendum sem eru í hópi þeirra þekktustu og öflugustu, með lyf á markaði um allan heim. Við hvetjum þig til að vera vakandi fyrir þessum heitum og styðja þannig aukna samkeppni á lyfjamarkaði og lækkandi lyfjaverð. Ert þú þátttakandi í að lækka lyfjaverð? ...en á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10% HÖFÐI Húsið verður opnað á ný næsta sumar vegna þess hversu vel þótti ganga í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON REYKJAVÍK 6.300 manns heimsóttu Höfða í sumar. Húsið var opið gestum og gangandi yfir sumar- mánuðina í tilraunaskyni. Ákveðið var að aðgangur að húsinu yrði ókeypis en settur var upp baukur þar sem tekið var við frjálsum framlögum. Rúmlega 105 þúsund krónur höfðu safnast í baukinn eftir sumarið. Ákveðið var að rúmlega 75 þúsund færu í viðhald hússins en 30 þúsund krónur voru gefnar til Vildar- barna. Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá hefur verið ákveðið að opna Höfða á nýjan leik næsta sumar. - þeb Sumarið gert upp: 6.300 gáfu 105 þúsund í Höfða SELFOSS Umsvif ferðaþjónustu hafa aukist í Árborg eins og víðast. SVEITARSTJÓRNIR „Slík fyrirvara- laus, einhliða ákvörðun myndi setja rekstur greinarinnar í algert uppnám,“ segir bæjarráð Árborgar sem mótmælir harð- lega hugmyndum um að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu úr sjö prósentum í 25,5 prósent. Bæjarráð skoraði á þingmenn „að standa vörð um uppbyggingu eins helsta vaxtarsprota í atvinnulíf- inu á Íslandi“. Bæjarráðsmaður Samfylk- ingarinnar sat hjá. „Sjálfsagt og eðlilegt er, áður en ákvörðun um skattahækkun á ferðaþjónustuna er tekin, að ganga úr skugga um hvort gengið sé of nálægt grein- inni með hugsanlegri skattlagn- ingu,“ bókaði hann. - gar Skattahækkun á ferðaiðnað: Árborg með hörð mótmæli Vilja losna við ágang refa Félag sumarhúsaeigenda í Farengi í Grímsness- og Grafningshreppi hefur kvartað til sveitarfélagsins undan ágangi refa á svæðinu. Sveitarstjórnin segir refa- og minkaskyttur sveitar- félagsins bregðast við þegar haft sé samband við þær. UMHVERFISMÁL BANDARÍKIN Mitt Romney, for- setaframbjóðandi Repúblik- anaflokksins, sagði í viðtali á NBC-sjónvarpsstöðinni í gær að kæmist hann til valda myndi hann láta sumar þær breytingar sem Barack Obama forseti hefur gert á heilbrigðiskerfi Bandaríkj- anna halda sér. „Auðvitað eru þó nokkur atriði í umbótunum á heilbrigðiskerfinu sem falla mér í geð,“ sagði Rom- ney. „Eitt af þeim er að tryggja að þeir sem greinst hafa með sjúkdóma áður en þeir sækja um tryggingu fái hana.“ Romney sagði einnig að hann myndi leyfa ungu fólki að nýta tryggingar foreldra sinna, en þetta tvennt hefur hlotið einna mesta almannahylli af þeim umbótum sem eru í nýju heil- brigðislöguwnum. „Ég hef sagt að við munum setja ný heilbrigð- islög og það mun ég gera,“ sagði Romney. „Ég mun setja mín eigin lög. Og þegar ég var ríkisstjóri í Massachusetts þá voru þessi ákvæði um fyrirfram greinda sjúkdóma og tryggingar ungs fólks hluti af heilbrigðisstefnu okkar.“ Romney varði einnig í viðtal- inu þá ákvörðun sína að minnast ekki á Afganistan og veru banda- rískra hersveita þar í ræðunni sem hann hélt þegar hann hlaut útnefninguna sem forsetafram- bjóðandi. Hann sagðist hafa verið í Afganistan og að hersveitirn- ar þar vissu að þær skiptu hann máli. „Ég hef ekki sömu stefnu og forsetinn og mér finnst það skipta meira máli en hvaða orð ég nota í ræðum mínum,“ sagði hann. - fsb Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikana, dregur í land í sjónvarpsviðtali: Vill halda nokkrum ákvæðum í heilbrigðislögum EKKI SINNASKIPTI Mitt Romney segist hafa haft nokkur ákvæði nýju heil- brigðislaganna í heilbrigðisstefnu sinni sem ríkisstjóri í Massachusetts. HAUS Í HAFI Ný hvít stytta er risin við ströndina í Rio de Janeiro í Brasilíu. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.