Fréttablaðið - 10.09.2012, Blaðsíða 12
10. september 2012 MÁNUDAGUR12
Perudagar
Nú þegar hausta tekur og landsmenn verða
áþreifanlega varir við myrkrið, ætlar Glóey
að efna til svokallaðra perudaga sem standa
munu dagana 10.-14. september.
Verslunin býður þá viðskiptavinum sínum
aðstoð og lausnir við val á ljósaperum og
verða allar perur seldar á sérstökum
afslætti.
Boðið verður upp á ráðgjöf varðandi orku-
sparnað í inni- og útiljósum og hvað er til
ráða vegna glóperubannsins.
Þessa dagana brenna ýmsar spurningar á
fólki.
Er hægt að dimma sparperur?
Fæ ég perur í gömlu ljósakrónuna mína?
Fást sérperur áfram sem glóperur?
Eru allar sparperur með blárri/gulri birtu?
Verslunin Glóey er til húsa í Ármúla 19.
BRETLAND Zeena al-Hilli, litla stúlk-
an sem slapp ómeidd úr morðárás-
inni í Haute Savoie í Frakklandi á
miðvikudaginn, fékk að fara heim
til Bretlands í gær. Ættingjar
hennar fóru til Frakklands í fylgd
félagsráðgjafa og sóttu hana eftir
að franski saksóknarinn Eric Mail-
laud hafði yfirheyrt hana og komist
að þeirri niðurstöðu að hún hefði
ekki séð neitt. Systir hennar, Zai-
nab, er nýkomin til meðvitundar
á háskólasjókrahúsinu í Grenoble,
en hún var skotin í öxlina og barin
í höfuðið. Báðir foreldrar stúlkn-
anna létust í árásinni auk 74 ára
gamallar konu, sem talin er vera
móðuramma þeirra, og hjólreiða-
manns sem bjó í nágrenninu.
Niðurstöður krufninga lágu
fyrir á föstudagskvöld og leiddu
þær í ljós að öll fórnarlömbin höfðu
verið skotin nokkrum sinnum auk
þess að vera barin. Franska og
breska lögreglan vinna saman að
rannsókn málsins og einnig hefur
franska lögreglan óskað eftir
aðstoð frá ítölskum og svissnesk-
um kollegum sínum. Á laugardag
hófst rannsókn á heimili al-Hilli-
fjölskyldunnar í Claygate á Eng-
landi í leit að einhverju sem gæti
gefið til kynna ástæðu fyrir morð-
unum, sem lögreglan segir að hafi
greinilega verið skipulögð. Orð-
rómur hefur verið uppi um að Saad
al-Hilli og bróðir hans, Zaid, hafi
átt í deilum vegna peningamála,
en lögreglan segir Zaid neita því
staðfastlega og varar við því að
fólk hrapi að ályktunum. Zaid hafi
réttarstöðu vitnis, eins og aðrir
fjölskyldumeðlimir.
Í gær var fjölskyldunnar minnst
við messu í Claygate og sagði einn
kirkjugesta í samtali við BBC að
stemningin hefði verið mjög til-
finningaþrungin og þessir skelfi-
legu atburðir hefðu þjappað þorps-
búum saman. „Ef litlu stúlkurnar
koma hingað aftur er alveg öruggt
að sá sem sér um þær fær mikinn
stuðning,“ sagði þessi ónefndi íbúi
Claygate. fridrikab@frettabladid.is
Bróðirinn
hefur réttar-
stöðu vitnis
Franska og breska lögreglan vinna saman að rann-
sókn morðárásarinnar í Haute Savoie. Yngri dóttirin
fékk að fara heim til Bretlands í gær, en þeirri eldri
er enn haldið sofandi á sjúkrahúsi í Sviss.
SAMÚÐARKVEÐJUR Lögreglumaður kemur fyrir blómvöndum frá syrgjandi þorps-
búum við hús al-Hilli-fjölskyldunnar í Claygate. NORDICPHOTOS/GETTY
ÁFALL Syrgjandi konur sem kynntu sig sem fjölskylduvini al-Hilli-fjölskyldunnar.
HÚSIÐ RANNSAKAÐ Heimili al-Hilli-
fjölskyldunnar í Claygate í Surrey á
Englandi.
Save the Children á Íslandi