Fréttablaðið - 10.09.2012, Síða 14
14 10. september 2012 MÁNUDAGUR
E
f fram heldur sem horfir verður lagaákvæði um að tveir
þriðju hlutar starfsmanna leikskóla skuli vera með leik-
skólakennarapróf ekki uppfyllt fyrr en árið 2041 í allra
fyrsta lagi. Sá útreikningur miðast þó við að hvert þeirra
180 námsplássa sem til boða standa ár hvert séu fullnýtt
og að ekkert brottfall berði úr námi og allir útskrifaðir skili sér
til starfa.
Á sama tíma dregur úr aðsókn
í leikskólakennaranám og á því
námsári sem nú er nýhafið er
langt frá því að hvert námspláss í
greininni sé skipað. Þetta er held-
ur öfugsnúið. Enginn sem hefur
kynnt sér kjör leikskólakennara
getur þó undrast ástandið. Þessi
kjör eru ekki aðlaðandi og í raun auðvelt að setja sig í spor ungs
fólks sem stendur frammi fyrir því að velja sér námsbraut, eða
velja það að fara beint út á vinnumarkaðinn án þess að verja tíma
og peningum í starfsmenntun, að laun sem losa 300 þúsund krónur
á mánuði séu ekki freistandi kostur eftir fimm ára háskólanám
með tilheyrandi söfnun námslánaskulda í tilviki flestra, auk þess
sem starfsævin hefst jú síðar eftir því sem nám er lengra.
Starf leikskóla hér á landi er til fyrirmyndar þökk sé einvala-
liði sem hefur valið sér þennan starfsvettvang þrátt fyrir kjörin.
Undan farin ár hefur auk þess átt sér stað þróun í starfi leikskól-
anna, þróun sem gerir vaxandi kröfur til starfsfólks.
Námskrá fyrir leikskóla er á forræði ríkisins þannig að mennta-
málayfirvöld í landinu leggja línurnar um innra starf leikskólanna
og um leið kröfur sem gerðar eru til starfsmanna þeirra. Menntun
leikskólakennara er sömuleiðis á borði ríkisins.
Rekstur leikskóla er hins vegar á forræði sveitarfélaganna í
landinu. Það eru þau sem semja um kaup og kjör við leikskóla-
kennara, og annað starfsfólk leikskóla, og greiða þeim launin.
Í takt við aukinn metnað ríkisins um innra starf leikskóla hefur
leiksólakennaranám verið lengt úr þremur árum í fimm. Á fáeinum
áratugum hefur nám leikskólakennara þannig þróast frá því að
vera þriggja ára nám á framhaldsskólastigi yfir í að vera fimm ára
háskólanám. Þessi þróun endurspeglast hins vegar á engan hátt
í launaþróun leikskólakennara. Metnaður menntamálayfirvalda
fyrir fyrsta skólastiginu, leikskólanum, eykst sem endurspeglast
í námskránni og auknum kröfum um menntun leikskólakennara. Á
sama tíma standa sveitarfélögin fast á bremsunni varðandi launa-
kjör stéttarinnar. Þannig virðist sem ríki og sveitarfélög gangi
ekki alveg í takt þegar kemur að málefnum leikskólanna.
Þá má velta fyrir sér tilganginum með lagasetningu sem ljóst
er að ekki verður hægt að uppfylla fyrr en eftir nokkra áratugi,
og viljanum til að fara að lögum þegar mál standa eins og raun
ber vitni. Eitthvað verður undan að láta því það er ólíklegt að
hægt verði að freista nægilega margra til þess að leggja út í fimm
ára háskólanám upp á þau býti sem bjóðast í leikskólunum. Ríki
og sveitarfélög þurfa að ganga í takt og sá taktur verður að vera
raunhæfur.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Steinnunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
SKOÐUN
ÚTSALA
STÓRLÆKKAÐ VERÐ
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
ÆGIR TJALDVA
GN*
+ fortjald og yfir
breiðsla
Útsöluverð kr. 890
.000.
*Leiguvagn árg.
2012
Ríki og sveitarfélög verða að ganga
í takt í leikskólamálum:
Vandinn liggur
í kjörunum
Síðastliðinn fimmtudag skrifaði Jón Steinsson mikla lofræðu um ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur í Fréttablaðið. Jóni
svíður að stjórnvöld skuli ekki njóta sann-
mælis meðal íslensks almennings og tínir til
ýmis atriði sem hann telur henni til tekna.
Vissulega er rétt hjá Jóni að ríkisstjórnin er
ekki alslæm og ýmislegt hefur áunnist við
að reisa landið úr rústum fjármálahrunsins.
En heldur þótti mér sérkennilegt að telja til
afreka tvö af stærstu mistökum stjórnar-
innar.
Í greininni hrósar Jón stjórnvöldum fyrir
vel heppnaða einkavæðingu bankanna og að
hafa ekki farið í almennar aðgerðir til hjálp-
ar skuldugum heimilum. Einmitt í þessum
tveimur atriðum greinir á milli stefnu stjórn-
valda og þeirra leiða sem Framsóknarflokk-
urinn lagði til í kjölfar hrunsins.
Við lögðum til að við uppgjör milli gömlu
og nýju bankanna yrði svigrúmið sem þar
myndaðist nýtt til að fara í almennar leiðrétt-
ingar á lánum heimila og fyrirtækja. Með því
yrði tryggt að jafnt yrði látið yfir alla ganga
og þeir sem varlega fóru fengju aðstoð, ekki
síður en þeir sem spenntu bogann of hátt
fyrir hrun. Tekið yrði tillit til hugsanlegs
ólögmætis gengistryggingarinnar við upp-
gjörið og kröfuhafar látnir taka ábyrgð á
óvarlegum lánveitingum til bankanna.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
hunsaði þetta allt. Andlitslausum vogunar-
sjóðum voru afhentar skuldir heimilanna
til innheimtu og aðgangsharka þeirra hefur
skilað bönkunum 200 milljarða hagnaði
frá hruni. Jón heldur því fram að tillögur
Framsóknarmanna hefðu „verðlaunað þá
sem fóru sér að voða fjárhagslega á árunum
fyrir hrun á kostnað þeirra sem fóru var-
legar“. Staðreyndin er sú að það er einmitt
það sem núverandi stjórnvöld hafa gert.
Helstu úrlausnir á skuldavandanum hafa
ekki komið frá ríkisstjórninni, heldur með
þrautseigju einstaklinga fyrir dómstólum.
Aðgerðir stjórnvalda hafa nánast verið eins
og að spila í rússneskri rúllettu – hending
ein hefur ráðið því hvort tegund láns, orða-
lag samninga, tímasetning eða veð hafa
orðið til þess að fólk hafi fengið úrlausn
sinna mála eða skilið eftir í skuldafjötr-
unum.
Í aðgerðum stjórnvalda hefur ekki fal-
ist nein sanngirni, réttlæti eða jöfnuður.
Afleiðingin er að aldrei hafa fleiri Íslend-
ingar verið á vanskilaskrá og aldrei fleiri í
vanskilum við Íbúðalánasjóð.
Það er spurning hvort í orðum Jóns
Steinssonar endurspeglist málshátturinn
að fjarlægðin geri fjöllin blá og mennina
mikla.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá
Efnahagsmál
Eygló
Harðardóttir
Alþingismaður
Kona
Sjálfstæðisflokkurinn þarf senn að
velja sér nýjan varaformann enda
ætlar sá sem nú situr, Ólöf Nordal,
að flytja til Sviss. Ekki er vitað hver
verður næsti varaformaður, en þó
bendir allt til þess að hann verði
kona. Um það virðast alltént allir vera
sammála sem hafa tjáð sig um
málið, hvort sem það eru Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir og Unnur
Brá Konráðsdóttir, þingkonur
flokksins, Grétar Eyþórsson
stjórnmálafræðingur eða Björn
Bjarnason, fyrrverandi ráðherra,
sem segir á vef sínum að
næsti varaformaður verði
„að öllum líkindum kona“.
Augljósasti kosturinn
Flokkurinn þykir þurfa konu í varafor-
mannsembættið eftir að Ragnheiður
Elín Árnadóttir var sett af sem þing-
flokksformaður. Ragnheiður var
óánægð með breytinguna og lýsti
metnaði sínum til ráðherrastöðu í
viðtali við Fréttablaðið í síð-
ustu viku. Blasir ekki
við að Ragnheiður
gefi kost á sér sem
varaformaður
flokksins? Og
mun einhver
eiga roð í
hana?
Afturkvæmt
Það væri þá kannski helst gamli
varaformaðurinn, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, sem gæti velgt henni
undir uggum. Þótt hún hafi hætt
varaformennskunni vegna umdeildra
hrunmála þá er ekki þar með sagt
að hún geti ekki átt afturkvæmt.
Fordæmið var jú sett þegar
Illugi Gunnarsson sneri aftur í
þingflokksformannsstólinn á
dögunum.
stigur@frettabladid.is