Fréttablaðið - 10.09.2012, Page 17
PÚÐAR LÍFGA UPP Á UMHVERFIÐ
Oft kemur þörf á breytingum heima við á haustin. Hægt er
að lífga upp á umhverfið með nýjum púðum og fallegum
ábreiðum. Víða er hægt að kaupa fallega púða og sömu-
leiðis er auðvelt að panta þá á netinu. Púðar eru mikið í
tísku um þessar mundir.
Húsnæði kvennaathvarfsins er orðið of lítið enda hefur ásókn í það aukist jafnt og þétt. Flutn-
ingur í stærra húsnæði er því óum-
flýjanlegur. „Í sumar voru hjá okkur um
20 konur og börn á tímabili í fjórum her-
bergjum,“ segir Sigþrúður Guðmunds-
dóttir framkvæmdastýra.
Átta konur starfa hjá Kvennaathvarf-
inu, þar af fimm á vöktum allan sóla-
hringinn allan ársins hring. „Oft er mik-
ill erill í húsinu og þá er fullt af konum
og börnum og ófyrirsjáanleiki starfsins
nokkur. Álag á starfsfólk er því mikið. Á
móti kemur ánægjan sem fylgir því að
sjá konur yfirgefa skaðlegar aðstæður
og hefja nýtt og betra líf.“
Öll með tölu er átak sem er endur-
vakið frá 1992 þar sem seldar voru
tölur. Talan fæst í mörgum litum og á
henni er merki kvennaathvarfsins.
„Hún fæst í verslunum Krónunnar,
Nóatúns, Samkaupa, Te og kaffis, á
Póstinum, í Bóksölu stúdenta, Nettó,
Kjarvali og víðar. Hún er líka seld á net-
inu og send hvert á land sem er.“
Þörfin fyrir kvennaathvarf er raun-
veruleg, en um leið sorgleg. „Óskandi
væri að þörfin væri engin, en svo er
ekki. Við leitum því til fólksins í landinu
sem hefur reynst okkur vel í gegnum
tíðina um að styrkja okkur og styrkja
þar með innviði samfélagsins.“ Nánari
upplýsingar á www.ollmedtolu.is.
ÖLL MEÐ TÖLU
SAFNAÐ FYRIR HÚSI Kvennaathvarfið hefur í dag söfnunarátak fyrir nýju
húsnæði undir nafninu Öll með tölu en þörfin er mikil.
TÖLUR TIL SÖLU
Tölur til styrktar
Kvennaathvarfinu
eru í mörgum litum.
Þær verða til sölu í
fjölda verslana og á
vefslóðinni:
www.ollmedtolu.is.
Verð: 1000 krónur
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*
Gerið gæða- og verðsamanburð
*3,5% lántökugjald
Ný sending
af hágæða
sængurverasettum
i
BOAS RAFDRIFNIR
Leður hægindasófar
og stólar
i
l
NÝT
T