Fréttablaðið - 10.09.2012, Side 54

Fréttablaðið - 10.09.2012, Side 54
10. september 2012 MÁNUDAGUR22 22 popp@frettabladid.is Dauðarokkssveitin Angist hefur gert samning við bandaríska útgáfufyrirtækið Abyss Records. Fyrirtækið mun gefa út fyrstu breiðskífu Angistar á næsta ári. Angist fór í tónleikaferð um Frakkland í fyrra með rokkur- unum í Ĺ Esprit du Clan og gaf út stuttskífuna Circle of Suffering. Hún kom út í Bandaríkjunum í sumar á vegum Abyss. Meðlimir Angistar, sem lenti í öðru sæti í keppninni Wacken Metal Battle í fyrra, eru þau Edda Tegeder Ósk- arsdóttir, Gyða Hrund Þorvalds- dóttir, Haraldur Ingi Shoshan og Tumi Snær Gíslason. Samningur við Abyss ANGIST Dauðarokkararnir hafa gert samning við Abyss Records. … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Reykjalundarkórinn e r blandaður kór sem æfir á miðvikudagskvöldum k l. 2 0 í háttíðarsal Reykjalundar. Aldr ie o f seint ða b yrja, la lir velkom in r. Stjórn R eykj la unda kr ór is ns. Upplýsingar: A nna Rósa 8 56 6- 011 og P áll 660-3017 Reykjalundarkórinn vantar söngfólk. Popparinn og leikarinn Justin Timberlake verður hugsanlega einn af eigendum NBA-körfubol- taliðsins Memphis Grizzlies. Vænt- anlegur eigandi félagsins, Robert Pera, hefur viðurkennt að Timber- lake hafi áhuga á að kaupa með sér hlut í félaginu. Sexy Back-söngvarinn fædd- ist í Memphis og hefur verið dug- legur við að fara á NBA-leiki víða um Bandaríkin í gegnum árin svo eftir hefur verið tekið. Líklegt er að núverandi eigandi Grizzlies, Michael Heisley, ætli að selja hinum 34 ára Pera og fleiri fjár- festum meirihlutann í liðinu. Einn þeirra er Timberlake, sem er góður vinur Pera. Fregnir herma að popparinn ætli að taka virkan þátt í rekstri liðsins, enda hefur hann mikinn áhuga á öllu sem við- kemur slíkum rekstri. Timberlake er annars þessa dag- ana að leika í myndinni Runner, Runner á móti Ben Affleck og Gemmu Arterton. Leikstjóri er Brad Furman sem síðast gerði The Lincoln Lawyer. Myndin er væntan leg í bíó á næsta ári. Vill kaupa hlut í körfuboltaliði JUSTIN TIMBERLAKE Popparinn og leikarinn er mikill körfuboltaaðdáandi og vill eignast hlut í Memphis Grizzlies. Ellen DeGeneres segist ekki hafa áhuga á að eignast börn. Orðróm- ur hefur verið uppi um að hún og eiginkona hennar, leikkonan Portia de Rossi, ætli að stofna fjölskyldu. Hann er greinilega ekki á rökum reistur. „Ég veit ekki af hverju fólk vill að við eignumst börn. Ég hef sagt það svo oft að við ætlum ekki að eignast börn. Svo eru fréttir í gangi um að við séum að leita að sæðisgjafa,“ sagði spjallþátta- stjórnandinn í viðtali við annan slíkan stjórnanda, Jay Leno. Hún bætti þó við að Leno yrði góður sæðisgjafi ef henni myndi snúast hugur. Vill ekki eignast börn ENGINN ÁHUGI Ellen DeGeneres hefur engan áhuga á því að eignast börn. Lindsay Lohan sendi Barack Obama skilaboð í gegnum Twitter þar sem hún óskaði eftir skatta- lækkunum handa einstaklingum á Forbes-listanum. Obama ritaði á Twitter-síðu sína að hann hefði lækkað skatta þeirra er helst þurftu á skattalækk- unum að halda; miðstéttarinnar og smáfyrirtækja. Lohan svaraði forsetanum með þessum orðum: „Við þurfum líka að lækka skatta fyrir þá sem eru skráðir milljarðamæringar á Forbes, ef þeir eru það ekki. Þú verður að íhuga það einnig.“ Ummæl- in vöktu athygli ekki síst fyrir þá staðreynd að fáir skilja yfirleitt hvað leikkonan á við með þeim. Sendi forseta skilaboð Tónlist ★★★★★ Rokkjötnar Kaplakriki 8. september Það voru sannkallaðir maraþon- rokktónleikar í íþróttahúsinu í Kaplakrika á laugardaginn. Átta rokkhljómsveitir í þyngri kantin- um stigu á svið. Sú fyrsta, End- less Dark, hóf leik um fjögurleytið, en sú síðasta, Ham, lokaði dag- skránni tæpum níu klukkutímum síðar. Þetta var í fyrsta sinn sem haldnir hafa verið rokktónleikar af þessari stærðargráðu hér á landi, án þess að erlendar sveitir séu á dagskránni. Rokkjötnarnir tókust frábærlega. Það var góð stemning í húsinu frá byrjun og það var góður stígandi í dagskránni. Það voru frekar fáir mættir þegar ég kom á staðinn. Þá var kynnir kvöldsins, Haukur Morðingi, að kynna hljómsveit- ina Momentum á svið, en hún var önnur í röðinni á laugardaginn. Það fjölgaði hins vegar fljótt í salnum. Momentum stóð sig vel, þeir félagar komu sínu níðþunga og þróaða rokki vel til skila. Á eftir þeim var röðin komin að gömlu brýnunum í Bootlegs. Þeir tóku þetta á keyrslunni og enduðu á því að fá 25 manna kór á svið, Karlakór Sjómannaskólans söng með þeim lagið Krummi svaf í klettagjá. Flott. Vintage Caravan var næst. Þetta er ung sveit, var að gefa út plötu númer tvö. Þeir eru hins vegar greinilega sviðs- vanir og sýndu fín tilþrif. Salur- inn var orðinn mjög heitur þegar Brain Police spilaði sitt sett. Þeir voru drulluþéttir og náðu upp mik- illi stemningu. Flott sveit á sviði. Jónbi trommari vakti líka mikla lukku þegar hann tók sóló með log- andi kjuðum. Eins og fyrr segir var góður stígandi í dagskránni. Sólstafir eru ein af bestu rokkhljómsveitum Íslands og stækkaði áhangendahóp sinn mikið með plötunni Svartir sandar og laginu Fjara. Þeir klár- uðu sitt með stæl á Rokkjötnum, sýndu meðal annars myndbönd á risatjaldi fyrir ofan sviðið. Stemn- ingin náði svo hápunkti þegar Skálmöld ríkti í salnum. Þá var húsið fullt og greinilegt að tón- leikagestir kunnu plötuna Baldur utan að. Þeir sungu, öskruðu og steyttu hnefann í takt við kraft- mikið Skálmaldarrokkið. Hljóm- sveitin tók nokkur ný lög af vænt- anlegri plötu og miðað við þau eiga aðdáendur von á góðu. Mögn- uð frammistaða. Ofursveitin Ham kláraði svo kvöldið. Hún klikkaði ekkert og fékk góð viðbrögð við lögum eins og Animaliu, Ingimar og Partýbæ, en mættu nú alveg hræra aðeins upp í lagavalinu hjá sér. Þeir komu svo aftur á svið ásamt meðlimum úr Skálmöld og tóku lagið Musculus. Frábær enda- punktur! Eins og áður segir var góð stemning á Rokkjötnum. Marg- umtalað bræðralag rokksins var í fullu gildi. Ákall Björgvins Sig- urðssonar Skálmaldarsöngvara var lýsandi fyrir stemninguna: „Ef þið sjáið einhvern í vanda hérna á gólfinu, frammi, eða fyrir utan, hjálpið honum þá og ekkert rugl!“ sagði hann og rokkarar landsins fögnuðu ákaft. Svona á þetta að vera! Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fyrstu alíslensku maraþonrokktónleikarnir Í Kaplakrika tókust frábærlega vel Bræðralag rokksins í Kaplakrika HÁMARK STEMNINGAR Að mati Trausta gagnrýnanda náði stemningin á tónleikunum hámarki þegar rokksveitin Skálmöld ríkti í salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LINDSAY LOHAN ÁRA GAMALL verður Íslandsvinurinn fjallmyndarlegi, Ryan Phillippe, í dag. Ryan á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Reese Witherspoon, Ava Elizabeth sem er þrettán ára og Deacon Reese, níu ára. 38

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.