Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 27
Ég fékk samning við Elite Iceland og komst inn í 12 manna úrslit í keppninni. Ég hef brennandi
áhuga á tísku og öllu sem við henni
kemur,“ segir Ragnheiður, sem svaraði
nokkrum tískutengdum spurningum
fyrir blaðið.
Er mikill tískuáhugi í skólanum?
Já, ég myndi segja það. Í Verzló hefur
alltaf verið mikið um tískuáhugafólk.
Það er gaman að fylgjast með Verz-
lingum og sjá hvernig flestallir ganga
um í sömu fötunum en mynda svo sinn
eigin persónulega stíl út frá því.
Er mikið rætt um tísku meðal vina
þinna? Við vinkonurnar tökum ein-
staka spjall um nýjustu tískustraum-
ana og hverju okkur langar til að bæta
í fataskápinn. Við erum samt allar með
rosalega ólíkan stíl og ekki alltaf sam-
mála um hvað er fallegt og ekki fallegt.
Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku?
Áhuginn hefur aukist með árunum og
eftir að ég byrjaði í Verzló. Ég hef verið
dugleg að skoða tískublogg og það er
skemmtilegt að fylgjast með götu-
tískunni í Reykjavík og fá innblástur
þaðan.
Er einhver flík sem þú stenst ekki?
Það er alltaf erfitt að standast freist-
inguna þegar ég sé fallega skó. Ég er
vandlát á skó og finn sjaldnast neina
hér á landi sem henta mér. Langflest
pörin mín hef ég pantað í gegnum net-
ið eða hann elsku pabbi minn kaupir
fyrir mig í London, en þangað fer hann
oft í vinnuferðir.
Eftirlætis-/nýjasta flíkin? Í lok
sumars fór ég til Kaupmannahafnar
og keypti mér margar flottar flíkur.
En í uppáhaldi verð ég að segja að sé
svarta kápan úr Monki.
Uppáhaldsverslanir? Ég versla
mikið í vintage-búðum á Laugavegin-
um og eru Nostalgía og Spútnik í miklu
uppáhaldi. Mér finnst mjög gaman að
gramsa og finna einhverja gullmola
sem enginn annar mun eiga eins.
Ég kaupi samt langflestar flíkurnar
mínar í Monki, Weekday, Topshop og
H&M.
MEÐ BRENNANDI
ÁHUGA Á TÍSKU
TÍSKUMÆR Ragnheiður Björnsdóttir er á lokaári í Verzlunarskóla Íslands.
Ragnheiður hóf fyrirsætustörf í byrjun síðasta árs þegar hún var beðin um að
koma í prufur fyrir Elite Model Look Iceland 2011.
UPPÁHALDSFLÍKIN
Ragnheiður í uppáhalds-
kápunni sinni, sem hún
keypti í Kaupmanna-
höfn.
BLEIKUR OKTÓBER
Þar sem nú er bleikur mánuður og árvekni gegn brjósta-
krabbameini í fullum gangi er ekki úr vegi að klæðast
einhverju bleiku. Bleikir skór vekja örugglega athygli
og ættu að minna á þennan baráttumánuð.
til dæmis þessi glæsilegi push up BH
á kr. 4.500,-
TILBOÐ - STAKAR STÆRÐIR
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
LOKSINS
LAGERÚTSALA
að Kletthálsi 13
Aðeins í 3 daga!
20-50%
afsláttur
2. - 4 október
þriðjudag
miðvikudag
fimmtudag
kl. 12-19
Sími lagarútsölunnar er 660 0023
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Einnota
latex hanskar