Fréttablaðið - 05.11.2012, Page 2
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR2
SAMFÉLAGSMÁL Íslensk ættleiðing
hyggst hefja undirbúningsnám-
skeið fyrir verðandi kjörforeldra á
nýjan leik í þessum mánuði. Nám-
skeiðin hafa legið niðri síðan í apríl
vegna fjárskorts. Seta á undirbún-
ingsnámskeiði er forsenda fyrir
því að hægt sé að gefa út forsam-
þykki fyrir ættleiðingu og senda
umsóknir fólks úr landi.
Fulltrúar Íslenskrar ættleið-
ingar og innanríkisráðuneytisins
skrifuðu á fimmtudag undir sam-
komulag þess efnis að ættleið-
ingarfélagið haldi undirbúnings-
námskeið næstu fimm árin. „Sem
er frábært, við erum þá komin með
það fast í hendi. En þetta helst auð-
vitað í hendur við fjárlögin, þetta
þýðir í raun og veru ekkert nema
í samhengi við þau. Þetta er svona
milliskref, mjög ánægjulegt,“
segir Kristinn Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar ættleið-
ingar.
Félagið fær samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu 9,1 milljón til
að starfa á næsta ári, en forsvars-
menn þess hafa sagt að um fjöru-
tíu milljónir til viðbótar þyrfti til
að það geti starfað eðlilega. Krist-
inn bindur vonir við það að fjár-
framlög til félagsins verði hækkuð
í meðförum þingsins á fjárlaga-
frumvarpinu.
Undirbúningsnámskeiðunum
var hætt í apríl sökum fjárskorts
og innanríkisráðuneytinu var til-
kynnt um þetta. Ráðuneytið og
félagið hafa átt í viðræðum um
breytingar á fjárframlögum frá
árinu 2009.
Kristinn gerir ráð fyrir því að
fyrsta námskeiðið verði haldið í
seinni hluta nóvember. Sálfræð-
ingur sem sér um námskeiðið mun
Ættleiðingarnámskeið
verða haldin að nýju
Íslensk ættleiðing hyggst halda undirbúningsnámskeið fyrir verðandi foreldra
í þessum mánuði, en þau hafa legið niðri í hálft ár. Félagið skrifaði undir sam-
komulag við innanríkisráðuneytið um að halda námskeiðin næstu fimm ár.
ÁNÆGJULEGT MILLISKREF Fyrsta undirbúningsnámskeiðið fyrir verðandi kjörforeldra
verður haldið í þessum mánuði. Kristinn segir margt hafa getað breyst hjá fólkinu
sem hefur beðið eftir námskeiðum síðan í apríl, svo ekki sé vitað hversu margir bíði
eftir námskeiðinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Biðlistar eftir ættleiðingum hafa styst verulega á þessu ári. Fyrir þremur
árum síðan voru að jafnaði um hundrað fjölskyldur á biðlista en í septem-
ber biðu 46 fjölskyldur auk þess sem 37 fjölskyldur voru í undirbúningsferli.
Því voru 83 fjölskyldur í ættleiðingarferli. Meginástæðan fyrir þessu er sú að
vel hefur gengið að ættleiða börn frá Kína. Önnur ástæða var sú að eftir að
undirbúningsnámskeiðum var hætt hægði á nýjum umsóknum.
Biðlistar hafa styst
um helgina hefja undirbúning með
kennurum á námskeiðinu.
Rúmlega þrjátíu hafa beðið þess
að komast á undirbúningsnám-
skeið síðustu mánuði, en Kristinn
segir að margt hafi getað breyst
í lífi fólksins á þessum tíma. Þá
hafi fólk ekki verið að leggja inn
umsóknir til félagsins á meðan það
vissi af biðstöðunni og því gæti
verið að fjöldinn breyttist.
thorunn@frettabladid.is
NÁTTÚRA Jarðskjálftahrinan úti
fyrir Norðurlandi hélt áfram um
helgina en á laugardag mældust
skjálftar rétt undir 4,0 á Richter.
Fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið.
Þeir sterkustu fundust víða í byggð,
til dæmis á Siglufirði og Dalvík.
Jarðskjálftafræðingur á Veður-
stofu Íslands segir að stærstu
skjálftarnir um helgina hafi verið
3,8 stig á laugardaginn og 3,4 stig
í gær. Upptök stóra skjálftans á
laugar dag voru 16 kílómetra norð-
vestur af Gjögurtá við mynni Eyja-
fjarðar en upptök stærsta skjálftans
í gær voru 20 kílómetra út af Siglu-
firði. Fjöldi smáskjálfta mældist við
upptakasvæði stærsta skjálftans í
hrinunni til þessa en hann reið yfir
21. október og var 5,6 stig.
Áfram verður fylgst náið með
svæðinu hjá jarðskjálftavakt Veður-
stofunnar eins og undanfarnar
vikur en jarðskjálftahrinan fyrir
norðan hófst í september. Þann 21.
október varð stærsti skjálftinn, 5,6
stig, eins og áður segir. Hann fannst
um allt Norðurland, og reyndar
víðar. Þessi skjálfti var sá stærsti
á svæðinu um nokkurt skeið en við-
líka jarðskjálftahrina gekk yfir árin
1996 og 2004. - shá
Áframhald á jarðskjálftahrinunni úti fyrir Norðurlandi með skjálfta upp á 3,8 stig:
Skjálftarnir finnast vel í byggð
ÓVEÐUR Ég stend hérna og horfi á
sitkagrenið hinum megin við ána.
Þar eru fimm eða sex tré sem féllu
alveg,“ segir Sigurður G. Tómasson
útvarpsmaður, sem býr á Sveins-
eyri í Mosfellssveit þar sem óveðrið
á föstudag reif mörg tré upp með
rótum og braut önnur. „Við erum að
tala um yfir tuttugu metra há tré
sem voru meðal hæstu trjáa á Suð-
vesturlandi. Bolirnir eru um það
bil fimmtíu til sjötíu sentímetrar í
þvermál og þetta rifnar upp með
rótum.“
Auk grenitrjánna féllu stórar aspir,
gullregn og furutré. „Þetta eru tré
sem var plantað um miðja síðustu
öld,“ segir Steinunn Bergsteins-
dóttir, húsfreyja á Sveinseyri.
„Þetta er mikið tjón.“
Sigurður segir tjónið hlaupa á
hundruðum þúsunda bara hjá þeim
hjónum. Hann segir bæinn ekki
bera ábyrgð á því að hreinsa brotnu
trén í burtu. „Ég held þetta sé bara
á okkar ábyrgð,“ segir hann. „Þetta
verður ekki hreinsað nema með
stórvirkum vinnuvélum og mann-
skap þannig að það mun kosta skild-
inginn. Þetta er ekkert búið.“ - fsb
Stormurinn reif tuttugu metra há tré á Sveinseyri upp með rótum:
Tjón upp á hundruð þúsunda
RIFIÐ UPP MEÐ RÓTUM Sigurður við eitt trjánna sem óveðrið felldi. „Það eru tíu til
tólf tré fallin bara hérna á landareigninni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGLUFJÖRÐUR Jarðskjálftahrinan fyrir
norðan hefur staðið yfir með hléum síðan
í september. MYND/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON
DÝRAVERND Hundruð álfta eru
skotnar, samkvæmt niðurstöðum
breskrar rannsóknar, en tegundin
er alfriðuð eins og kunnugt er.
Högl fundust í 14% allra álfta sem
rannsakaðar voru á löngu tímabili
en á ári hverju fara um ellefu þús-
und álftir frá Íslandi til vetursetu
á Bretlandseyjum, að því að fram
kemur á fréttavefnum Scotsman.
Einn rannsakenda segir í við-
tali við Scotsman að svo hátt hlut-
fall særðra álfta bendi til þess
að mikill fjöldi fugla séu drepinn
árlega, án þess að vitað sé hver ber
sök. - shá
Högl finnast í 14% fugla:
Álftir skotnar
óháð alfriðun
ÁLFTIR Fuglinn er friðaður samkvæmt
íslenskum og alþjóðlegum lögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Vatnsfyrirtæki Jóns
Ólafssonar hyggst bjóða upp á
heimsendingu á vatninu Icelandic
Glacial í Kaliforníu og Flórída.
Verkefnið er unnið í samvinnu
við fjölmiðlana Los Angeles
Times og Sun Sentinel. Vatnið
mun þannig berast heim til fólks
með blöðunum.
Jón Ólafsson segir
að þetta sé það
stærsta sem Ice-
landic Glacial
hafi ráðist í til
þessa. Í til-
kynningu
segir að með
þessu móti geti
fyrirtækið lagt
sitt af mörkum
til að draga úr
nei kvæðum
áhrifum á um-
hverfið. - sh
Nýbreytni hjá Jóni Ólafssyni:
Vatnið kemur
heim að dyrum
JÓN ÓLAFSSON
ÞÝSKALAND Þýska vikublaðið Welt
am Sonntag fullyrðir að Evróp ski
seðlabankinn láni spænskum
bönkum milljarða evra á betri
kjörum en reglur bankans leyfi.
Í frétt í blaðinu í gær kemur
fram að seðlabankinn hafi tekið
við spænskum ríkisskuldabréf-
um sem tryggingu fyrir 16,6
milljarða evra láni til spænskra
banka. Blaðið byggir þessa full-
yrðingu á opinberum gögnum
og segir að reglur Evrópska
seðlabankans geri þessi skulda-
bréf óhæf sem tryggingu. Stór
alþjóðleg matsfyrirtæki hafa
úrskurðað að lánshæfiseinkunn
spænskra ríkisskuldabréfa sé
annars flokks. - fsb
Welt am Sonntag skúbbar:
Segja Evrópska
seðlabankann
brjóta reglur
DUBAI AP Pakistanska stúlkan,
Malala Yousufzai, sem skotin
var í höfuðið í síðasta mánuði,
er á góðum batavegi. Sendiherra
Pakistans í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum fullyrti þetta á
stúdentafundi sem haldin var til
heiðurs Yousufzai í Dubai í gær.
Yousufzai var skotin vegna skoð-
ana sinna, meðal annars á mennt-
unarmálum kvenna. Hún liggur
nú á sjúkrahúsi í Birmingham og
hefur náð sér það vel að hún getur
nú, að sögn sendiherrans, gengið,
talað og lesið. - fsb
Yousufzai á batavegi:
Getur gengið,
talað og lesið
FÉLAGSMÁL Ísland hefur nú full-
gilt samning Evrópuráðsins um
vernd barna gegn kynferðislegri
misneytingu og kynferðisofbeldi,
svonefndan Lanzarote-samning.
Alls hafa þá 22 aðildarríki fullgilt
samninginn.
Lanzarote-nefndin heimsótti
Barnahús í lok maí. Á fundi nefnd-
arinnar fyrir skömmu var ákveðið
að leita leiða til að kynna Barnahús
með það að markmiði að hugmynda-
fræði þess yrði hrint í framkvæmd
í fleiri aðildarríkjum ráðsins.
Evrópuráðið vinnur að gerð
heimildarmyndar um starfsemi
Barnahúss sem gert er ráð fyrir að
verði tilbúin til dreifingar síðar á
þessu ári. - shá
Heimildarmynd um Barnahús:
Barnahús vekur
athygli í Evrópu
SPURNING DAGSINS
Björn, er enginn hundur í
ykkur?
„Nei, við erum mjög mjákvæð að
eðlisfari.“
Björn Þór Björnsson stofnaði hóp á
Facebook þar sem aðdáendur katta geta
deilt myndum og myndböndum.