Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 43

Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 43
MÁNUDAGUR 5. nóvember 2012 19 Bækur ★★★★ Siglingin um síkin Álfrún Gunnlaugsdóttir Mál og menning Í Siglingunni um síkin tekur Álf- rún Gunnlaugsdóttir til með- höndlunar efni sem furðu sjaldan er fjallað um í íslenskum bók- menntum. Hvernig það er að eldast og glata andlegum þrótti, hvernig það er að þurfa að sættast við ævi sína á lokametrunum, hvernig það er að vera „upp á aðra komin“ en þrá að halda reisn sinni. Gyðríður (sem til allrar ham- ingju er kölluð Gyða) er komin á efri ár og býr hjá Sölva syni sínum í Reykjavík á dögum búsáhalda- byltingarinnar. Gyða bíður þess að Sölvi finni fyrir sig íbúð í stað einbýlishússins sem hann aðstoð- aði hana við að selja, en einhver tregða virðist vera í þeim málum, enda þjóðfélagsástandið ekki til að hrópa húrra fyrir. Kólumb- íska húshjálpin Elena er nokkurs konar gæslukona Gyðu, en ferða- frelsi hennar er takmarkað, þó að í fyrstu átti hvorki hún sjálf né les- endur sig á ástæðum þess. Gyða íhugar lífshlaup sitt með- fram því sem hún reynir að henda reiður á aðstæðum sínum. Hvers vegna fóru hlutirnir eins og þeir fóru? er líklega algeng spurning við ævilok og Gyða siglir um síki minninganna í von um að finna svör. Sagan gerist á nokkrum tíma- sviðum, en sögukona rifjar upp ævi sína frá því að hún er lítil stúlka þar til hún eignast mann og börn og lesendur fá að fylgjast með því hvernig líf hennar hefur þróast. Ekki er alltaf ljóst hvað er draumur og hvað veruleiki, for- tíð eða nútíð. Sumt er horfið úr minninu, annað situr þar fast og enn annað hefur hugurinn búið til. Minningarnar koma víst ekki eftir pöntun, fremur en atburðir lífsins sjálfs. Margt fer öðruvísi en ætlað er og sumt er fjandanum erfiðara að sætta sig við. Gyða hefur glatað sambandi við Svölu dóttur sína og skrifar henni bréf í von um að bæta úr því, en veit ekki hvert hún á að senda þau. Önundur, maður úr fortíðinni, skýtur upp kollinum og við endurnýjun þeirra kynna raðar Gyða saman brotum úr ævi sinni og leggur á hana mat: Líkast til er söknuður sterk- asta tilfinningin sem fylgir manni ævina út, fyrir utan ástina … þótt oftast sé hún í fylgd með söknuð- inum. Maður er alltaf að kveðja, beint eða óbeint, og eftir situr tregi sem setur mark sitt á mann. (162) Siglingin um síkin fjallar um gamla konu, en textinn er síungur og sprækur. Gyða er eftirminnileg sögukona, einmitt vegna þess að hún er breysk og hún situr ekki á friðarstóli ellinnar, heldur horfist í augu við mistök sín, gömul og ný. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Niðurstaða: Snjöll saga um elli, eftirsjá og misáreiðanlegar minningar. Skrifuð af innsæi og listfengi. Um minni og gleymsku Bylgja erótískra bókmennta, sem bækur á borð við 50 gráa skugga hafa hrundið af stað, heldur áfram undir merkjum Cross- fire-bálksins eftir bandaríska höfundinn Sylviu Day. Day hefur gefið út þrjár bækur í Cross- fire-þríleiknum, sem eiga það sameiginlegt með 50 gráum skuggum að fjalla um sam- skipti hrjáðs auðmanns og fagurrar konu og er barmafull af bersöglum kynlífs lýsingum. Fyrsta bókin, Bared to You, sló í gegn þegar hún kom út í apríl. Day gaf hana sjálf út en útgáfurisinn var fljótur að tryggja sér útgáfuréttinn og hefur engin bók í sögu for- lagsins selst jafn hratt í Bretlandi. Önnur bókin, Reflected in You, sem kom út í rafútgáfu í byrjun október, seldist í 286 þúsund eintökum í Bandaríkjunum fyrstu vikuna eftir útgáfu og hefur trónað á toppi breska Amazonlistans nær allan mánuðinn. Bókin kom út í kilju í Bretlandi 23. október og seldist í tæplega 83 þúsund eintökum fyrstu vikuna. Aðeins tvær kiljur hafa selst í fleiri eintökum á einni viku í Bretlandi; Casual Vacancy eftir J.K. Rowling og Týnda táknið eftir Dan Brown. Day á þó nokkuð í land með að ná sölutölum E.L. James en skuggabálkur hennar hefur selst í tugum milljóna. Þriðja bókin í Crossfire-bálkinum, Entwined in You, er væntanleg á næsta ári. Erótíska bylgjan heldur áfram HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN Í GÓÐUM HÖNDUM HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA? Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is Við erum með fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Yfirleitt er mest að gera hjá okkur í lok mánaðar og meira að gera síðdegis en að morgni. Það getur því verið sniðugt að vera snemma í því. Hlökkum til að sjá þig! Opið kl. 8-17 virka daga. SYLVIA DAY Crossfire, erótískur skáldsagnabálkur hennar, tröllríður nú metsölulistum vestan hafs og í Bretlandi. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.