Fréttablaðið - 05.11.2012, Page 45
MÁNUDAGUR 5. nóvember 2012 21
„Heimilistækin mín eru frá Smith & Norland.
Það kemur ekkert annað til greina.“
„Siemens-tækin eru margreynd á Íslandi. Þau eru fallega
hönnuð, endingargóð og þægileg í notkun. Smith & Norland
er eins og Siemens: traust fyrirtæki með mikla reynslu þar
sem viðskiptavinurinn er í fyrirrúmi. Þannig vil ég hafa það.“
Örn Arnarson, íþrótta- og ökukennari,
hefur keypt öll heimilistækin sín hjá Smith & Norland.
Föstudagur 2. nóvember og laugardagur 3. nóvember
★★ ★★★
Kwes
Listasafnið
Ómarkvisst
Lundúnabúinn Kwes hefur unnið
með listafólki á borð við The xx,
Micachu og Hot Chip, en er nú að
reyna fyrir sér með eigið efni. Honum
til fulltingis í Listasafninu voru tvær
stelpur, önnur spilaði á hljómborð og
bassa, hin á trommur. Efniviðurinn
var ekki slæmur, flottur hljóðheimur
og taktar. Lagasmíðarnar virkuðu
hins vegar ómarkvissar, nánast eins
og þær væru sumar enn á vinnslu-
stigi. Tæknilegir örðugleikar í upphafi
bættu heldur ekki úr skák. Á heildina
var þetta mjög slappt. Hefði kannski
virkað eitthvað betur á minni stað.
-tj
★★★ ★★
Rangeklods
Silfurberg í Hörpu
Fínt danskt
flogakast
Danska bandið Rangleklods – lista-
mannsnafn Espens Andersen – hljóp
í skarðið fyrir skosku popprokkarana
í Django Django sem forfölluðust
á laugardag vegna veikinda og
gátu ekki spilað í Hörpu eins og til
stóð. Rangleklods hafði spilað á
Faktorý á fimmtudagskvöldinu og
lét sig ekki muna um að endurtaka
leikinn í stórum Silfurbergssalnum
tveimur dögum síðar. Andersen spilar
dramatískt og flogavaldandi rafpopp
með tripphopp-ívafi, drungalegt á
köflum þangað til það springur með
fáheyrðum látum og skarkala. Sjálfur
syngur Andersen djúpri og góðri
röddu yfir herlegheitin. Rangleklods
eru ekki að fara að breyta heiminum
en þetta var hið frambærilegasta
prógramm. -sh
★★★ ★★
Kiriyama Family
Silfurberg í Hörpu
Hápunktur í lokin
Strákarnir í Kiriyama Family hafa verið
vinsælir undanfarið enda hefur nýja
platan þeirra hlotið góðar undir-
tektir. Tónleikarnir byrjuðu heldur
brösuglega og voru sífelldar hljóð-
færaskiptingar hljómsveitarmeðlima
ruglingslegar fyrir undirritaða. Þegar
þrír meðlimir sveitarinnar stóðu
fremst, hver á sínu hljómborðinu,
skapaðist hins vegar skemmtileg heild
og sveitin minnti helst á Hot Chip.
Tónleikar Kiriyama Family enduðu
hins vegar með látum og síðustu tvö
lögin voru frábær. Þá ber sérstaklega
að hrósa saxófónleikaranum sem
kom inn í síðasta laginu, en hann
setti hressandi svip á tónleikana með
skemmtilegri sviðsframkomu. -áp
★★ ★★★
Shearwater
Norðurljós í Hörpu
Of hátt og langt
Bandaríkjamennirnir byrjuðu vel en
ekki leið á löngu þar til fólk byrjaði að
streyma út úr salnum. Hvort það hafi
verið vegna of mikils hávaða, of langs
prógramms eða einfaldlega áhuga-
leysis og vonbrigða skal ekki fullyrt
um. Undirrituð vissi í það minnsta
ekki alveg hvað hún ætti að gera við
þetta allt saman og brá á það ráð að
hlusta á tónlistina utan af ganginum
þegar bassinn og lætin í salnum voru
farin að valda eymsli í tönnum og
almennri vanlíðan. Hæfileikar þessa
góða bands skiluðu sér að minnsta
kosti ekki til áheyrenda í Hörpu þetta
föstudagskvöldið og salurinn var
nánast tómur undir lok tónleikanna,
sem voru alltof langir. -trs
★★★★ ★
Friends
Listasafnið
Frábærlega öðruvísi
Ef lýsa á hljómsveitinni og sviðsframkomunni í einu orði væri það
með orðinu öðruvísi. Þá er sama hvort talað er um tónlistina sem
Friends spila, fatnaðinn sem meðlimirnir klæðast eða hegðun
þeirra á sviðinu, það er allt öðruvísi við hljómsveitina Friends. Þau
sanna það þó að öðruvísi þarf alls ekki að vera slæmt, því þau voru
nefnilega frábær! Þau skiluðu af sér stórgóðum tónleikum, uppfullum
af skemmtun og gæðatónlist og uppskáru gríðarleg fagnaðarlæti og
stemningu í salnum alla tónleikana í gegn. Aðdáun þeirra á Íslandi og
boð í eftirpartý á hótelherberginu þeirra virtist heldur ekki leggjast illa
í tónleikagesti. Hvort af partýinu hafi svo orðið er þó óvíst. -trs
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI