Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 54
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR30
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Fötin verða aðeins dýrari, en ég ábyrgist að
í staðinn eiga þau eftir að passa fullkomlega,“
segir fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir um
fatalínuna sem hún sýnir á Kex Hostel næst-
komandi fimmtudagskvöld.
Um er að ræða fatalínu fyrir haust og vetur
2012 sem Ýr sýndi við góðar undirtektir á
Reykjavík Fashion Festival í vor. Sýningin er
samsýning hennar og Orra Einarssonar skart-
gripahönnuðar, en þar verður einnig sýnt
myndbandsverk sem Ýr vann með listakonunni
Hrund Atladóttur í Tékklandi í sumar.
Ýr ætlar að bjóða upp á þá nýjung að hægt
verður að panta flíkurnar beint af sýningunni
og fá tíma í máltöku, því fatahönnuðurinn ætlar
að sérsníða fatnaðinn á kúnnana sína. „Þetta
verður óhefðbundin sýning þar sem hægt verður
að sjá öll smáatriðin miklu betur en á venju-
legri tískupallasýningu. Tilgangur-
inn er í raun að kynna eitthvað nýtt
og gera konum kleift að fá eitthvað
sem passar, sama hvernig þær eru
vaxnar,“ segir Ýr. Hún bætir við
að þetta sé einstakt tækifæri fyrir
konur, en um þriggja vikna bið er
eftir flíkunum eftir pöntun.
„Þessi aðferð finnst mér pers-
ónulegri og hún brúar bilið
milli mín og kúnnans. Upp-
lagt fyrir konur sem vilja
sérstaka þjónustu þegar
kemur að því að kaupa
hönnunarvöru.“
Sýningin hefst á slag-
inu 20 og eru allir vel-
komnir. - áp
Býður upp á klæðskerasniðnar flíkur
SÉRSNÍÐUR Fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir
býður viðskiptavinum sínum upp á persónulega
þjónustu. MYND/JIRIHRONKIN
„Það er lagið Eye in the Sky
með The Alan Parsons Project
sem kemur mér inn í vikuna.“
Jón Atli Helgason, plötusnúður, annar
meðlima sveitarinnar Human Woman og
hárgreiðslumaður.
„Ég var dyravörður og bauð fólk vel-
komið og afhenti því miða,“ segir
rithöfundurinn Þorgrímur Þráins-
son sem brá sér í hlutverk móttöku-
stjóra á tískusýningu fatamerkisins
Freebird sem fram fór í Þjóðmenn-
ingarhúsinu á fimmtudag.
Fatahönnuðirnir Gunnar Hilm-
arsson og Kolbrún Gunnarsdóttir
eru nánir vinir Þorgríms og báðu
hann um að taka verkefnið að sér.
„Ég get brugðið mér í þúsund hlut-
verk og segi „já“ við eiginlega öllu,
enda þarf rithöfundur að prófa sem
flest. Þetta hlutverk smellpassar til
dæmis í bók sem ég er að skrifa um
þessar mundir,“ segir Þorgrímur.
Starfið leysti Þorgrímur auðveld-
lega af hendi enda vann hann um
tveggja ára skeið sem dyravörður
á skemmtistaðnum Hollywood. „Ég
hafði verið fastagestur á staðnum
í mörg ár og hugsaði með mér að
ég gæti alveg eins unnið sem dyra-
vörður á staðnum og fengið greitt
fyrir að vera þar. En það að vera
móttökustjóri er ólíkt skemmtilegra
starf og miklu fínna.“
Inntur eftir því hvort hann hafi
sjálfur mikinn áhuga á tísku segist
hann láta aðra um að dæma það. „Ég
held ég verði að láta aðra dæma um
það. Ég hef frekan einfaldan smekk
á fötum og geng helst í gallabuxum
og bol. Ég fylgist lítið með tísku-
straumum og þá helst í gegnum
hann Gunna sem leiðbeinir mér
reglulega í þeim efnum.“
Aðspurður segist Þorgrímur vilj-
ugur að taka að sér starf móttöku-
stjóra aftur. „Ég mundi alveg örugg-
lega gera þetta aftur. Og það skiptir
engu máli hver bæði mig um það.“
- sm
Brá sér í hlutverk móttökustjóra
MÓTTÖKUSTJÓRI Þorgrímur Þráinsson
brá sér í hlutverk móttökustjóra á
tískusýningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta vekur mikla athygli en
það eru ekki margir sem vilja
kaupa hann,“ segir Gabriel Gerald
Haesler.
Hann hefur sett inn auglýsingu
á vefsíðuna Bland.is þar sem hann
auglýsir „litríkasta bíl Íslands“ til
sölu. Bíllinn, sem er af tegundinni
Volkswagen Vento frá árinu 1997,
var málaður í listasmiðju Hafnar-
hússins árið 2009 af nemendum
Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
var það leikarinn Davíð Örn Hall-
dórsson sem stýrði verkefninu. Bíll-
inn var í eigu þáverandi menningar-
stjóra Hafnarhússins.
„Þetta var gömul drusla sem hún
átti sem hún ætlaði að láta henda.
Síðan var þessi listasmiðja í Hafnar-
húsinu og hún bauð fram bílinn
sinn,“ segir Gabríel, sem frétti af
honum í gegnum móður sína sem
var að vinna í Hafnarhúsinu. „Ég
var að leita mér að ódýrum bíl.
Mamma tók eftir því að hún var að
selja bílinn sinn og það bara hitti
voðalega heppilega á.“
Þessi litríki bíll hefur fengið
viður nefnið Hippinn og vekur mikla
athygli hvert sem hann fer. „Það er
ekki búið að vera leiðinlegt að eiga
þennan bíl. Manni líður eins og
maður sé á splunkunýjum Porsche.
Það eru einhvern veginn allir að
fylgjast með manni,“ segir hann.
Spurður hvað vinum hans finnst
um Hippann segir Gabríel: „Það eru
mjög skiptar skoðanir á því hvort
þetta sé flottur bíll eða ekki en það
finnst öllum bíllinn athyglisverður.“
Hann er sannfærður um að þetta
sé litríkasti bíll landsins. „Ég hef
aldrei fengið staðfestingu á því en
ég hef ekki séð litríkari bíl enn þá.“
Verðið sem Gabriel setur á bíl-
inn er 230 þúsund krónur. „Hann
er í toppstandi. Það er ekkert að
honum.“ freyr@frettabladid.is
GABRIEL GERALD HAESLER: SELUR LITRÍKASTA BÍL ÍSLANDS
Líður eins og á glænýjum
Porsche á litríkum Hippa
Í LITRÍKA BÍLNUM Gabriel Gerald Haesler hefur sett „litríkasta bíl landsins“ á söluskrá. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rekstrarvörur
- vinna með þér
JÓLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
KEMUR ÚT 27. NÓVEMBER
Meðal efnis
í blaðinu:
Jólaljósin, kökur, sætindi, skraut, föndur,
matur, borðhald, jólasiðir og venjur.
Atli Bergmann
atlib@365.is
512 5457
Benedikt Freyr Jónsson
benni@365.is
512 5411
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is
512 5427
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is
512 5432
Bókið auglýsingar tímanlega: