Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 2
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 ÞJÓNUSTA Hjónin Inga Lísa Sólons- dóttir og Aron Þorsteinsson, sem keypt hafa hinn fornfræga Skíða- skála í Hveradölum af Svavari Helgasyni, áforma þar stóraukin umsvif með verkefninu Skíðaskál- inn í Hveradölum – Luxury resort. Í viðskiptaáætlun kemur fram að úttekt á rekstri og arðsemi Skíðaskálans lofi afar góðu. „Þessi fjárfesting er svokölluð gullnáma sem hefur verið afar vannýtt eða legið í dvala, gullnáma sem býður í raun upp á óendanlega mögu- leika,“ segir í áætluninni. Skapa á mun meiri tekjur en nú er með því að hafa opið allt árið. Jólahlað- borð hafa hingað til verið burðar- ás rekstursins. Inga Lísa segir ætlunina að bjóða heim göngufólki og náttúru- unnendum með stórbættri aðstöðu og lagfæringu á stígakerfi. Aðgangur verður að þremur heitum pottum sem nýta mikinn jarðhita á svæðinu. Laða á að tón- listarmenn jafnt á sumrum sem vetrum, stórauka verslun á staðn- um með sölu á alls kyns sérvöru og efna til útimarkaða. Ekki síst á að bjóða veitingar árið um kring og leigja út mis- munandi sali skálans fyrir alls kyns viðburði. Þá er ætlunin að fá skólabörn í fræðsluferðir og tengja greiðasöluna við gestamót- töku Hellisheiðarvirkjunar sem er þar skammt frá. Meðal annarra hugmynda Ingu og Arons er síðan uppbygging baðlónsins Viking Lagoon, gerð golfvallar og smíði þyrlupalls fyrir útsýnisflug. „Guðdómlegt umhverfi í faðmi fjalla veitir sérstöðu og lyftir Skíðaskálanum í hæstu hæðir þar sem heitir leir- og gufuhverir og aðrar perlur íslenskrar náttúru veita Skíðaskálanum þá réttmætu upphefð að geta talist veislu- og náttúruparadís,“ segir í viðskipta- áætluninni sem fjárfestar fá nú til skoðunar. Áformin hafa verið kynnt fyrir bæði Orkuveitu Reykjavíkur, sem leigir Skíðaskálanum land, og fyrir skipulagsnefnd Ölfuss sem tók vel í verkefnið. Svavar Helgason mun ljúka jóla- hlaðborðahaldinu sem nú stendur yfir og afhenda Ingu og Aroni Skíðaskálann í janúar. Inga Lísa segir þau hjónin sjálf munu búa á staðnum sem gestgjafar. „Margir líta svo á að við séum að endurvekja Eden í nútíma- legri mynd. Þetta verður okkur draumaveröld,“ segir Inga Lísa. „Hvað er betra en sunnudagsbíl- túrar, útivist og eðalveisluhöld í flottasta kastala landsins? Hvera- dalir er staður kærleiks og menn- ingar, hér endurskrifaði Halldór Laxness Íslandsklukkuna og var reglulegur gestur í þessari nátt- úruperlu á heimsvísu.“ gar@frettabladid.is ÞESSU ÓSKAÐI BREIVIK EFTIR Ólöf, hefur þér gengið vel að fóta þig í lífinu? „Mér hefur skrikað fótur af og til en ég stend keik í dag.“ Fætur Ólafar Hugrúnar Valdimarsdóttur eru misstórir. Því hefur hún lýst eftir „fótaspegil- mynd“ sinni til að auðvelda skókaup. Markaðstorg (Viðbótarbílastæði) 46 bílastæði Búningsklefar Viking lagoon Heitir pottar GlerskáliSkíðaskálinn Þyrlupallur Telja sig hafa keypt vannýtta gullnámu Nýir eigendur Skíðaskálans í Hveradölum boða mikla uppbyggingu og stóraukin umsvif í veitinga- og ferðaþjónustu. Þeir segja staðinn mjög vannýttan og bjóða upp á óendanlega möguleika. Verður okkar draumaveröld, segir annar eigandinn. SKÍÐASKÁLINN Í HVERADÖLUM Framtíðarskipulag Skíðaskálans gerir meðal annars ráð fyrir baðlóni og búningsaðstöðu. TEIKNING/MAGNÚS JENSSON ARKITEKT Margir líta svo á að við séum að endurvekja Eden í nútímalegri mynd. Inga Lísa Sólonsdóttir eigandi Skíðaskálans í Hveradölum STJÓRNSÝSLA Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið úttekt sinni á starfsháttum Dróma, fjármálafyrir- tækisins sem stofnað var utan um rekstur SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankann. FME skoðaði átta þætti í starfsemi félagsins og gerði að lokum athugasemd við einn. Taldi FME að Drómi hefði gengið of langt í afskiptum sínum af samningsgerð skuldara við þriðju aðila. Hafði Drómi í nokkrum tilvikum farið fram á að fyrirvari kæmi fram, í samningum um að þriðji aðili tæki yfir skuld- bindingar skuldara, þess efnis að skuldari afsalaði sér rétti til endurgreiðslu, kæmi til hennar. FME gerði hins vegar ekki athugasemdir við til að mynda endurútreikninga Dróma á gengistryggðum lánum eða framkvæmd félagsins á 110% leiðinni, svo nokkuð sé nefnt. Úttekt FME á Dróma má meðal annars rekja til mikillar opinberrar umræðu um starfshætti fé- lagsins, svo og ábendinga sem FME höfðu borist. Í tilkynningu frá Dróma vegna úttektarinnar segir að niður stöðurnar staðfesti að starfshættir félagsins séu faglegir og í samræmi við kröfur um góða viðskipta- hætti. - mþl Forsætisráðherra hvetur til skoðunar á hvort flytja megi eignasafn: FME telur flest í lagi hjá Dróma Drómi var til umræðu í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, beindi þá fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um verklag Dróma og ástæður þess að félagið var upphaflega stofnað. Í svari sínu sagði Jóhanna ljóst að eitthvað mikið hefði verið að í samskiptum Dróma og þeirra lántaka sem undir félagið heyrðu. Úr þeim vanda yrði að leysa og bætti Jóhanna við að skoða þyrfti hvort ástæða væri til að flytja eignasafn Dróma frá félaginu til Seðlabankans eða Arion banka. Þá benti Jóhanna á að Eignarhaldsfélag Seðlabankans og ráðherranefnd um skulda- vanda heimilanna hefðu Dróma til skoðunar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagðist Hlynur Jónsson, stjórnarformaður Dróma, undrast orð Jóhönnu, ekki síst í ljósi niðurstöðu FME. Flutningur eignasafns skoðist NOREGUR Aðstaða morðingjans Anders Behring-Breivik í fangelsinu Illa hefur breyst til batnaðar, samkvæmt því sem lögmaður hans sagði í samtali við Verdens Gang. Í vikunni fékk Breivik bókahillu og kistu undir föt inn til sín, sam- kvæmt samkomulagi við yfirvöld fangelsisins. Hann hefur líka fengið leyfi fyrir kúlupenna, en hingað til hefur hann mátt gera sér túss að góðu. Þá fær Breivik að hafa ruslapoka inni hjá sér, en lögmaður hans vonast til þess að á næstunni muni bætast við auka lesljós og jafnvel ferðageislaspilari. - þj Aðstaðan í Illa-fangelsinu í Noregi: Breivik má hafa kúlupenna DÓMSMÁL Síbrotamaðurinn Már Ívar Henrysson var í gær dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá var Már sviptur ökuréttindum ævi- langt. Í dómsmálinu voru Má gefin að sök fíkniefnalagabrot, vopnalaga- brot, brot gegn valdstjórninni, umferðarlagabrot, varsla þýfis, líkamsárás og eignaspjöll. Hann var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn valdstjórninni, alvarlega lík- amsárás gegn lögreglumanni auk annarra brota. Már hefur marg- oft áður verið dæmdur fyrir lög- brot og með brotum sínum nú rauf hann skilorð. - mþl Sakfelldur fyrir fjölda brota: Síbrotamaður í 3 ára fangelsi SAMGÖNGUR Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við lögreglu- stjórana á Eskifirði og Hvolsvelli, lýst yfir óvissustigi vegna mæl- inga sem benda til aukins vatns- rennslis úr Grímsvötnum. Mælingar sýna að íshellan í Grímsvötnum hefur sigið undan- farna daga. Má því búast við jökulhlaupi í Gígjukvísl á næstu dögum. Talið er að um lítið hlaup verði að ræða líkt og átti sér stað árið 2008. Umferð um Skeiðarár- sand verður því ekki takmörkuð. Óvissustig er hluti af verk ferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf. - mþl Aukið rennsli í Grímsvötnum: Hlaup líklegt í Gígjukvísl Breivik er þegar með bókahillu, kistu og kúlu- penna. Lesljós og geislaspilari eru á óska- lista Breiviks. FÓLK „Loksins, loksins, loksins dómur er fallinn í Tribunal (Hæstarétti í Medellin) og var okkur dæmt í vil. Helga Karólína og Birna Salóme eru orðnar lög- legar dætur okkar.“ Svo skrifuðu hjónin Bjarn- hildur Hrönn Níelsdóttir og Frið- rik Kristinsson á Facebook-síðu sína í gærkvöld. Hjónin hafa nú dvalið í Kólumbíu í tæpt ár og beðið eftir leyfi frá dómstólum til að fá að ættleiða tvær kólumbískar stúlkur. Hæstiréttur dæmdi fjölskyldunni í vil í gær, eftir að málið hafði farið fram og til baka í kerfinu. Á Facebook-síðu fjölskyldunnar segir að þrír dómarar hafi dæmt í málinu í þetta sinn og hafi þeir allir verið sammála um að til þessa hafi hagsmunir stúlknanna ekki verið hafðir að leiðarljósi. „Næstu skref eru að fá vega- bréf og vegabréfsáritun heim til Íslands fyrir Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Við búumst við því að vera komin heim til Íslands eftir 10 til 14 daga og er mikil til- hlökkun hjá okkur fjölskyldunni.“ Hjónin fóru út í desember fyrir ári síðan til að sækja stúlkurnar tvær sem þau ætluðu að ættleiða frá Kólumbíu. Upphaflega bjugg- ust þau við að dvelja í landinu í um sex vikur. - sv Hæstiréttur Kólumbíu dæmdi íslensku hjónunum í vil varðandi ættleiðingu: Komast loks heim með stelpurnar Við búumst við því að vera komin heim til Íslands eftir 10 til 14 daga og er mikil tilhlökkun hjá okkur fjölskyldunni. Af Facebook-síðu Bjarnhildar og Friðriks AKUREYRI Skemmdarvargar á Akureyri hafa valdið miklu tjóni undanfarið. Í tilkynningu frá bænum kemur fram að ljósaperum úr jólaskreyt- ingum hafi verið stolið um allan bæ síðustu daga. Sérstaklega er ástandið slæmt við Akureyrar- kirkju þar sem perum er stolið dag hvern. Perurnar eru afar dýrar LED-perur og því mikill skaði af þessum þjófnaði. Að auki var tveimur ljóskösturum sem lýstu upp tré í gilinu stolið. - þj Bíræfnir bófar á Akureyri: Jólaljósaþjófar vinna dýr spjöll SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.