Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 42
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem veittu okkur hlýhug og styrk vegna andláts og útfarar okkar elskulega INGIMARS TRYGGVA HARÐARSONAR frá Akureyri. Við erum ykkur innilega þakklát. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyfjadeildar Sjúkrahússins á Akureyri og Hjálpræðishernum fyrir mikla og góða aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Kristín Svavarsdóttir Jóhannes Kristinn Ingimarsson Janine Long Sigurður Hörður Ingimarsson Rannvá Olsen Ágústa Eygló Ingimarsdóttir Einar Friðjónsson Svava Ingibjörg Ingimarsdóttir Birkir Þór Sigurðsson Heimir Bjarni Ingimarsson Anna Rósa Friðriksdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, JÓN S. R. MAGNÚSSON frá Grímsey, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 18. nóvember, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn 26. nóvember kl 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á Ólafsfjarðarkirkju. Ragna Kristín Karlsdóttir Hulda Jónsdóttir Aðalsteinn Friðþjófsson Magnús Jónsson Silvia Puttha Hólmfríður Jónsdóttir Gísli Jóhannsson Helena Jónsdóttir Vilhjálmur Sigurðsson Rögnvaldur Jónsson Björg Traustadóttir Harpa Jónsdóttir Magnús Ágústson barnabörn og barnabarnabörn Sigmundur Magnússon Bjarni Magnússon og Jórunn Magnúsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS S. ÓLAFSSONAR Aflakór 20, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Landspítalans fyrir einstaka umönnun og hlýju. Kolbrún Óðinsdóttir Hrafnhildur Kristjánsdóttir Jóhannes Bjarni Björnsson Hrund Kristjánsdóttir Ágúst Jensson Hulda S. Kristjánsdóttir Gunnar Björn Gunnarsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRMANN J. LÁRUSSON Digranesvegi 20, 200 Kópavogi, lést miðvikudaginn 14. nóvember. Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a við Vatnsendaveg, mánudaginn 26. nóvember kl. 13.00. Að ósk hins látna eru blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning barnastarfs Fríkirkjunnar Kefas, 0536-26-5598, kt. 640392-2239. Fyrir hönd aðstandenda, Björg Ragnheiður Árnadóttir Sverrir Gaukur Ármannsson Helga Ragna Ármannsdóttir Páll Eyvindsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORSTEINA SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR Hraunbúðum, áður til heimilis að Hólagötu 9, Vestmannaeyjum, sem lést fimmtudaginn 15. nóvember sl., verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 24. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalar- heimilið Hraunbúðir, Vestmannaeyjum. Gunnar Ólafsson Erla Sigurðardóttir Sigurbjörg Ólafsdóttir Birgir Pálsson Sigurður Ólafsson Birna Jóhannesdóttir Guðbjörg Ólafsdóttir Eiríkur Bogason Sesselja Ólafsdóttir Gunnar Berg Sigurjónsson Ólöf Erla Ólafsdóttir Stig Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra, GERDA FRIDA GUÐMUNDSSON (fædd Wattrodt) lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 16. nóvember. Útför hennar fer fram frá ríkissal Votta Jehóva, Hraunbæ 113, mánudaginn 26. nóvember kl. 14.00. Guðmundur Halldór Guðmundsson Ástríður Elísabet Guðmundsdóttir Alexander Depuydt Ragnheiður Guðmundsdóttir Davidson Mark Davidson Hans Kristján Guðmundsson Elísabet Jónsdóttir og barnabörn: Samúel, Tómas, Sóley, Andrew og Helena Elskuleg móðir okkar og amma, ELSA GRÍMSDÓTTIR lést á Dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 12. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Arnar Sigfússon Helga Sigfúsdóttir Árni Pétur Arnarsson Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN ÁRNASON Suðurlandsbraut 60, (áður Suðurbyggð 11, Akureyri) sem lést 20. nóvember 2012, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.00. Í stað blóma og kransa er óskað eftir stuðningi við líknarfélög. Anna Valmundardóttir Sigríður Eysteinsdóttir Ómar Ólafsson Ragna Eysteinsdóttir Árni V. Þórsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR fyrrverandi formaður Verkakvennafélagsins Snótar, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugardaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.00. Sigurður Sigurðsson Atli Sigurðsson Harpa Njálsdóttir Bjartey Sigurðardóttir Gunnar Sigurðsson Gylfi Sigurðsson Guðrún Erlingsdóttir Arnar Sigurðsson Anna Elísabet Sæmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR M. JÓHANNESSON Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á líknardeild LSH 15. nóvember sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 26. nóvember kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á heimahlynningu LSH í s. 543-1157. Ragnheiður Sigurðardóttir Vignir Sigrún Jóhannes Helgi Sigurbjörg Stella Ægir Monika Sjöfn Jökull Bri Kellin Kristjana Þórir Sigurþór afabörn og langafabörn. Verkið heitir „Ég var einu sinni fræg- ur“ og má eiginlega kallast heimildar- verk,“ segir Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri um nýtt verk sitt sem frum- sýnt verður í Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld á vegum leikhópsins Silfur- tunglsins og Sjónlistasafnsins. „Þeir leika sjálfa sig kapparnir Gestur Einar Jónasson, Þráinn Karlsson og Aðal- steinn Bergdal og við skrifuðum verkið í sameiningu. Þetta er verk um gamla geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Þeir hittast í ferð eldri borgara á Kanarí og Gestur Einar heldur því fram að hann sé farar- stjóri, Alli Bergdal segist vera þarna til að skemmta gamla fólkinu en Þráinn er einfaldlega einn af gamlingjunum. Hann fær þó ekkert að slaka á þar sem hann er leikari og það er sífellt verið að biðja hann að lesa upp ljóð og vera skemmtilegur. Hinir eru því eiginlega óþarfir og búnir að týna hópnum sínum þannig að það er allt að fara í vitleysu.“ Eruð þið búnir að vera að vinna þetta lengi? „Já, við erum búnir að vera að vinna þetta frá því í byrjun september. Inn í söguna af gamalmennaferðinni spinnst saga leikhússins á Akureyri og fimmtíu ára leiklistarsaga þeirra félaganna. Þeir eru að reyna að rifja upp hlutverkin sín í gegnum tíðina en gengur það misvel. Fyrsti mánuðurinn fór mest í spjall og upprifjun sem ég skrifaði niður smám saman en síðan kom ég með fullbúið leikrit og við erum búnir að vera að æfa það í sex vikur. Og nú er sem sagt komið að frumsýningu.“ Þið sýnið í Ketilhúsinu, er hefð fyrir leiksýningum í því rými? „Það er langt síðan sýnt var hér síðast en Hannes Sigurðsson sjónlistastjóri bauð okkur að koma hér inn og æfa og sýna þar sem við erum svona hálfmunaðar- lausir leiklistarmenn á Akureyri. Það hefur komið okkur á óvart hvað þetta hús er gott leikhús. Við ætlum að vera með borð í salnum og opinn bar og hugsum þetta fyrst og fremst sem mikla skemmtun fyrir áhorfendur.“ Frumsýning í kvöld, hvert er svo framhaldið? „Við sýnum um hverja helgi fram til 15. desember, fimmtu- dag, föstudag og laugardag, og erum þegar komnir með mikið af bókunum frá hópum sem ætla að koma til okkar áður en haldið er í jólahlaðborð eða slíkt. Sýningin byrjar nefnilega klukk- an sjö og lýkur hálf níu þannig að fólk á allt kvöldið eftir þegar henni lýkur, en þetta er rosalega góð upphitun fyrir velheppnað kvöld.“ fridrikab@frettabladid.is Gamlir, geðillir leikarar rifj a upp sögur sínar Ketilhúsið á Akureyri er í nýju hlutverki þessa dagana því í kvöld verður frumsýnt þar leikritið „Ég var einu sinni frægur“ með stórkanónum í öllum hlutverkum. JÓN GUNNAR Leikstjórinn er jafnframt höfundur verksins í samvinnu við leikarana þrjá, Gest Einar, Alla Bergdal og Þráin Karls sem allir leika sjálfa sig í verkinu. MYND: HEIÐA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.