Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 34
8 • LÍFIÐ 23. NÓVEMBER 2012
Hvað gerið þið til að rækta sam-
bandið ykkar þegar þið eruð
ekki að vinna saman?
Við erum dugleg að kúpla okkur
frá og fara upp í bústað og erum
heppin að vera mjög góðir vinir
auk þess að vera par. Svo passa
ég að rækta vinkonur mínar og
hann vini sína. Þá verðum við
ríkari og fullnægðari einstak lingar
og eigum meira að gefa hvort
öðru þegar við erum saman.
Stundar þú einhvers konar lík-
amsrækt, hugleiðslu, útivist til að
hreinsa hugann og halda þér við?
Ég fer með dóttur minni og vin-
konum í ræktina þrisvar í viku.
Það er mjög skemmtilegt og
hvetjandi að vera nokkrar saman
að sprikla. Ég fór á mitt fyrsta
hugleiðslunámskeið tuttugu ára
gömul og hef hugleitt allar götur
síðan. Ég stend á haus á hverj-
um degi og svo er nauðsynlegt
fyrir mig að anda ferska íslenska
loftinu að mér og leyfa vindin-
um að blása um ljósa kollinn
minn. Ég vildi gera miklu meira af
því, stundum er eina útiveran að
hlaupa á milli húsa eða út í bíl. Ég
þarf líka að rækta andann og á
hverjum degi les ég nokkrar blað-
síður sem hjálpa mér að verða
betri í dag en í gær.
Þið Dorrit hafið átt í nánu sam-
starfi, hversu mikilvægt telurðu
Framhald af síðu 7
Ég var samt reglulega
minnt á aldursmuninn af
öðru fólki sem horfði á tölurnar
og var að velta þessu fyrir sér.
Dorrit er
alveg einstök
manneskja,
bæði mjög
skemmtileg
og klár.
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
það fyrir þjóðina að eiga jafn
virka og duglega forsetafrú eins
og hún virðist vera?
Dorrit er alveg einstök mann-
eskja, bæði mjög skemmtileg
og klár. Mér finnst hún alveg frá-
bær blanda af manneskju, bæði
hispurslaus og heiðarleg á sama
tíma og hún er mjög kærleiks-
rík og ég hef ekki hitt marga Ís-
lendinga sem bera hag okkar jafn
mikið fyrir brjósti og hún.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Eftir tíu ár verð ég í hálfu starfi sem
matráðskona á leikskóla, skrifa
matreiðslubækur, rækta lífrænt
grænkál á svölunum mínum og nýt
þess að vera amma sem spilar fót-
bolta við „Ágútt“ og félaga.
Eitthvað að lokum?
Láttu matinn vera meðalið þitt OG
meðalið vera matinn þinn. - Hippó-
krates