Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 32
6 • LÍFIÐ 23. NÓVEMBER 2012
FULLT NAFN: Sólveig Eiríksdóttir
MAKI? Elías Guðmundsson
ALDUR? 52 ára
BÖRN? Tvær dætur: Hildur og Júlía
+ ein fósturdóttir, Aþena
BARNABÖRN? Einn ömmustrákur,
Ágúst
UPPÁHALDS:
MATUR? Kelpnúðlur með heimagerðu
kryddjurtapestói
DRYKKUR? Grænn djús
HREYFING? Jóga
DEKUR? Nudd
VEITINGASTAÐUR ERLENDIS? Café
Gratitude
VEFSÍÐA? http://kriscarr.com/
TÍMARIT? Alt for damerne
Það er óhætt að segja að Solla
græna, eins og við þekkjum hana
flest, standi undir nafni enda búin
að kenna okkur Íslendingum að
borða græna, holla og hamingju-
ríka fæðu undanfarin ár með því
að elda ofan í landann á farsælum
veitingastöðum sínum, deila fróð-
leik, upplýsingum og uppskriftum.
Lífið hitti Sólveigu Eiríksdóttur, eig-
anda Gló og matargúrú, og ræddi
um hollustuna, ástríðuna, aldurs-
muninn í sambandinu og umfram
allt glæsilega eftirréttabók sem
hún var að gefa út.
Til hamingju með fallegu eftir-
réttabókina þína – ég veit þú ert
afar stolt enda er hún einstak-
lega vel heppnuð. Er þessi bók
fyrir alla eða bara þá sem hafa
tileinkað sér hráfæðismatargerð?
Þessi bók er fyrir alla. Í henni leit-
ast ég við að kenna fólki að mat-
reiða einfalda, fljótlega og bragð-
góða eftirrétti með hráfæðismat-
reiðsluaðferðinni. Hér hef ég valið
uppskriftir sem hafa fengið góðar
móttökur hjá bæði gourmet kjö-
tætum og hráfæðisspírum.
Mig langar til að sjá að árið
2013 verði árið þar sem
ákveðið er að hverjum einasta
skóla og leikskóla verði
gert kleift að elda allan mat úr
góðu hráefni alveg frá grunni.
BLESSUÐ AÐ FÁ AÐ BERA BOÐSKAPINN
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu
frumsömdu jólasöguna.
Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag,
myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.
Samkeppnin er öllum opin.
Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi
anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk
eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls.
Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is.
Skilafrestur er til 5. desember.
Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba.
Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af
gerðinni United.
Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.
Jólasagan þín
Þú hefur vægast sagt verið far-
sæl í þínu fagi – hvenær hófst
þetta ævintýri allt saman og
áhugi þinn á hollri fæðu?
Ég er svo heppin að alast upp hjá
foreldrum sem lögðu mikla áherslu
á að gefa okkur hollan og góðan
mat. Þau notuðu gott hráefni og
höfðu salat með hverri máltíð svo
ég vandist frá upphafi á að borða
mikið grænmeti. Ég flutti ung til út-
landa og gerðist grænmetis æta 19
ára samkvæmt ráðleggingum nátt-
úrulæknis út af miklu matarofnæmi.
Ég lærði aldrei að elda „venjuleg-
an eða hefð bundinn“ mat, heldur
lærði ég að sjóða baunir og búa til
mitt eigið tófú á meðan vinkonur
mínar á Íslandi voru að steikja kjöt-
fars, sjóða bjúgu og læra að búa
til uppstúf. Ég hef alltaf haft mikla
sköpunarþörf sem ég fékk útrás
fyrir í eldhúsinu.
Nú er líklega óhætt að segja að
þú hafir verið aðeins á undan
þínum samtíma, hvað telur þú
þig eiga mikinn þátt í breyttu
matarræði Íslendinga og þanka-
gangi þeirra?
Sko, amma Solla var á undan
sínum samtíma þegar hún borð-
aði hráfæði í Kaupmannahöfn 1916
og foreldrar mínir voru á undan
sínum samtíma með því að rækta
lífrænt grænmeti og ala okkur upp
á hollum og góðum mat. Ég er
innblásin af þeim og erfði þeirra
ástríðu og trú á heilbrigt og gott
mataræði sem er búið til úr hráefni
sem er ræktað í sátt við náttúruna.
Ég hef verið blessuð að fá að bera
þennan boðskap áfram.
Finnst þér þú hafa náð til settum
árangri í þeim efnum eða á
þjóðin enn langt í land?
Mér finnst fólk almennt orðið mjög
meðvitað um að tengja saman gott
mataræði og reglubundna hreyf-
ingu sem gefur okkur heilbrigði.
Og við erum að mörgu leyti mjög
framarlega með gott aðgengi að
góðu hráefni og frábærum veit-
ingastöðum. Við Íslendingar eigum
mjög mikið af frábæru fólki, flottum
fyrirmyndum sem eru hvetjandi og
duglegar við að stuðla að auknu
heilbrigði þjóðarinnar.
Börnin okkar og fæðan þeirra,
ertu sátt við matinn sem skóla-
kerfið býður upp á?
Mér finnst mataræði barna mjög
mikilvægt og að þau fái sem
bestan grunn strax frá byrjun. Það
eru til bæði leikskólar og skólar
sem sýna okkur að það er hægt að
elda góðan mat frá grunni úr góðu
hráefni, eins og Hjalla stefnan,
Waldorf-skólarnir og fleiri. Ég veit
að þetta er hægt. Ég veit líka að
starfsfólkið í leikskóla og skóla-
mötuneytum er allt af vilja gert.
Það þarf að breyta stefnu yfir valda.
Mig langar til að sjá að árið 2013
verði árið þar sem ákveðið er að
hverjum einasta skóla og leikskóla
verði gert kleift að elda allan mat
úr góðu hráefni alveg frá grunni.
Hvað getum við gert til að bæta
okkur enn frekar?
Verið góðar fyrirmyndir og byrjað
heima hjá okkur. Eins og Gandhi
sagði svo réttilega: Be the change.
Gló hefur slegið rækilega í gegn,
hver er galdurinn?
Það var mjög gott að taka nokkurra
ára hlé frá veitingarekstri og vera
heima í eldhúsi að gera tilraunir og
búa til alveg endalaust af nýjum
uppskriftum. Þó svo að ég hafi ekki
ætlað mér aftur út í veitinga rekstur