Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 36
10 • LÍFIÐ 23. NÓVEMBER 2012 Hvenær hefst jólaundirbúningur- inn á þínu heimili? Hann byrjar yfir- leitt frekar snemma hjá mér eða í kringum miðjan október, en þá er komið smá jóla hér og þar. Vegna vinnu minnar koma jólin nokkuð snemma, en mér finnst það bara gaman. Ertu kannski búin að öllu? Já, ég er langt komin með jólaundir- búninginn, það er nánast allt húsið komið í jólafötin, jólakortin eru klár, mig vantar bara nokkrar jólagjafir upp á. En svo geymi ég alltaf smá skraut þangað til fyrsta í aðventu og svo skreytum við jólatréð viku fyrir jól. Eru einhverjar sérstakar jóla- hefðir sem þið hafið tileinkað ykkur og sinnið á hverju ári? Það eru nokkrar jólahefðir hjá okkur. Við höfum til dæmis farið síðastliðin fimm ár austur að Geysi í Haukadal með fjölskyldunni á jólahlað borðið og verið í bústað í nokkra daga, svo er toppurinn þegar við förum í Haukadalsskóg og fellum jólatréð okkar. Svo má ekki gleyma jólatón- leikunum hjá Frostrósum sem ég missi aldrei af í desember. Hvað eldið þið í jóla matinn? Hún móðir mín sér alveg um jólamatinn, aspassúpa í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og ananas frómas í eftirrétt, þetta klikkar aldrei. Uppáhaldsjólalagið þitt? Þau eru nokkur, en ég held mikið upp á „Ó helga nótt“ með Agli Ólafs. Hvaða þema er í skreyt ing- unum hjá þér í ár? Náttúru legir litir með greni og könglum, hvít kerti og svo er ég alveg veik fyrir hreindýrum. Segðu okkur aðeins frá krans- inum? Hann er hlýlegur en samt töff, mér finnst gaman að prófa eitt- hvað nýtt þegar kemur að aðventu- krönsum. Ég varð alveg heilluð af þessum litlu glerkúplum sem ég sá í ILVA, en þeir gera kransinn pínu öðruvísi. Hvaða hráefni notar þú í hann? Stóran gráan sink-bakka, fjóra litla glerkúpla, fjóra sand litaða kerta- stjaka í tveimur stærðum (TIGER), fjögur hvít kerti, fullt af könglum, f jögur s ink-merk isp jö ld f rá Púkó&smart, svarta tölustafi, tuju- greni, brúnt leðurband og æðis- legu hreindýrin frá House Doctor sem setja punktinn yfir i-ið. FELLA TRÉ OG FARA Í BÚSTAÐ Á AÐVENTUNNI Þórunn Högnadóttir, ritstjóri veftímaritsins Nude Home, er ekki bara upptekin við að skreyta fyrir blaðið sitt heldur er hún nánast búin að öllu fyrir jólin heima fyrir. Lífið leit inn á fallega heimilið hennar og forvitnaðist um nýjasta aðventukransinn sem hún var að leggja lokahönd á. „Ég geymi alltaf smá skraut þangað til fyrsta í aðventu og svo skreytum við jóla- tréð viku fyrir jól.“ Ég er alveg veik fyrir hreindýrum. Lífið telur niður að jólum „Ég varð alveg heilluð af þessum litlu glerkúplum sem ég sá í ILVA, en þeir gera kransinn pínu öðru- vísi.“ E-Label / evalín / Laugavegi 32 /sími 5713811 E-Label kynnir með stolti haust 2012 línu sína hannaða af nýju hönnunarteymi skipað nokkrum af mest spennandi fatahönnuðum landsins. Línan er seld í verslun okkar á Laugavegi 32 og í Topshop í Kringlunni og Topshop í Smáralind.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.