Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 12
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Átt þú rétt
á lækkun skulda?
Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem skulda meira en 100%
af markaðsvirði veðsettra fasteigna og bifreiða. Skuldaaðlögunin
nær til allra skulda einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði, bönkum,
sparisjóðum og lífeyrissjóðum.
Sértæk skuldaaðlögun kemur aðeins til greina ef sýnt þykir
að vægari úrræði nægja ekki til að rétta af fjárhagsstöðuna
og fyrirséð er að viðkomandi geti ekki staðið í skilum af lánum
sínum til langframa.
Sótt er um sértæka skuldaðlögun í viðskiptabanka umsækjanda.
Frestur til að sækja um sértæka skuldaaðlögun
rennur út um næstu áramót
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
DÓMSMÁL „Því
miður er ég
hræddur um að
það sé búið að
ákveða þennan
dóm fyrir löngu
síðan og það sé
bara formsatriði
að halda þessi
réttarhöld,“
sagði Annþór
Kristján Karls-
son þegar honum gafst tækifæri til
að ávarpa dóminn í blálokin á eigin
réttarhöldum undir kvöld í gær.
Annþór er ákærður ásamt Berki
Birgissyni og átta öðrum fyrir
þrjár líkamsárásir, frelsissvipt-
ingar og fjárkúgun. Saksóknari
og verjendur fluttu mál sitt í allan
gærdag, en í lokin fengu Annþór og
Börkur að ávarpa dóminn að eigin
ósk.
Annþór lýsti þeirri skoðun sinni
að málið allt væri atlaga að honum.
„Lögregla og aðrir glæpamenn – ég
lít á mig sem glæpamann, hef verið
glæpamaður í mörg ár – eru búnir
að biðja menn að bera ljúgvitni
gegn mér,“ sagði hann.
Þá gagnrýndi hann það sem
hann kallaði „fíaskó“ við flutning
hans og Barkar til og frá réttar-
sölum. „Það er búið að búa til eitt-
hvað „show“ eins og við séum
alveg svaðalega
hættu legir,“
sagði hann, og
bætti við að
sjálfur hefði
hann ekkert gert
sem gæfi tilefni
til þess og að
Börkur hefði
bara hrækt í átt
að dómara. „Ég
sé ekki alveg
ofbeldið í því,“ sagði Annþór.
„Mig langar að lýsa yfir ánægju
með það að allir þeir sem hafa
borið mig röngum sökum skuli
hafa dregið framburð sinn til
baka,“ sagði Börkur. Þess ber að
geta að saksóknari heldur því fram
að sá breytti framburður helgist
af hótunum Annþórs og Barkar í
þeirra garð.
Báðir hafa þeir sagst að lang-
mestu leyti saklausir og halda
því fram að lögregla hafi falsað
skýrslur. Og Börkur bætti um
betur í gær: „Lögreglan er búin
að hvetja og kúga veikgeðja ein-
staklinga til að bera ljúgvitni gegn
mér.“ Þá kvaðst hann ætla að birta
upptökur af vitnaskýrslum sem
hann fékk afhentar fyrir mistök á
netinu sem staðfestingu á óheiðar-
legum vinnubrögðum lögreglu.
Hann sagðist hafa setið sak-
Farið fram á
þunga dóma
Saksóknari krefst átta og sjö ára fangelsisdóma yfir
Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni. Þeir ávörpuðu
dóminn og lýstu óréttlætinu sem þeir telja sig beitta.
LANGT OG STRANGT Dómarar málsins eiga mikið verk fyrir höndum næstu fjórar vikur. Þessa mynd teiknaði Halldór Baldurs-
son af þeim á þriðjudag.
laus í fangelsi í átta mánuði vegna
málsins, vitnaði í stjórnarskrár-
ákvæðið um að allir menn væru
saklausir uns sekt þeirra væri
sönnuð og lauk ræðu sinni á þenn-
an hátt:. „Af hverju á þetta ákvæði
ekki við um mig?“
Það var sækjandi málsins, Karl
Ingi Vilbergsson, sem hóf gær-
daginn á málflutningi sínum. Hann
sagði framburð Annþórs og Barkar
mjög ótrúverðugan og benti á að
nánast allir sem tengdust málunum
sem til umfjöllunar eru væru mjög
óttaslegnir við þá.
Því næst fór Karl Ingi yfir refsi-
kröfurnar í málinu. Hann fór fram
á átta ára fangelsi yfir Annþóri og
sjö ára yfir Berki, með vísan til
mikils brotaferils þeirra. Hann
krafðist tveggja til þriggja og hálfs
árs fangelsis yfir flestum hinna, og
hálfs árs fangelsis yfir einum.
Verjendurnir tíu tóku við af Karli
Inga og töluðu máli skjólstæðinga
sinna. Allir voru þeir sammála um
að rannsókn lögreglu hefði verið
áfátt, jafnvel svo mjög að það ætti
að varða frávísun málsins.
Lengst töluðu Guðmundur St.
Ragnarsson, verjandi Annþórs,
og Ingi Freyr Ágústsson, verjandi
Barkar. Þeir töldu augljóst að lög-
regla hefði ekki gætt hlutlægni
við rannsókn málsins. Hún hefði
nær öll beinst að skjólstæðingum
þeirra. „Það er eins og það sé verið
að reyna að negla þá tvo – ekki
hina,“ sagði Guðmundur, sem sagði
til dæmis að það væri „algjör firra“
að ætla að sakfella Annþór fyrir
árás í Háholti í Mosfellsbæ sem níu
sakborninganna eru ákærðir fyrir.
„Málið er allt með ólíkindum,“
samsinnti Ingi Freyr. Allt væri gert
til að varpa sök á Annþór og Börk
og sumu úr framburði vitna og sak-
borninga væri „sópað undir teppið“
í þeim tilgangi. Að öllu loknu var
málið dómtekið. Dómur fellur lík-
lega innan fjögurra vikna.
stigur@frettabladid.is
ANNÞÓR KRIST-
JÁN KARLSSON
BÖRKUR
BIRGISSON
Lögreglan er búin að
hvetja og kúga veikgeðja
einstaklinga til að bera
ljúgvitni gegn mér.
Börkur Birgisson