Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 12
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Átt þú rétt á lækkun skulda? Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem skulda meira en 100% af markaðsvirði veðsettra fasteigna og bifreiða. Skuldaaðlögunin nær til allra skulda einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði, bönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum. Sértæk skuldaaðlögun kemur aðeins til greina ef sýnt þykir að vægari úrræði nægja ekki til að rétta af fjárhagsstöðuna og fyrirséð er að viðkomandi geti ekki staðið í skilum af lánum sínum til langframa. Sótt er um sértæka skuldaðlögun í viðskiptabanka umsækjanda. Frestur til að sækja um sértæka skuldaaðlögun rennur út um næstu áramót Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 DÓMSMÁL „Því miður er ég hræddur um að það sé búið að ákveða þennan dóm fyrir löngu síðan og það sé bara formsatriði að halda þessi réttarhöld,“ sagði Annþór Kristján Karls- son þegar honum gafst tækifæri til að ávarpa dóminn í blálokin á eigin réttarhöldum undir kvöld í gær. Annþór er ákærður ásamt Berki Birgissyni og átta öðrum fyrir þrjár líkamsárásir, frelsissvipt- ingar og fjárkúgun. Saksóknari og verjendur fluttu mál sitt í allan gærdag, en í lokin fengu Annþór og Börkur að ávarpa dóminn að eigin ósk. Annþór lýsti þeirri skoðun sinni að málið allt væri atlaga að honum. „Lögregla og aðrir glæpamenn – ég lít á mig sem glæpamann, hef verið glæpamaður í mörg ár – eru búnir að biðja menn að bera ljúgvitni gegn mér,“ sagði hann. Þá gagnrýndi hann það sem hann kallaði „fíaskó“ við flutning hans og Barkar til og frá réttar- sölum. „Það er búið að búa til eitt- hvað „show“ eins og við séum alveg svaðalega hættu legir,“ sagði hann, og bætti við að sjálfur hefði hann ekkert gert sem gæfi tilefni til þess og að Börkur hefði bara hrækt í átt að dómara. „Ég sé ekki alveg ofbeldið í því,“ sagði Annþór. „Mig langar að lýsa yfir ánægju með það að allir þeir sem hafa borið mig röngum sökum skuli hafa dregið framburð sinn til baka,“ sagði Börkur. Þess ber að geta að saksóknari heldur því fram að sá breytti framburður helgist af hótunum Annþórs og Barkar í þeirra garð. Báðir hafa þeir sagst að lang- mestu leyti saklausir og halda því fram að lögregla hafi falsað skýrslur. Og Börkur bætti um betur í gær: „Lögreglan er búin að hvetja og kúga veikgeðja ein- staklinga til að bera ljúgvitni gegn mér.“ Þá kvaðst hann ætla að birta upptökur af vitnaskýrslum sem hann fékk afhentar fyrir mistök á netinu sem staðfestingu á óheiðar- legum vinnubrögðum lögreglu. Hann sagðist hafa setið sak- Farið fram á þunga dóma Saksóknari krefst átta og sjö ára fangelsisdóma yfir Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni. Þeir ávörpuðu dóminn og lýstu óréttlætinu sem þeir telja sig beitta. LANGT OG STRANGT Dómarar málsins eiga mikið verk fyrir höndum næstu fjórar vikur. Þessa mynd teiknaði Halldór Baldurs- son af þeim á þriðjudag. laus í fangelsi í átta mánuði vegna málsins, vitnaði í stjórnarskrár- ákvæðið um að allir menn væru saklausir uns sekt þeirra væri sönnuð og lauk ræðu sinni á þenn- an hátt:. „Af hverju á þetta ákvæði ekki við um mig?“ Það var sækjandi málsins, Karl Ingi Vilbergsson, sem hóf gær- daginn á málflutningi sínum. Hann sagði framburð Annþórs og Barkar mjög ótrúverðugan og benti á að nánast allir sem tengdust málunum sem til umfjöllunar eru væru mjög óttaslegnir við þá. Því næst fór Karl Ingi yfir refsi- kröfurnar í málinu. Hann fór fram á átta ára fangelsi yfir Annþóri og sjö ára yfir Berki, með vísan til mikils brotaferils þeirra. Hann krafðist tveggja til þriggja og hálfs árs fangelsis yfir flestum hinna, og hálfs árs fangelsis yfir einum. Verjendurnir tíu tóku við af Karli Inga og töluðu máli skjólstæðinga sinna. Allir voru þeir sammála um að rannsókn lögreglu hefði verið áfátt, jafnvel svo mjög að það ætti að varða frávísun málsins. Lengst töluðu Guðmundur St. Ragnarsson, verjandi Annþórs, og Ingi Freyr Ágústsson, verjandi Barkar. Þeir töldu augljóst að lög- regla hefði ekki gætt hlutlægni við rannsókn málsins. Hún hefði nær öll beinst að skjólstæðingum þeirra. „Það er eins og það sé verið að reyna að negla þá tvo – ekki hina,“ sagði Guðmundur, sem sagði til dæmis að það væri „algjör firra“ að ætla að sakfella Annþór fyrir árás í Háholti í Mosfellsbæ sem níu sakborninganna eru ákærðir fyrir. „Málið er allt með ólíkindum,“ samsinnti Ingi Freyr. Allt væri gert til að varpa sök á Annþór og Börk og sumu úr framburði vitna og sak- borninga væri „sópað undir teppið“ í þeim tilgangi. Að öllu loknu var málið dómtekið. Dómur fellur lík- lega innan fjögurra vikna. stigur@frettabladid.is ANNÞÓR KRIST- JÁN KARLSSON BÖRKUR BIRGISSON Lögreglan er búin að hvetja og kúga veikgeðja einstaklinga til að bera ljúgvitni gegn mér. Börkur Birgisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.