Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 8
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 VERÐ FRÁ 10.950.000 KR. MYNDARLEGUR Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu. Ef þig langar að prófa Discovery skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 525 8000 eða koma við og skreppa í reynsluakstur. Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is www.landrover.is Tryggðu þér nýjan DISCOVERY 4 fyrir breytingar á vörugjöldum þann 1. jan. nk ATHUGIÐ! E N N E M M / S ÍA / N M 5 5 3 5 1 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. VIÐSKIPTI Upplýsa verður um alla þá sem eiga meira en eitt pró- sent í íslensku fjármálafyrir- tæki í ársreikningi. Ekki verður hægt að fela sig á bak við vörslu- aðila heldur verður að upplýsa um hverjir endanlegir eigendur (e. bene ficiary owners) eru. Þetta er á meðal þeirra breytinga sem koma fram í frumvarpi um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra fjármálamarkaða og almennra við- skiptamála, segir frumvarpið vera í lokafrágangi og að það verði lagt fram í náinni framtíð. Fréttablaðið greindi frá því á miðvikudag að Fjármálaeftir litið (FME) hefði upplýs ingar um hverj- ir væru virkir eigendur Straums fjárfestingabanka en teldi sig ekki geta upplýst um þá á grundvelli þagnarskyldu. Sú þagnarskylda verður úr sögunni ef frumvarpið verður að lögum. Að sögn Steingríms er mikil- vægt að fyrir liggi greinargóðar upplýsingar um hverjir séu eig- endur fjármálafyrirtækja. „Sér- staklega á ekki að vera neinn vafi á því þegar aðilar eru komnir með, eða eru við það að eignast, ráðandi hlut í fjármálafyrirtækjum. Það vill svo til að við erum að fara yfir lög um fjármálafyrirtæki og erum að leggja lokahönd á frumvarp um breytingar á þeim. Ég geri ráð fyrir því að á meðal þeirra breytinga sem við munum leggja þar til verði að krafa verði gerð um að í skýring- um með ársreikningum fjármála- fyrirtækja sé alltaf upplýst um alla þá sem eiga meira en eitt prósent í fyrirtækinu.“ Steingrímur segir að hann vilji að endanlegur eigandi (e. beneficiary owner) sé tilgreindur í ársreikn- ingum fjármálafyrirtækja, svo hægt sé að rekja endanleg tengsl milli eigendanna. „Þetta snýst líka um að ráðandi eignarhlutur sé ekki falinn á bak við skráningu á marga aðila sem eru ekki flokkaðir sem tengdir aðilar. Við munum reyna að taka á þessu vegna þess að við teljum þetta vera mjög mikilvægt. Það er líka mjög mikilvægt fyrir fjármálafyrirtækin sjálf að það ríki ekki óvissa um eignarhald þeirra sem geri þau tortryggileg.“ Eftir að Straumur gekk í gegnum nauðasamninga árið 2010 hefur eig- andi bankans verið eignaumsýslu- félagið ALMC. Deutsche Bank AF í Amsterdam heldur síðan á 99 prósentum hlutdeildarskírteina í ALMC fyrir hönd hinna eiginlegu hluthafa félagsins. Hvorki FME né Straumur telja sig mega upplýsa um hverjir þeir eru. Bankinn fékk fjár- festingabankaleyfi í fyrrahaust og hefur verið afar virkur þátttakandi í íslensku fjármálalífi alla tíð síðan og meðal annars haft umsjón með hlutafjárútboðum og skuldabréfa- útgáfum. Fréttablaðið upplýsti nýverið um að á meðal eigenda Straums væri bandaríska sjóðstýringarfyrir- tækið Davidson Kempner Capital Management LLC. Sjóðir á vegum þess eru líka á meðal stærstu kröfu- hafa Glitnis, Kaupþings og Lands- bankans. thordur@frettabladid.is Upplýsa á um eigendur bankanna Yfirvofandi breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki munu skikka fyrirtækin til að tilgreina alla sem eiga meira en eitt prósent í þeim í ársreikningum sínum. Upplýsa verður um endanlega eigendur. Steingrímur J. Sigfússon mun leggja fram frumvarp þess efnis á næstunni. FRUMVARP Steingrímur J. Sigfússon segir það mikilvægt að ráðandi eignarhlutur sé ekki falinn á bak við skráningu á marga aðila sem séu ekki flokk- aðir sem tengdir aðilar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Stærstur hluti Arion banka og Íslandsbanka er í dag í eigu eignarhaldsfélaga sem skipuð eru stjórnar- mönnum óháðum kröfuhöfum gömlu bankanna, Kaupþings og Glitnis. Félögin heita Kaupskil og ISB Holding. Bæði Kaupþing og Glitnir stefna að því að klára nauðasamning á næstu mánuðum. Verði þeir samþykktir munu verða til eignarhaldsfélög utan um eignir búanna í eigu kröfuhafa og slitameðferð ljúka. Fréttablaðið beindi fyrirspurn til FME um hvort afstaða þess til hæfis Kaupþings og Glitnis til að fara með virkan eignarhlut í nýju bönkunum myndi breyt- ast við samþykkt nauðasamninga. Í svari eftirlitsins segir að „eðli málsins samkvæmt er Fjármálaeftirlitinu ómögulegt að svara hvaða áhrif mögulegir nauða- samningar Glitnis og Kaupþings kunna að hafa á hæfi þeirra sem eigenda að fjármálafyrirtækjum almennt. Slíkt er ávallt háð mati á hverjum tíma. Hins vegar er ljóst að Kaupskil og ISB Holding hafa nú þegar skilyrta heimild fyrir eignarhaldinu sem stendur óbreytt óháð mögulegum nauðasamningum félaganna. Komi til afturköllunar á þeirri skilyrtu heimild, t.a.m. vegna þess að misbrestur verði á því að núverandi skilyrði fyrir eignarhaldinu verði uppfyllt eða af öðrum ástæðum, er ljóst að meta þarf hæfi þeirra að nýju“. ➜ Áhrif nauðasamninga óljós
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.