Fréttablaðið - 23.11.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 23.11.2012, Síða 16
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | Um þrjátíu íbúðir af 206 eru tómar. Miðað við það eiga eigendur hverrar íbúðar 11,3 milljónir króna hjá Eir. 11,3 ASKÝRING | 16 FJÁRHAGSVANDI EIRAR Eftir að framkvæmdastjóra Eirar varð staðan ljós ákvað hann ásamt stjórninni að leita til utanaðkomandi sérfræðinga til að skoða málið. Lex lögmenn og KPMG voru fengin til verksins og hafa unnið með kröfuhöfum og stjórn til að finna lausn á vandanum. Reynt er að vinna hratt að lausn málsins. Stjórnin óskaði jafnframt eftir því að Ríkisendurskoðun rannsakaði vandann og ástæður hans en því hafnaði Ríkisendurskoðandi á þeim forsendum að hann hefði ekki umboð til þess. Vandinn væri vegna hús- rekstrarsjóðsins, en ekki hjúkrunarheimilisins. Þá hefur stjórn Eirar sent fjármála- og efnahagsráðuneytinu beiðni um að málefni Eirar verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. ➜ Hvað er verið að gera í málinu? Málefni Eirar voru rædd á Alþingi fyrr í vikunni. „Þarna er augljóslega mjög alvarlegt mál á ferðinni og það verður rannsakað ofan í kjölinn enda um að ræða gríðarlega hagsmuni íbúa þessa heimilis,“ sagði Sigríður Ingi- björg Ingadóttir formaður velferðarnefndar. Hún sagði aðkomu nefndar- innar „einna helst að fara fram á að farið verði yfir rekstur allra hjúkrunar- heimila á Íslandi, hvort þar sé eitthvað í gangi svipað þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið á Eir og hvort tryggt sé að eigendur leggi ekki ævifjármunina sína í hendurnar á fjárglæfrafólki“. Hún vildi ekki segja til um með hvaða hætti nefndin myndi gera þetta, en hún sagðist telja eðlilegt að einhverjir aðrir færu yfir þetta. „Við munum samhliða því sem við ræðum um þörf fyrir hjúkrunarheimili og málefni hjúkrunarheimila út frá því sjónarhorni ræða með hvaða hætti hægt er að auka öryggi þeirra sem flytja á hjúkrunarheimili. Það er augljóst af þessu máli að traust fólks á þeim stofnunum sem reknar eru fyrir ríkisfé fyrir aldraða hefur borið alvarlegan skaða.“ Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, hefur einnig tjáð sig um málið. Í gærkvöldi sagði hann að ekki stæði til að ríkið legði fé inn í reksturinn, en það væri þó ekki hægt að útiloka. ➜ Hvað ætla stjórnvöld að gera? 2008 2009 2010 2011 2012 2013 NÓVEMBER 2007 Bygging 110 öryggisíbúða við Fróðengi hafin. Sigurður Helgi Guðmundsson Framkvæmdastjóri frá stofnun fram í maí 2011. OKTÓBER 2008 Hrun. Búið að grafa grunn. Ákveðið að halda áfram fram- kvæmdunum. 1. DESEMBER 2009 Fyrstu öryggis- íbúðirnar vígðar. SEPTEMBER 2012 Ákveðið að hætta að borga af lánum. 1. NÓVEMBER 2012 Stöð 2 greinir fyrst frá fjárhagsvanda Eirar. 8. NÓVEMBER 2012 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir af sér sem formaður stjórnar. Vilhjálmur Þ. Framkvæmdastjóri frá maí 2011 til áramóta 2011-2012. Sigurður Rúnar Sigurjónsson Framkvæmdastjóri frá áramótum 2012 en tók við húsrekstrarsjóði í ágúst 2012. Eir rekur 206 öryggisíbúðir. 37 íbúðir eru að Hlíðarhúsum 3 til 5 í Reykjavík, 58 íbúðir eru að Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ og þær nýjustu eru 111 talsins og eru að Fróðengi 1 til 11. Allar íbúðirnar eru hannaðar þannig að auðvelt sé að komast um til dæmis í hjólastól. Þær eru útbúnar öryggiskerfi sem tengist hjúkrunarvakt allan sólarhringinn og útköllum er sinnt af hjúkrunarfræðingum eða sjúkraliðum. Íbúar geta keypt mat frá Eir og fá hann þá ýmist sendan eða borða hann í matsal Eirar. Í Hlíðarhúsum eru íbúðirnar með tengigangi yfir á hjúkrunarheimilið og geta íbúarnir því sótt sér alla þjónustu þangað. Í Mosfellsbænum er ýmis þjónusta í húsinu og í Fróðengi er áætlað að borgin byggi þjónustumiðstöð árið 2014 sem mun veita þjónustu. ➜ Hvað eru öryggisíbúðir? Íbúar í öryggisíbúðunum greiða útborgun og geta síðan leigt það sem eftir stendur af verðinu. Þetta er kallað íbúðarréttur og með honum á fólk rétt á að búa í íbúðunum. Margir íbúar hafa lagt ævisparnaðinn í íbúðarrétt- inn. Ef íbúar falla frá eða vilja flytja annað er upphæðin sem þeir lögðu inn framreiknuð og endurgreidd innan hálfs árs. Tvö prósent af útborguninni koma til frádráttar á hverju ári. Að auki er tekið gjald fyrir viðhald á íbúðunum og sameiginlegu hús- næði og fyrir kostnað við hita, rafmagn, ræstingu og fleira. Þá borga íbú- arnir fasteignagjöld. Þessi íbúðarréttur nemur nú um tveimur milljörðum króna. Um þrjátíu íbúðir eru sagðar tómar af þessum 206 og miðað við það eiga íbúar hverrar íbúðar um 11,3 milljónir króna hjá Eir. ➜ Hver er staða íbúa? Fyrir utan þá tvo milljarða sem Eir skuldar íbúunum þá nema skuldir við Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóði, sem fjármögnuðu byggingu öryggisíbúð- anna við Fróðengi, um sex milljörðum króna. Aðgerðir nú miða meðal annars að því að tryggja samninga við þessa kröfuhafa um lausn vandans. Þessir kröfuhafar eiga veð í fasteignum Eirar, en það eiga íbúarnir ekki. Eigið fé Eirar er neikvætt um 385 milljónir og tæknilega er stofnunin gjaldþrota. ➜ Hvernig standa fjármálin? SAMFÉLAGSMÁL Allar líkur eru á því að skipt verði um fulltrúaráð og stjórn Eirar á næstunni. Borgarráð Reykjavíkur- borgar samþykkti í gær að fulltrúum borgarinnar í fulltrúaráðinu yrði skipt út. Þá vill borgin að stjórninni verði skipt út. Fundur í fulltrúaráðinu verður 7. des- ember næstkomandi, en það er fulltrúa- ráðið sem skipar stjórnina. Stjórn Eirar frestaði á fundi sínum fyrr í vikunni til- lögu frá stjórnarformanni um að full- trúaráðið yrði leyst upp og ný stjórn yrði skipuð. Björn Valur Gíslason, formaður fjár- laganefndar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að til stæði að skipta um flesta ef ekki alla fulltrúa í ráðinu. Þá blasti við að stjórnin hefði ekki lengur umboð til starfa. Björn Valur hefur verið fulltrúi fjárlaganefndar í starfshópi um málefni Eirar. Eftir að vandræði Eirar komust í sviðs- ljósið hefur verið þrýst á stjórnarmenn að hætta störfum. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, sem var stjórnarformaður og um tíma framkvæmdastjóri, sagði af sér þann 8. nóvember síðastliðinn. Hafsteinn Pálsson fylgdi í kjölfarið og svo Jórunn Frímannsdóttir, sem hafði komið inn í stjórnina fyrir Vilhjálm. Aðrir stjórnar- menn hafa ekki sagt af sér. Stefán Benediktsson, sem er fulltrúi meirihluta borgarinnar í stjórninni, sagði í kvöldfréttum Rúv í gær að hann vildi ekki hætta í stjórninni. Honum þætti það fáránlegt. Ef ekki hefði komið nýtt fólk inn í stjórnina árið 2011, og það fólk upplýst um stöðuna, væri ekkert komið upp á yfirborðið um vandræðin. Öllum verði skipt út Unnið er að því að skipta út fulltrúaráði Eirar og í framhaldinu stjórninni. Þrír stjórnarmenn hafa þegar hætt, en einn segir fáránlegt að hann eigi að víkja. ÖRYGGISÍBÚÐIR EIRAR Unnið er hörðum höndum að lausn á vanda hjúkrunarheimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þórunn Elísabet Bogadóttir thorunn@frettabladid.is Eir er sjálfseignarstofnun sem var upphaflega hjúkrunarheimili og var tekið í notkun árið 1993. Á Eir eru nú 155 hjúkrunarheim- ilisrými, tólf endurhæfingarrými og sex skammtímarými, samtals 173 rými. Þá er þar dagvistun fyrir fólk með heilabilunarsjúk- dóma og geta allt að 24 dvalið þar á daginn. Eir rekur einnig 206 öryggis- íbúðir. Þær eru reknar í hús- rekstrarsjóði, sem er aðskilinn rekstri hjúkrunarheimilisins, en þó er allt rekið á sömu kennitölunni. HVAÐ ER EIR? VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON stjórnarformaður MAGNÚS L. SVEINSSON HAFSTEINN PÁLSSON STEFÁN BENE- DIKTSSON HELGA EYSTEINS- DÓTTIR FANNEY PROPPÉ EIRÍKSDÓTTIR ÞÓRUNN SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR Ellefu sveitarfélög, félagasamtök og stofnanir voru stofnaðilar í Eir. Reykjavíkurborg, VR, Sel- tjarnarnesbær, Blindrafélagið, Félag áhugafólks og aðstand- enda Alzheimerssjúklinga, Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði, Hjúkrunarheim- ilið Skjól, Brynja (hússjóður Öryrkjabandalagsins), Efling, SÍBS og Mosfellsbær skipa sína fulltrúa í fulltrúaráð Eirar, sem fundar að minnsta kosti tvisvar á ári. Fulltrúaráðið kýs svo bæði stjórnina og skoðunarmenn reikninga. HVERJIR SKIPA Í STJÓRN? STJÓRNARFUNDUR Stjórnarmenn ganga af fundi fyrr í mánuðinum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.