Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 19

Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 19
FÖSTUDAGUR 23. nóvember 2012 | SKOÐUN | 19 Ímyndum okkur eftirfarandi leik: Bláum og rauðum súkkulað- ieggjum er dreift um Öskjuhlíð- ina. Eggin sjást ekki langar leiðir heldur þarf oft að kemba grasið og fara inn í runna til að finna þau. Krakkahópur fær það hlut- verk að leita að eggjunum. Setjum okkur nú í hlutverk kennarans. Við stýrum leiknum og höfum nokkur markmið. Við viljum til dæmis að a) allir leggi sig fram við að leita að eggjun- um eftir bestu getu og b) að allir krakkar fái að minnsta kosti eitt blátt egg og eitt rautt egg í lok leiks og helst líka að c) sem flest eggin finnist og á sem skemmst- um tíma. Hvernig eigum við setja upp leikinn til að ná þessu fram? Aðferð 1 Hugsum okkur fyrst að við setj- um engar reglur og segjum bara „Einn, tveir og … leita!“. Ef nóg er af eggjum getur þessi aðferð hæglega uppfyllt öll skilyrðin að ofan. En segjum að eggjapör- in séu ekki mikið fleiri en börn- in. Nokkur barnanna munu þá kannski rjúka af stað og hamstra egg, aðrir munu ekki finna neitt og gefast upp eftir nokkra stund. Í þessum leik eru hvatarnir til að leita að eggjum vissulega miklir (til að byrja með) en hættan er á að einhverjir labbi burt tómhent- ir er töluverð. Það er fúlt. Það er leiðinlegt að fá ekki súkkulaði. Aðferð 2 Kannski gætum við einfaldlega prófað að safna öllum saman í upphafi leiks og útskýrt mark- miðin: „Jæja, krakkar! Nú ætlum við að fara að leita að súkkulaði- eggjum. En það má enginn borða neitt fyrr en ALLIR í hópnum eru komnir með að minnsta kosti eitt rautt og eitt blátt egg. Hvað haldið þið að þið getið fljót að ná því? Þið vitið að 4.C var einungis 6 mínútur að finna eitt rautt og blátt egg á mann. Haldið þið að þið getið verið fljótari en þau?“ Hvernig ætli þetta myndi virka? Ef til vill myndu krakkarn- ir byrja á því að leita hver fyrir sig en uppgötva svo að þau hefðu stundum hag af því að skiptast á eggjum, til dæmis ef einhver einn ætti tvö blá en einhver annar tvö rauð. Í lokin gætu svo einhverj- ir þurft að láta einhver egg af hendi til hinna „eggjasnauðari“ svo dæmið gengi upp. Þessi aðferð nær í það minnsta markmiðinu um „lágmarksfram- færslu“ öfugt við aðferð 1. Aðferð 3 Við gætum auðvitað gengið miklu lengra og sagt: „Nú ætlum við að fara út og leita að súkkulaðieggj- um hérna í brekkunni. Allir sem finna einhver súkkulaðiegg verða að koma með þau hingað niður að stóra steini og ég (kennarinn) ætla að telja þau. Það fær eng- inn súkkulaðiegg fyrr en ég segi. Svona, af stað!“ Aðferðirnar þrjár lýsa hreinum kapítalisma, norrænu velferðar- módeli og kommúnisma. Aðferðir 1 og 2 reyna að virkja kosti „frjáls markaðar“. Aðferðir 2 og 3 reyna að tryggja jöfnuð en ég held að aðferð 2 geri það á flestan hátt betur en aðferð 3. Menn nenna síður að leggja sig allan fram ef þeir fá jafnmikið og þeir sem gera ekki neitt. Að auki er miðstýrð dreifing ekki endi- lega hagkvæm. Í stórum málaflokkum, til dæmis þegar kemur að menntun og gæslu ungra barna, virðast nú engar hugmyndir ná flugi aðrar en þær að hið opinbera fram- leiði vöruna og dreifi henni, helst „ókeypis“ og til allra. Það ætti að vara við því. Við getum ekki endalaust minnkað við efnahags- lífið og aukið við velferðarkerf- ið. Eitt borgar, jú, að mestu fyrir annað. Frjáls markaður er góð leið til að dreifa vörum. Ef við lítum á eggjaleitina okkar þá er fljót- legra að krakkarnir víxli sjálfir á þeim súkkulaðieggjum sem þá vantar fremur en að þeir komi með þau öll í sama pott og bíði eftir að kennarinn skipti þeim á milli. Okkur hættir stundum til að hugsa mikið í stórum miðlæg- um kerfum þótt lífið sé fullt af mótdæmum um dreifð kerfi sem virka vel. Auðvitað þarf til dæmis ekki „miðlæga opinbera leigu- þjónustu með barnaföt“. Bland.is dugar bara fínt. Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Norræna nammileitin Í stórum málaflokk- um, til dæmis þegar kemur að menntun og gæslu ungra barna, virðast nú engar hugmyndir ná flugi aðrar en þær að hið opinbera framleiði vöruna og dreifi henni, helst „ókeypis“ og til allra. Á sama tíma og fjárlaga- valdið kom því á framfæri við íslenska ættleiðingar- félagið að ekki væri svig- rúm til að hækka framlög til félagsins um eina krónu, félags sem þó sinnir mörg- um stjórnsýslulegum verk- efnum, ákváðu stjórnmála- mennirnir sem hafa þetta fjárveitingavald að skuld- binda ríkissjóð vegna átta þúsund og sjö hundr- uð milljóna króna fram- kvæmdar. Það er nefni- lega mjög mikilvægt að bora göng í gegnum Vaðlaheiði. Alþjóðasamfélagið hefur komið sér saman um hvernig ættleiðing- ar milli landa eiga að fara fram svo velferð barna sé tryggð. Íslenska ríkið hefur gerst aðili að þessu samkomulagi og býr að góðri ætt- leiðingarlöggjöf sem stenst kröf- ur alþjóðasamfélagsins. Íslenska ríkið felur ættleiðingarfélaginu, Íslenskri ættleiðingu, með löggjöf að framkvæma mörg þeirra verk- efna sem það hefur undirgengist í alþjóðasamningum. Og ættleið- ingarfélagið vill með ánægju leysa verkefnin sem fyrir það eru lögð. Sanngjörn tillaga Fyrir nærri fjórum árum hóf Íslensk ættleiðing viðræður við ríkið um að fimmfalda þyrfti fram- lög til félagsins svo það gæti staðið undir lögbundnum skyldum sínum. Forsvarsfólk félagsins hafði samt tekið eftir að í landinu varð fjár- málahrun og bauðst til að ganga í hastarlegan niðurskurð fyrstu árin. Síðan þráðurinn var tekinn upp í viðræðum við ríkið hefur varla gengið né rekið. Í vor gerði Íslensk ættleiðing það að sanngjarnri tillögu sinni til ríkisins að nauðsynleg framlög til félagsins yrðu hækkuð í skref- um á þremur árum. Því þó einung- is sé verið að ræða um 45 milljóna króna aukningu á fjármagni til lög- bundinna verkefna, hraus mörgum stjórnmálamanninum hugur við því að klára málið í einu skrefi. Það er nefnilega þannig að þegar þú ferð úr litlu eða engu upp í eitthvað meira verður hlutfallsleg hækkun svo mikil. Prósentan hljómar svo há. Íslensk ættleiðing lagði til að fimmtán milljónir yrðu settar í verkefni félagsins á fjáraukalög- um í haust. Næsta skref yrði tekið á fjárlögum ársins 2013 og lokaskref- ið ári síðar. Við skynjuðum mikinn fögnuð hjá stjórn- málamönnum og fjárauka- lög 2012 eru í samræmi við tilboð ættleiðingarfélags- ins. Ekkert bendir hins vegar til þess að stjórn- málamennirnir sem fóru svo glaðir út í vorið ætli sér að taka næstu skref í takt við ættleiðingarfélagið sitt. Enginn ágreiningur er um hvað verkefnin sem félaginu eru falin kosta. Allir eru sammála um að ef verkefnin eru ekki framkvæmd eru íslensk lög brotin og alþjóðasamn- ingar hunsaðir. Það er sem sagt ekki hægt að framkvæma það sem á að gera fyrir það fjármagn sem sett er í verkið. Þetta skilja allir vel og sérstaklega þeir sem ætla að bora göng alla leið í gegnum Vaðlaheiði. Borað inn í hálft fjallið Allir vita að ábyrgðirnar sem íslenska ríkið undirgekkst vegna Vaðlaheiðarganga munu líklega falla á ríkissjóð. Þar er um að ræða eins konar öfuga einkaframkvæmd, leið sem kemur tímabundið vel út í ríkisbókhaldi. Menn velja að fara þessa leið af því að framkvæmdin er mikilvæg og þörf og þess vegna ríkir töluverð sátt um að fara í þessa framkvæmd. Engum dettur í hug að bora bara inn í hálft fjallið og stoppa þar. Enginn er svo vitlaus að láta bara hálf jarðgöng duga. Það hefur enginn gagn af því að vera fastur inni í fjalli. Leiðin sem stjórnmálamenn kjósa að fara þegar þeir vilja spara í velferð væntanlegra kjörbarna er hins vegar eins og að fara bara inn í hálft fjallið. Það á að hækka framlög til ættleiðingamálaflokks- ins um fimmtán milljónir en ekki taka annað skref á næsta ári. Það á að fara með alþjóðlegar skuldbind- ingar og mikilvæg velferðarmál munaðarlausra barna inn í fjall og skilja þau eftir þar. Það er algjör- lega óskiljanlegt og sérstaklega er það illskiljanlegt af því að hér er ekki um háar fjárhæðir að ræða. Stundum finnst manni að Íslend- ingar meti frekar hús en hamingju, að þeir meti vegi frekar en velferð og mannvirki frekar en manneskj- ur. Ég trúi því ekki að fjárveitingar- valdið á Alþingi hugsi þannig. Að vera fastur í fjalli SAMFÉLAGSMÁL Hörður Svavarsson formaður Íslenskrar ættleiðingar ➜ Enginn er svo vitlaus að láta bara hálf jarðgöng duga. AF NETINU Íhlutun og íhlutir Svo virðist sem sterk tengsl séu á milli félagslegs þrýstings, kynímyndarinnar, tísku og jafn- vel klámvæðingu nútímans. Eins hvernig yngri kynslóðirnar vilja oft marka sína sérstöðu á ystu nöf, hvað sem um almenna skynsemi og hollustu má segja og við hin látum óátalið. Líka hlutir sem við tökum upp frá frumbyggjum í fjarlægum heimsálfum af hentisemi, en sem tengjast jafnvel ævafornri menningu og trú þeirra sem í raun eiga. Hefðir sem við virðumst geta afbakað og túlkað að vild. Á síðastliðnu ári hefur líka margt opinberast um okkar innri mann, hégóma og veik- leika, til sálar og líkama. Margt er þar óljóst milli læknis- fræðinnar og útlits dýrkunar, atvinnuskapandi iðnaðar, tísku og heilbrigðis. Þetta á ekki síst við um afleiðingar ýmissa inn- gripa á sjálfum mannslíkam- anum með beinni íhlutun. Lýtaaðgerðum til ímynd- aðrar fegrunar með íhlutum (implants), húðfúri (tattoo) og hringjaskrauti (piercings) hvers konar, undir húð og á, á kynfæri og í munn og tungu. blog.pressan.is/vilhjalmurari Vilhjálmur Ari Arason „ÞESSI BÓK ER ALGJÖR PERLA“ RANDALÍN OG MUNDI EFTIR ÞÓRDÍSI GÍSLADÓTTUR Er leyfilegt að rífa skemmtilegar bækur? Hvernig kemst maður í kynni við dáleiðanda? Þessi bráðfyndna og fjöruga saga er fyrsta barnabók verðlaunahöfundarins Þórdísar Gísladóttur. Þórarinn M. Baldursson myndskreytti. „Randalín er yndislegur karakter“ – N4 „Með skemmtilegri íslenskum barnabókum sem ég hef lesið“ VIKAN – N4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.